Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 27

Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 27
þróaðri vörur til að svara kostnaði við framleiðsluna hér á landi.“ Nýtt efnishagkerfi í stað olíu Heildarfjöldi tegunda smáþörunga er enn óþekktur og segir Kristján það til marks um þau tækifæri sem leynst geti í þessum iðnaði. „Segja má að við séum algjörlega á byrjunarreit, bæði hvað varðar þennan fjölda óþekktra tegunda en einnig hvað varðar framtíðarmögu- leika í hagnýtingu þeirra tegunda sem við þekkjum nú þegar. Heil- mikil þróun á eftir að eiga sér stað í vinnsluferlinu, að ná út úr þessum lífmassa alls konar efnum,“ segir Kristján. „Ég hef líkt þessu við olíu- hagkerfið, sem nú hefur verið við lýði í næstum hundrað ár, og alla þá framleiðslu á plasti og alls kyns efnum sem byggist á að nota olíuna sem frumauðlind. Ef við ætlum að koma með nýtt efnishagkerfi í stað- inn fyrir það þurfum við að þróa ferla til að þróa sambærileg efni sem geta komið í staðinn fyrir þau gömlu. Þörungar gætu þá reynst verðmæt uppspretta.“ Spurður hvort spá um framtíðar- þróun geirans hér á landi hafi verið unnin segir Kristján að svo sé ekki. „En þau fyrirtæki sem hér hafa haslað sér völl virðast öll reikna með talsvert miklum vexti. Ekki er ólíklegt að fleiri muni síðar bætast við, en fyrirtækjunum hefur fjölgað mjög hratt undanfarin ár.“ Morgunblaðið/Kristinn FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 MORGUNBLAÐIÐ 27 Þantroll ...yfirfléttaður kaðall með núningshlíf í mismunandi litum fyrir hvert byrði ...breiðari opnun - bætir veiðarnar ...minni mótstaða á stærri togfleti ...heldur lögun vel á litlum hraða ...auðveld í köstun og hífingu ...minni titringur og lægri hljóðbylgur, lágmarka fiskfælni Lykill að bættum veiðum: – Veiðarfæri eru okkar fag Vaxandi áhugi er á hátækniþörungarækt hér á landi. Ástæðan er hreint vatn, endurnýjanleg orka á hagkvæmu verði og aðgengi að koltvísýr- ingi frá háhitavirkjunum og kælivatni. Áður hefur Morgunblaðið fjallað um áform ísr- aelsks sprotafyrirtækis á sviði líftækni, Algaen- novation, sem í samvinnu við íslenska fjárfesta hyggst byggja hér og starfrækja eitt afkasta- mesta framleiðslufyrirtæki í heimi á sviði smá- þörungaræktar í auðlindagarði Orku náttúrunnar á Hellisheiði. Fyrstu árin mun áherslan verða á framleiðslu frumfóðurs fyrir klakstöðvar í fisk- eldi. Bæjarstjórn Ölfuss hefur þá veitt jákvæða um- sögn um áform nýsköpunarfyrirtækisins Omega tengdri verkefninu auk þess sem ýmis afleidd þjónusta muni vaxa. Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss, sagði í samtali við Morgunblaðið í desember að erfitt væri að meta áhrifin af starfseminni á sveitarfélagið, enn sem komið er. Þarna verði reist í áföng- um stór verksmiðja með til- heyrandi starfsemi. Þar verði til tugir starfa í framtíðinni, tæknistörf fyrir há- menntað fólk. Þá verði þarna til verðmæti til út- flutnings, til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Algae sem hyggst koma upp framleiðsluaðstöðu í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar. Framleiddir verða örþörungar sem notaðir eru í matvælaframleiðslu og snyrtivöruframleiðslu. Hugmyndin er að fullvinna afurðirnar og flytja út, meðal annars í formi Omega 3-olíu sem meðal annars er notuð í fiskafóður. Verði til tugir starfa Í umsögn bæjarstjórnar Ölfuss um umsókn Omega Algae til atvinnu- og nýsköpunarráðu- neytisins um ívilnun vegna nýfjárfestinga kemur fram að hún telur að jákvæðra áhrifa muni gæta á samfélagið, verði af þessu verkefni, svo sem með auknu atvinnuframboði og uppbyggingu Hreint vatn, orka og koltvísýringur Gunnsteinn R. Ómarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.