Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 S á sem hefur upplifað mánu- dagsmorgun á Bíldudal, heyrt dynjandi hamars- höggin, séð bardagann um bílastæðin og horft á eftir skutbílunum flykkjast á leikskólann, áttar sig á þeirri kraftaverkaþróun sem er að eiga sér stað á Vest- fjörðum,“ segir Pétur í samtali við 200 mílur. Hann tekur þó fram að enn sé mikið verk óunnið. Áratugum á eftir öðrum „Innviðir Vestfjarða eru áratugum á eftir öðrum fjórðungum,“ segir Pét- ur. „Þá tala ég helst um vega- samgöngur annars vegar og raforku- öryggi og -flutning hins vegar. Vegalagning um Gufudalssveit er til að mynda eitt af forgangsmálum fjórðungsins. Það er ótrúlegt að horfa upp á þró- un eins og verið hefur á suðurfjörðum Vestfjarða; ný verðmæti eru að skap- ast, sífellt meiri tekjur koma þaðan inn í þjóðarbúið og þar sem áður var mætt og brothætt samfélag er kom- inn þessi maraþon-æfingapúls, en á sama tíma er ekki hægt að klára nauðsynlega og einfalda vegalagn- ingu. Það er ekki í boði og Vestfirð- ingar láta ekki bjóða sér það lengur.“ Pétur segir Vestfirði eina lands- fjórðunginn þar sem sveitarfélög hafi tekið pólitíska ákvörðun um stór- iðjuleysi. „Umhverfismeðvitund á Vest- fjörðum er heimamönnum eðlislæg og er ekki drifin sérstaklega á kerf- isátaki. Vestfirðingar hafa lifað með náttúrunni, nytj- að hana og gert hana að sam- verkamanni kyn- slóð fram af kyn- slóð. Á þessum forsendum hefur stóriðjustefnu heimsins verið hafnað hér á Vest- fjörðum,“ segir hann og bendir á að þessi höfnun hafi sést skýrt við umræðu um mögu- lega byggingu olíuhreinsistöðvar í fjórðungnum, sem hefði sjálfsagt ver- ið mikil innspýting í efnahagsástand þess tíma. „En niðurstaðan var sú að hafna þeirri atvinnuuppbyggingu.“ Leiðandi í umhverfismálum Vestfirðir eru jafnframt eini fjórð- ungur landsins sem hlotið hefur silf- urvottun frá Earth Check og teljast samkvæmt því, ásamt Snæfellsnesi, hafa virkt og vottað umhverfiskerfi sem kemur samfélögum á ábyrgan hátt inn í umhverfisvæna framtíð. „Allt þetta gerir það að verkum að Vestfirðir eru leiðandi fjórðungur þegar kemur að umhverfismálum á Íslandi. Í mínum huga eru mikil verð- mæti fólgin í því að vera stóriðjulaus fjórðungur sem gefur mikla sérstöðu til framtíðar litið,“ segir hann. „Það er því ljótur leikur og lyginn að láta reglulega í það skína að Vestfirðingar sé tilbúnir í umhverfisafslætti þegar kemur að nýrri atvinnuuppbyggingu, það sé verið að spila með þá og þeir viti ekki betur.“ Umhverfisþversögn í olíunni Í þessu samhengi kveðst Pétur hafa ritað greinar um það sem hann segir eina mestu umhverfisþversögn fjórð- ungsins. „Hún felst í því að brenna olíu þeg- ar varaafl er keyrt, en heykjast á því að beisla umhverfisvænustu orku sem við getum komist í, byggja upp dreifikerfi raforku á Vestfjörðum og leggja þannig af óumhverfisvænt varaafl,“ segir hann og bætir við að augljóst sé að veikt raforkukerfi Vestfjarða hamli atvinnuuppbygg- ingu á svæðinu. Pétur segir það sömuleiðis mik- ilvægt að skipulagsvald sveitarfélaga nái yfir nálæga firði og flóa og þá at- vinnustarfsemi sem festir sér ból á þessum svæðum. Þannig geti sveit- arfélög varið hagsmuni sína, hvort sem um er að ræða atvinnuppbygg- ingu á láði eða legi. „Fyrir þessu eru einföld rök. Vald- efling sveitarfélaga er góður kostur fyrir stjórnvöld til að búa íbúum landsins betri þjónustu, öryggi og velferð. Betra líf.“ Öflugra mannlíf fylgi störfum Sveitarstjórn Súðavíkur hefur gert kröfu um að veitingar leyfis til fisk- eldis verði háðar landvinnslu á skipu- lagssvæðum viðkomandi kvía. Segir Pétur að krafan sé sett fram til að tryggja að sem flest störf verði til á svæðinu. „Fjölgun starfa á svæðinu þýðir að möguleiki á fólksfjölgun er til staðar og sömuleiðis meiri menning og öfl- ugra mannlíf. Fleiri börn til að kenna, fleira fólk til að vinna og fleira eldra fólk til að læra af. Í þessu felst til- gangur allra sveitarfélaga og um leið mestu hagsmunir þeirra. Það er ekki hlutverk sveitarfélaga að safna auði. Hitt heldur, að safna fólki til að þjón- usta til betra lífs og tækifæra, í sam- fylgd umhverfis og náttúru.“ Vestfirski þrífóturinn Til að útskýra stefnu og lausnir Vest- fjarða í umhverfisvænni og sjálfbærri atvinnuuppbyggingu hefur Pétur not- ast við hugtak sem hann kýs að kalla vestfirska þrífótinn. „Hver fótur stendur fyrir einn af þeim þremur atvinnuvegum sem Vestfirðir ætla að byggja á; fiskeldi, hefðbundna útgerð og ferðaþjónustu. Vandræði Vestfirðinga hafa verið fólgin í, öðru fremur, afar einsleitu at- vinnulífi. Hefðbundin útgerð hefur verið grunnatvinnuvegur svæðisins og sem slíkur hefur hann verið brokk- gengur. Með aðeins einn fót undir borðinu hafa áföll í þessari mikilvægu atvinnugrein verið okkur erfið.“ Vonast hann þannig til að þrífót- urinn geti staðið betur undir hags- munum Vestfirðinga. „Með meiri stöðugleika, auknum hagvexti og fjölbreyttara atvinnulífi mun fjölga hér konum og körlum, og þá erum við farin að sjá hlutverk sveitarfélaganna eflast og dafna. Þessi þróun mun síðan skapa frjóan jarðveg fyrir aðra atvinnuvegi til að hasla sér völl á Vestfjörðum.“ Í lok árs 2017 voru 74 skráðir at- vinnulausir á Vestfjörðum. Af öllum landshlutum voru einungis færri at- vinnulausir á Norðurlandi vestra, eða 48 talsins. Pétur segir þessar tölur ekki gefa rétta mynd af því hverning fjórðungnum hefur farnast und- anfarna áratugi. Tölurnar flytja sorgarsöng „Þetta fer algjörlega eftir hugarfari þess sem greinir tölfræðina. Í mínum huga flytja þessa tölur sorgarsöng svæðis sem þurft hefur að horfa á eftir fólkinu sínu. Birtingarmynd örlaga heimamanna sem hafa þurft að kveðja börn, foreldra, ættingja, vini og ná- granna, þar sem svæðið hefur ekki getað sinnt þeim lengur,“ segir Pétur. Gagnrýnir hann um leið skrif Jóns Kaldal, blaðamanns og félaga í Ís- lenska náttúruverndarsjóðnum, en grein eftir hann birtist í Frétta- blaðinu í marsmánuði. Benti Jón á að óvíða væri minna atvinnuleysi en á Vestfjörðum og sagði atvinnu- ástandið þar ekki slæmt. „Þegar hann notar atvinnuleys- istölfræði Vestfjarða sem rök gegn eldisuppbyggingu á svæðinu, á þeim forsendum að svæðið þurfi ekki á þróun að halda, gerir hann ekki að- eins lítið úr sjálfum sér, heldur op- inberar hann ótrúlega kaldlynt hug- arfar, sem gerir reynslu og sögu Vestfirðinga að merkingarleysu,“ segir Pétur að lokum. „Við það verður ekki unað.“ Fiskeldi verði ein þriggja grunnstoða Vestfjarða Morgunblaðið/Sigurður Bogi Súðavíkurhlíð Pétur segir það mikilvægt að skipulagsvald sveitarfélaga nái yfir nálæga firði og flóa og þá atvinnustarfsemi sem festir sér ból á þessum svæðum. Þannig geti sveitarfélög varið hagsmuni sína. Pétur Georg Markan Vestfirðir hafa átt afar erfitt uppdráttar í lengri tíma, þar sem hagvöxtur hefur verið neikvæður, fólki stöðugt fækkað og dauft verið yfir fjórðungnum. En nú sér fyrir endann á þeirri þróun. Þetta segir Pétur Georg Markan, sveitarstjóri Súða- víkurhrepps, og bendir sérstaklega á vöxt Bíldudals samhliða auknum umsvifum sjávarútvegsfyrirtækja í bænum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.