Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
S
á sem hefur upplifað mánu-
dagsmorgun á Bíldudal,
heyrt dynjandi hamars-
höggin, séð bardagann um
bílastæðin og horft á eftir
skutbílunum flykkjast á leikskólann,
áttar sig á þeirri kraftaverkaþróun
sem er að eiga sér stað á Vest-
fjörðum,“ segir Pétur í samtali við
200 mílur. Hann tekur þó fram að enn
sé mikið verk óunnið.
Áratugum á eftir öðrum
„Innviðir Vestfjarða eru áratugum á
eftir öðrum fjórðungum,“ segir Pét-
ur. „Þá tala ég helst um vega-
samgöngur annars vegar og raforku-
öryggi og -flutning hins vegar.
Vegalagning um Gufudalssveit er til
að mynda eitt af forgangsmálum
fjórðungsins.
Það er ótrúlegt að horfa upp á þró-
un eins og verið hefur á suðurfjörðum
Vestfjarða; ný verðmæti eru að skap-
ast, sífellt meiri tekjur koma þaðan
inn í þjóðarbúið og þar sem áður var
mætt og brothætt samfélag er kom-
inn þessi maraþon-æfingapúls, en á
sama tíma er ekki hægt að klára
nauðsynlega og einfalda vegalagn-
ingu. Það er ekki í boði og Vestfirð-
ingar láta ekki bjóða sér það lengur.“
Pétur segir Vestfirði eina lands-
fjórðunginn þar sem sveitarfélög hafi
tekið pólitíska ákvörðun um stór-
iðjuleysi.
„Umhverfismeðvitund á Vest-
fjörðum er heimamönnum eðlislæg
og er ekki drifin sérstaklega á kerf-
isátaki. Vestfirðingar hafa lifað með
náttúrunni, nytj-
að hana og gert
hana að sam-
verkamanni kyn-
slóð fram af kyn-
slóð. Á þessum
forsendum hefur
stóriðjustefnu
heimsins verið
hafnað hér á Vest-
fjörðum,“ segir
hann og bendir á
að þessi höfnun
hafi sést skýrt við umræðu um mögu-
lega byggingu olíuhreinsistöðvar í
fjórðungnum, sem hefði sjálfsagt ver-
ið mikil innspýting í efnahagsástand
þess tíma.
„En niðurstaðan var sú að hafna
þeirri atvinnuuppbyggingu.“
Leiðandi í umhverfismálum
Vestfirðir eru jafnframt eini fjórð-
ungur landsins sem hlotið hefur silf-
urvottun frá Earth Check og teljast
samkvæmt því, ásamt Snæfellsnesi,
hafa virkt og vottað umhverfiskerfi
sem kemur samfélögum á ábyrgan
hátt inn í umhverfisvæna framtíð.
„Allt þetta gerir það að verkum að
Vestfirðir eru leiðandi fjórðungur
þegar kemur að umhverfismálum á
Íslandi. Í mínum huga eru mikil verð-
mæti fólgin í því að vera stóriðjulaus
fjórðungur sem gefur mikla sérstöðu
til framtíðar litið,“ segir hann. „Það
er því ljótur leikur og lyginn að láta
reglulega í það skína að Vestfirðingar
sé tilbúnir í umhverfisafslætti þegar
kemur að nýrri atvinnuuppbyggingu,
það sé verið að spila með þá og þeir
viti ekki betur.“
Umhverfisþversögn í olíunni
Í þessu samhengi kveðst Pétur hafa
ritað greinar um það sem hann segir
eina mestu umhverfisþversögn fjórð-
ungsins.
„Hún felst í því að brenna olíu þeg-
ar varaafl er keyrt, en heykjast á því
að beisla umhverfisvænustu orku
sem við getum komist í, byggja upp
dreifikerfi raforku á Vestfjörðum og
leggja þannig af óumhverfisvænt
varaafl,“ segir hann og bætir við að
augljóst sé að veikt raforkukerfi
Vestfjarða hamli atvinnuuppbygg-
ingu á svæðinu.
Pétur segir það sömuleiðis mik-
ilvægt að skipulagsvald sveitarfélaga
nái yfir nálæga firði og flóa og þá at-
vinnustarfsemi sem festir sér ból á
þessum svæðum. Þannig geti sveit-
arfélög varið hagsmuni sína, hvort
sem um er að ræða atvinnuppbygg-
ingu á láði eða legi.
„Fyrir þessu eru einföld rök. Vald-
efling sveitarfélaga er góður kostur
fyrir stjórnvöld til að búa íbúum
landsins betri þjónustu, öryggi og
velferð. Betra líf.“
Öflugra mannlíf fylgi störfum
Sveitarstjórn Súðavíkur hefur gert
kröfu um að veitingar leyfis til fisk-
eldis verði háðar landvinnslu á skipu-
lagssvæðum viðkomandi kvía. Segir
Pétur að krafan sé sett fram til að
tryggja að sem flest störf verði til á
svæðinu.
„Fjölgun starfa á svæðinu þýðir að
möguleiki á fólksfjölgun er til staðar
og sömuleiðis meiri menning og öfl-
ugra mannlíf. Fleiri börn til að kenna,
fleira fólk til að vinna og fleira eldra
fólk til að læra af. Í þessu felst til-
gangur allra sveitarfélaga og um leið
mestu hagsmunir þeirra. Það er ekki
hlutverk sveitarfélaga að safna auði.
Hitt heldur, að safna fólki til að þjón-
usta til betra lífs og tækifæra, í sam-
fylgd umhverfis og náttúru.“
Vestfirski þrífóturinn
Til að útskýra stefnu og lausnir Vest-
fjarða í umhverfisvænni og sjálfbærri
atvinnuuppbyggingu hefur Pétur not-
ast við hugtak sem hann kýs að kalla
vestfirska þrífótinn.
„Hver fótur stendur fyrir einn af
þeim þremur atvinnuvegum sem
Vestfirðir ætla að byggja á; fiskeldi,
hefðbundna útgerð og ferðaþjónustu.
Vandræði Vestfirðinga hafa verið
fólgin í, öðru fremur, afar einsleitu at-
vinnulífi. Hefðbundin útgerð hefur
verið grunnatvinnuvegur svæðisins og
sem slíkur hefur hann verið brokk-
gengur. Með aðeins einn fót undir
borðinu hafa áföll í þessari mikilvægu
atvinnugrein verið okkur erfið.“
Vonast hann þannig til að þrífót-
urinn geti staðið betur undir hags-
munum Vestfirðinga.
„Með meiri stöðugleika, auknum
hagvexti og fjölbreyttara atvinnulífi
mun fjölga hér konum og körlum, og
þá erum við farin að sjá hlutverk
sveitarfélaganna eflast og dafna. Þessi
þróun mun síðan skapa frjóan jarðveg
fyrir aðra atvinnuvegi til að hasla sér
völl á Vestfjörðum.“
Í lok árs 2017 voru 74 skráðir at-
vinnulausir á Vestfjörðum. Af öllum
landshlutum voru einungis færri at-
vinnulausir á Norðurlandi vestra, eða
48 talsins. Pétur segir þessar tölur
ekki gefa rétta mynd af því hverning
fjórðungnum hefur farnast und-
anfarna áratugi.
Tölurnar flytja sorgarsöng
„Þetta fer algjörlega eftir hugarfari
þess sem greinir tölfræðina. Í mínum
huga flytja þessa tölur sorgarsöng
svæðis sem þurft hefur að horfa á eftir
fólkinu sínu. Birtingarmynd örlaga
heimamanna sem hafa þurft að kveðja
börn, foreldra, ættingja, vini og ná-
granna, þar sem svæðið hefur ekki
getað sinnt þeim lengur,“ segir Pétur.
Gagnrýnir hann um leið skrif Jóns
Kaldal, blaðamanns og félaga í Ís-
lenska náttúruverndarsjóðnum, en
grein eftir hann birtist í Frétta-
blaðinu í marsmánuði. Benti Jón á að
óvíða væri minna atvinnuleysi en á
Vestfjörðum og sagði atvinnu-
ástandið þar ekki slæmt.
„Þegar hann notar atvinnuleys-
istölfræði Vestfjarða sem rök gegn
eldisuppbyggingu á svæðinu, á þeim
forsendum að svæðið þurfi ekki á
þróun að halda, gerir hann ekki að-
eins lítið úr sjálfum sér, heldur op-
inberar hann ótrúlega kaldlynt hug-
arfar, sem gerir reynslu og sögu
Vestfirðinga að merkingarleysu,“
segir Pétur að lokum.
„Við það verður ekki unað.“
Fiskeldi verði ein þriggja
grunnstoða Vestfjarða
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Súðavíkurhlíð Pétur segir það mikilvægt að skipulagsvald sveitarfélaga nái yfir nálæga firði og flóa og þá atvinnustarfsemi sem festir sér ból á þessum svæðum. Þannig geti sveitarfélög varið hagsmuni sína.
Pétur Georg
Markan
Vestfirðir hafa átt afar erfitt uppdráttar í lengri tíma, þar sem hagvöxtur hefur verið neikvæður, fólki stöðugt fækkað og
dauft verið yfir fjórðungnum. En nú sér fyrir endann á þeirri þróun. Þetta segir Pétur Georg Markan, sveitarstjóri Súða-
víkurhrepps, og bendir sérstaklega á vöxt Bíldudals samhliða auknum umsvifum sjávarútvegsfyrirtækja í bænum.