Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 30
Hafþór Hreiðarsson
skrifar frá Húsavík
Þ
au voru alveg bunkuð af fiski
netin, þegar við drógum
upp á laugardag fyrir
páska,“ sagði Guðlaugur Óli
Þorláksson, útgerðarmaður
og skipstjóri á Hafborg EA-152 frá
Grímsey, í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins á páskadag. „Mest
fengust yfir 600 kíló í net en aflinn í
heild var um 37 -38 tonn í 60 net.“
Hafborgin var þá á norðurleið eftir
stuttan en snarpan veiðitíma í Breiða-
firði, 10 til 11 róðra, en róið var frá
Grundarfirði og landað þar. Aflanum
var síðan ekið norður til Húsavíkur til
vinnslu hjá GPG fiskverkun þar í bæ.
„Verður sjálfdauður úr elli“
„Við byrjuðum veiðar fyrir norðan 5.
mars, lögðum netin í Skjálfanda þar
sem við fengum um hundrað tonn áð-
ur haldið var í Breiðafjörðinn upp úr
20. mars. Þar erum við búnir að fá um
240 tonn til viðbótar. Við vorum nán-
ast einskipa á miðunum og síðustu
dagana var alveg mok af stórum og
góðum þorski. Fiskur sem ég vil
meina að við mættum og ættum að
veiða mun meira af en gert er í dag.
Annars verður hann bara sjálfdauður
úr elli því hann hefur verið verndaður
svo mikið og lengi,“ segir Guðlaugur
Óli sem jafnan er kallaður Óli.
Þess má geta að í heildina notuðu
karlarnir á Hafborginni tæp 70 net til
að veiða þessi 340 tonn upp úr sjó.
Skiptu sem sagt um innan við tíu net í
trossunum á tæpum mánuði.
Leysir samnefnt skip af hólmi
Hafborgin kom, eins og áður hefur
komið fram í Morgunblaðinu, til lands-
ins um mánaðamótin janúar-febrúar á
þessu ári. Var hún smíðuð í Hvide
Sande á Jótlandi fyrir útgerðarfélagið
Hafborg ehf. í Grímsey og er hönnuð
og útbúin til neta- og dragnótaveiða.
Danirnir létu reyndar smíða skrokk-
inn í Póllandi, sem síðan var dreginn
yfir til Danmerkur þar sem smíðin var
fullkláruð. Hafborg er 284 brúttótonn
að stærð, 26 metrar að lengd og átta
metra breið og búin Yanmar-aðalvél.
Leysir nýja skipið af hólmi samnefnt
eldra skip en sú Hafborg var tæp 60
brúttótonn að stærð og gat tekið 15-
17 tonn í kör. Þá á Hafborg ehf. einn-
ig línu- og handfærabátinn Kolbeins-
ey EA 252 og eru báðir bátarnir á
söluskrá.
Að sögn Óla hefur skipið reynst
mjög vel í alla staði, bæði fyrir mann-
skap sem og frágang og meðferð á
aflanum. Fiskurinn er settur í kör
með ískrapa en lestin rúmar 50 tonn í
körum með krapa. Fimm manna
áhöfn er á Hafborginni og segir Óli
það hafa gengið vel að afgreiða þessa
15 til 37 tonna róðra.
Grímseyjarferja í tvær vikur
Hafborgin er að sönnu glæsilegt skip,
aðbúnaður áhafnar góður og allur
tækjabúnaður hinn vandaðasti sem
og annar búnaður, sem er sérvalinn
með það að leiðarljósi að hámarka af-
köst og aflaverðmæti. Spurður hvort
skipið hafi ekki vakið athygli ís-
lenskra útgerðar- og sjómanna, segir
Óli að svo sé, enda nokkuð um liðið
frá því að nýtt skip af þessari stærð,
sem er sérhannað til neta- og drag-
nótaveiða, kom í íslenska flotann.
Spurður hvað væri framundan
sagði Óli að næst yrði farið á ufsanet
fyrir norðan en verðið á honum hefur
verið á uppleið að undanförnu. Fyrst
mun Hafborgin þó bregða sér í hlut-
verk Grímseyjarferjunnar í tvær vik-
ur núna í apríl, á meðan Sæfari fer í
slipp.
Konfekt um borð Þórir Örn Gunnarsson rekstrarstjóri hafna í Norðurþingi og
hans menn fara um borð í Hafborgina á Húsavík. Þeir höfðu meðferðis konfekt-
kassa handa Óla og áhöfninni ásamt hamingjuóskum með nýtt og glæsilegt skip.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Nýsmíði Hafborgin var smíðuð bæði í Danmörku og Póllandi. Er hún 284 brúttótonn að stærð, 26 metrar að lengd og átta metra breið. Útgerðarmaðurinn Guðlaugur Óli lætur vel af hinu nýja skipi.
Ný Hafborg reynst vel í alla staði
Salt Brynjar Ástþórsson og Björn Elí Víðisson hjá GPG fiskverkun pakka saltfiski.
Nafni Guðlaug Óli, sonur Guðlaugs Óla, yfirvélstjóri á Hafborginni við löndun.
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018