Morgunblaðið - 06.04.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 06.04.2018, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Sími 567 4467 - www.gummisteypa.isAllAr gerðir reimA og færibAndA Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is V íðir Ingþórsson er ungur athafnamaður sem hefur tekist að byggja upp metn- aðarfullan rekstur á Ísa- firði. Hann stofnaði fisk- söluna North Atlantic (www.fisksala.is) árið 2014 í kringum útflutning á skötuselslifur en síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og dafnað og er í dag leiðandi í sölu hágæða sjávarfangs á innanlandsmarkaði. „Ég hafði uppgötvað að skötusels- lifur þykir mikill sælkeramatur í Japan þar sem hún er framreidd í niðursneiddum skífum og t.d. fáanleg á matseðlum betri sushi-staða. Ég safnaði því saman allri þeirri skötu- selslifur sem ég gat fundið, lét pakka fyrir mig í 5 kg frauðplastkassa með kælimottum og sendi til Japans þar sem ég hafði gert samning við aðila um að kaupa vöruna af mér,“ út- skýrir Víðir en hann er ekki nema rétt orðinn þrítugur. Víðir hafði áður stofnað fisksöluna Atalon ehf. með skólabróður sínum Birni Atla Axelssyni, sem í dag starf- ar hjá Gamma í New York, þegar þeir voru við nám í Menntaskólanum á Akureyri. „Það var bara tóm- stundaverkefni tveggja stráka sem voru ennþá blautir bak við eyrun, en okkur gekk samt ágætlega að selja heilan fisk í körum til Bretlands.“ Rækjur sem bera af Smám saman hefur bæst við vöruúr- valið hjá North Atlantic og ekki langt síðan fyrirtækið hóf að selja eldisaf- urðir úr Skutulsfirði og Önundafirði. „Á sama tíma á sér stað mikill vöxtur í veitingastaðageiranum og fer að spyrjast út á meðal kokkanna að á Vestfjörðum sé rekið fyrirtæki sem geti reddað hráefni sem ekki sé auð- velt að fá hjá venjulegum fisksölum – einhver sem geti útvegað þeim sjáv- arfang með mikla sérstöðu.“ Í dag má m.a. fá hjá North Atl- antic úrval skötuselsafurða, ígulker, kóngakrabba, alvöru kavíar, og sól- flúru svo nokkur dæmi séu nefnd. Þreytist Víðir ekki á að bæta við nýj- um tegundum og vörum, og hefur hann sankað að sér fjölda bóka um sjávarfang og sælkerarétti sem hann notar sem leiðarvísi til að bæta úrval- ið enn frekar. „Það vita t.d. ekki margir að Ísafjörður á sér merkilega rækjuveiðisögu, og að hér veiðist rækja í algjörum sérflokki. Rækjan er veidd á daginn, komið með hana að landi á kvöldin og hún pilluð dag- inn eftir. Ferskleikinn skilar sér í mun meiri bragðgæðum en fólk á að venjast, og oft að gestir veitingastaða hafa sérstaklega orð á því ef þeir t.d. panta sér rækjusnittu að þeir hafi aldrei smakkað svona bragðmikla og góða rækju. Enda markaðssetjum við þessa vöru sem bestu rækju sem hægt er að fá.“ Flytur inn lúxushráefni Í dag er svo komið að um 70% af veltu North Atlantic kemur til vegna sölu innanlands, á meðan útflutn- ingur myndar 30% af veltunni. Auk þess að selja skötuselslifrina til Jap- ans hóf North Atlantic á síðasta ári sölu á þorsksviljum til S-Kóreu. „Við höfum einnig nýtt okkur nýjar flug- tengingar inn á Bandaríkjamarkað fyrir ferskt sjávarfang og svo höfum við selt fiskhrogn af ýmsum teg- undum, aðalega til meginlands Evr- ópu.“ Víðir finnur besta hráefnið sem er í boði hér á landi en þarf líka að flytja inn vöru erlendis frá fyrir þá kröfu- hörðustu, lúxusveitingastaðina. „Þetta er gúrme-vara eins og kónga- krabbi og ekta styrjuhrogn sem geta kostað allt að 100-150.000 kr. kílóið. Íslenskir kokkar eru meðal þeirra bestu í heimi í dag og eru mjög með- vitaðir um það sem er að gerast er- lendis, við þurfum því að vera vel vakandi og tilbúnir að skaffa þeim framúrskarandi hráefni,“ segir Víðir og bætir við að það sé litlu en frá- bæru teymi starfsmanna að þakka að North Atlantic takist að veita við- skiptavinum innanlands og erlendis svona góða þjónustu. Vill láta kafara tína kúfskel En hvað gæti orðið næsta viðbótin við flóruna hjá North Atlantic? Er Viðir kannski með augastað á ein- hverri vannýttri tegund í hafinu um- hverfis Ísland sem gæti verið mikils virði, rétt eins og ísfirska lúx- usrækjan eða skötuselslifrin? „Ís- lenskur sjávarútvegur er mjög fram- arlega í að vinna mikið magn sjávarafurða með nýjustu tækni, en um leið má ekki gleyma að huga að minni hlutunum og nostra við ákveðna vöruflokka. Mig langar að nefna kúfskelina, sem hefur verið að ryðja sér til rúms og er orðin vinsælt hráefni á fínustu Michelin-stöðum úti í heimi. Kúfskel hefur áður verið veidd hér á landi og veiddist t.d. í miklum mæli hér fyrir vestan. Var skelin þá „sjokkuð“, brotin og vöðv- inn frystur og varan seld á lágu verði til útlanda. Ég held að væri aftur á móti áhugavert að skoða að láta kaf- ara handtína kúfskelina af sjáv- arbotninum og meðhöndla hana af nærgætni þannig að úr verði lifandi hágæðavara. Þannig kúfskel mætti selja á a.m.k. fimmtánfalt hærra verði,“ segir Víðir. „Hjartaskelin (e. cockles) er líka mjög áhugaverð og svo má ekki gleyma grásleppulifrinni sem René Redzepi á NOMA sagði á dögunum að væri alveg eins og foie gras. Við höfum sent tvær prufu- sendingar út til Japans og þeir eru himinlifandi. Um þessar mundir eru þeir að kynna hana fyrir markaðnum og ef allt gengur að óskum þá verð- um við farnir að safna grásleppulifur hringinn í kringum landið.“ Sjávarafurðir fyrir þá kröfuhörðustu North Atlantic hefur sérhæft sig í „gúrme“ sjávarfangi og sinnir þörfum margra fremstu veitingastaða landsins. Framundan er m.a. út- flutningur á grásleppu- lifur til Japans. Ljósmynd/Agnes H. Aspelund Hugmyndir „Ég held að væri áhugavert að skoða að láta kafara handtína kúfskelina af sjávarbotninum og með- höndla hana af nærgætni þannig að úr verði lifandi há- gæðavara,“ segir Víðir. Áherslur „Íslenskur sjávarútvegur er mjög framarlega í að vinna mikið magn sjáv- arafurða með nýjustu tækni, en um leið má ekki gleyma að huga að minni hlut- unum og nostra við ákveðna vöruflokka, “ segir Víðir um framtíðarmöguleikana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.