Morgunblaðið - 06.04.2018, Page 36

Morgunblaðið - 06.04.2018, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þéri i Orkusparnaður með Nergeco hraðopnandi iðnaðarhurðum Nergeco • Opnast hratt & örugglega • Eru orkusparandi • Þola mikið vindálag • Eru öruggar & áreiðanlegar • Henta við allar aðstæður • 17 ára reynsla við íslen- skar aðstæður & yfir 150 hurðir á Íslandi Með hraðri opnun & lokun sem & mikilli einangrun má minnka varmaskipti þar sem loftskipti verða minni Intelligent curtain sem veitir aukið öryggi Skúli Halldórsson sh@mbl.is F ramandi sjávarlífverur hafa í auknum mæli numið hér land, en einkum hefur þeirra orðið vart við suð- vesturhorn Íslands á síð- ustu tuttugu árum, segir Guðrún G. Þórarinsdóttir, doktor í sjáv- arlíffræði sem starfar við botnsjáv- arsvið Hafrannsóknastofnunar. „Á þessu horni landsins erum við með járnblendiverk- smiðjuna og þangað koma stór skip að utan til að sækja járn- blendið. Þau koma til landsins tóm að öðru leyti en því að tankar þeirra eru fullir af kjölfestuvatni sem ber ýmsar sjávarlífverur með sér frá þeirra heimahöfn. Allt fram til ársins 2010, þegar tekin var í gildi reglugerð um bann við losun kjölfest- uvatns innan mengunarlögsögu Ís- lands, losuðu skipin kjölfestuvatnið þegar til Íslands kom og þá fylgdu framandi lífverur með,“ segir Guð- rún. Hlýnandi sjór síðustu áratugi „Í raun eru flutningar framandi sjáv- arlífvera til landsins ekki nýtt fyr- irbæri en sennilega hafa flestar þær tegundir sem hafa borist ekki getað lifað hér og fjölgað sér fyrr en síðast- liðin tíu til tuttugu ár. Á þeim tíma hefur sjórinn við landið farið hlýn- andi.“ Tíðar ferðir stórra skipa við suð- vesturhornið, auk þess að þar er sjór- inn við Ísland hlýjastur, hafa gert það að verkum að þar hafa fundist flestar þær framandi sjávarlífverur sem haslað hafa sér völl undan ströndum landsins. „Þó ber að nefna að flestar rann- sóknir hafa einmitt verið gerðar í þessum landshluta. Við eigum rann- sóknarseríur fleiri tugi ára aftur í tímann, þannig að við getum séð breytingar á milli ára eða áratuga. En ef við fyndum framandi lífveru, til dæmis í Reyðarfirði, þá hefðum við engar fyrri rannsóknir til að styðjast við. Eru fá rannsóknarverkefni þar í gangi.“ Fáar tegundir taldar áleitnar Guðrún flutti erindi á ráðstefnunni Strandbúnaði 2018 í marsmánuði, þar sem hún fjallaði um framandi og áleitnar sjávarlífverur við Ísland og einkum hugsanleg áhrif þeirra á skeldýrarækt á Íslandi. Fæstar framandi sjávarlífverur gerast nokkurn tíma áleitnar eða ágengar, en það er þegar þær verða ráðandi, breyta ásýnd eða valda skaða á lífríki. „Það eru í raun fáar tegundir við Ísland sem hægt er að telja áleitnar, en áhrif þeirra koma oftast ekki fram fyrr en eftir lengri tíma,“ segir Guð- rún. „Í dag er talið að við höfum fimm- tán tegundir framandi sjávarlífvera við Ísland. Aðeins hafa fjórar verið taldar mögulega áleitnar en með tím- anum gæti þeim fjölgað.“ Guðrún segir framandi sjáv- arlífverur vera vaxandi vandamál um allan heim. „Það eru mörg dæmi um framandi sjávarlífverur sem valdið hafa usla og vandinn hefur aukist ár frá ári. Þessi aukning orsakast meðal annars af umhverfisástæðum. Sjávarhiti hefur aukist, jöklar hafa bráðnað, og þar með hafa náttúrulegar flutningsleiðir og dreifing lífveranna breyst. En þegar við tölum um framandi lífveru þá gerum við það út frá þeirri skil- greiningu að lífveran verði að hafa komið til hinna nýju heimkynna fyrir tilstilli mannsins, hvort sem það er ómeðvitað eða af ásettu ráði.“ Mismunandi flutningsleiðir Flutningsleiðir framandi sjáv- arlífvera eru aðallega með kjölfest- uvatni, sem ásætur á skipsskrokkum, með innflutningi á eldistegund eða að yfirlögðu ráði. „Ef við tökum dæmi um framandi sjávarlífveru sem hefur náð fótfestu á Íslandi, vex vel og fjölgar sér mikið, breiðist hratt út og veldur breyt- ingum í nýja umhverfinu, þá er það grjótkrabbinn. Hans varð fyrst vart í Hvalfirði árið 2006, hefur síðan þá breiðst hratt út um landið, og er sú tegund sem einna helst getur talist áleitin við strendur Íslands,“ segir Guðrún. „Grjótkrabbinn er talinn hafa áhrif á trjónu- og bogakrabba í Hvalfirði þar sem hann er í samkeppni við þessar minni tegundir um fæðu og virðist stofn þessara krabbategunda hafa minnkað í samræmi við stækk- un grjótkrabbastofnsins. Talið er fullvíst að grjótkrabbinn hafi borist til okkar frá Kanada með kjölfest- uvatni skipa er komu til Hvalfjarðar að sækja járnblendi. Í kjölfestuvatn- inu hafa egg og/eða lirfur krabbans lifað af flutninginn og á þessum tíma var sjávarhiti í Hvalfirði orðinn nægjanlega hár til þess að krabbinn gat lifað af, vaxið og fjölgað sér þegar kjölfestuvatnið var losað.“ Gæti orðið áleitin í framtíðinni Önnur algeng flutningsleið fyrir líf- verur er að berast sem ásæta á skips- skrokki á milli hafsvæða og má þar nefna glærmöttul, sem fyrst fannst hér árið 2010 undir flotbryggjum á suðvesturhorninu. Glærmöttull er sú tegund sem hefur orðið áleitin í kræklingarækt í Kanada og barst á milli svæða sem ásæta á skel sem var flutt frá austri til vesturs. Þessi teg- und er ekki talin áleitin hér í dag en gæti mögulega orðið það í skel- fiskrækt nái hún hér almennilegri fótfestu, að sögn Guðrúnar. Önnur framandi tegund sem hefur orðið áleitin erlendis í skelfiskrækt og finnst hér er hafkyrja, sem fannst hér fyrst í Hvalfirði en hefur síðan breiðst út um Suðurland. „Þetta er tegund sem hefur líklega borist til okkar með kjölfestuvatni og hefur hún fundist hér í litlu magni í fjörupollum. Tegundin er ekki talin mögulega áleitin en er það víða bæði í Evrópu og Ameríku í skelfiskrækt þar sem hún er ásæta á skeljarnar og veldur miklum usla þar sem erfitt er að hreinsa hana af, þegar uppskorið er,“ segir Guðrún. Óværa getur fylgt tegundum Þriðja flutningsleiðin í flokkun Guð- rúnar er þegar lífverur eru fluttar til landsins af ásettu ráði. „Til dæmis má nefna gróður og skrautfiska sem fluttir er inn fyrir fiskabúr. Þú flytur þetta inn af ásettu ráði og svo hellirðu þessu kannski út í bæjarlækinn, sem er ef til vill hálf- volgur, og þá um leið gæti ný tegund lífvera fundið sér bólfestu.“ Sú áhætta fylgir þá oft skel- fiskrækt, þegar flutt er inn ný teg- und til ræktunar, að henni fylgi óværa sem ekki var ætlað að flyttist með. Eins gæti innflutningstegundin sjálf farið út böndunum hjá mönnum og valdið usla, eins og mörg dæmi eru um erlendis. Nefnir Guðrún sem dæmi þegar Kyrrahafsostrur voru fluttar frá Suður-Evrópu til rækt- unar í Danmörku í kringum árið 1970. „Þeir hafa misst ostrurnar úr böndunum. Ostran er orðin verulega ágeng tegund þar við land.“ Framandi lífvera finnst utan nátt- úrulegra heimkynna vegna viljandi eða óviljandi flutnings. Fáar framandi lífverur gerast áleitnar en í því felst að þær verða ráðandi í nýja umhverfinu og breyta ásýnd þess, hrekja burtu aðrar líf- verur og geta jafnvel valdið umhverf- is-, efnahags- eða heilsufarslegum skaða. Framandi lífverur nema hér land Glærmöttull Tegundin gæti mögulega orðið áleitin í skelfiskrækt. Gífurlegur fjöldi sjávarlífvera fer á milli hafsvæða á hverjum einasta degi án þess að hafa beinlínis til þess vilja, heldur flytjast þær með umsvifum mannanna. Ýmsar þessarar lífvera festast í sessi á nýjum stað, geta vaxið og fjölgað sér og teljast þá framandi. Grjótkrabbi Krabbans varð fyrst vart í Hvalfirði árið 2006, en hefur breiðst út. Guðrún G. Þórarinsdóttir Ljósmynd/Pálmi Dungal Ljósmynd/Sindri Gíslason Hvað er framandi lífvera?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.