Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 43
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 MORGUNBLAÐIÐ 43 mældist eitt sinn 140-150 hnúta vindur. (64 hnútar eru 12 vindstig) Öll fjarskipti við stjórnendur fóru fram um gervitungl á Inmarsat C- tækjum skipsins. Við komum á svæðið 10. janúar en óveður tafði för okkar þangað. Eins og fyrr var getið voru skipin færð til, norður-suður, eftir því hvernig lægðirnar þróuðust og fóru yfir Atlantshaf, en syðst fór Ægir í ferðinni á stað: 45°44 N breidd og 034°47 V lengd, eða um 1.160 sjómíl- ur suð-suðvestur frá Reykjanesi og voru þá um 390 sjómílur til Azor- eyja. Það var engin tilviljun sem olli því að staðsetning skipanna var ákveðin á þessu hafsvæði. Að baki lágu at- huganir veðurfræðinga frá árunum 1989 til 1994 þar sem kom fram að þar fóru um flestar dýpstu lægð- irnar austur yfir Atlantshaf enda reyndist svæðið vera hið mesta veðravíti. Sjá meðfylgjandi kort. Þegar ég var við nám í Stýri- mannaskólanum um 20 árum fyrr lærðum við nemarnir veðurfræði, skemmtilegt fag að mér fannst. Þar lærðum við hjá mínum góða læri- meistara og síðar skólastjóra, Guð- jóni Ármanni Eyjólfssyni, að teikna m.a. veðurkort þar sem fram komu hitaskil, kuldaskil og samskil ásamt öðru sem nauðsynlegt var að hafa á umræddum kortum. Þetta var fyrir tíma veðurkorta- móttakara sem komu síðar. Þurfti ekki að rifja upp fræðin Þessu námi tengdist einnig svokall- að „Weather routing“. Í stuttu máli byggðust þau fræði á því að forðast skyldi það að skip lentu í slæmum veðrum, sem sagt, reyna að sneiða framhjá dýpstu lægðunum og þá að- allega til að spara eldsneyti, auka ör- yggi skips og áhafnar og tryggja það að farmur skipa verði síður fyrir tjóni. Á þessum tíma þegar ég var við nám var framtíðin óráðin, var ég jafnvel að hugsa um að fara í lang- siglingar og þá var eins gott að kunna þessi fræði vel þegar lagt yrði á úthafið. Nei, nú þurfti ekkert að rifja upp þessi fræði því nú skyldi haldið í veg fyrir allar dýpstu lægðir sem geyst- ust yfir Atlantshaf og helst ekki missa af neinni þeirra, uppörvandi eða hitt þó heldur. Í dag sjáum við það oft hjá Land- helgisgæslunni að jafnvel stór flutn- ingaskip koma hingað upp undir Ís- land og fara jafnvel norður fyrir land til að forðast slæmt sjólag suður á Atlantshafi á leið sinni austur eða vestur um haf. Haldið til Cork á Írlandi Um mánaðamótin janúar-febrúar var gert um fjögurra daga hlé á veð- urathugunum þar sem skipin leituðu hafnar til að taka olíu og vistir. Við á Ægi héldum til Cork á Ír- landi, franska skipið fór til Azoreyja, úkraínska skipið til Halifax í Kanada en bandaríska skipið Knorr hélt af svæðinu í byrjun febrúar til rann- sókna á Labradorsundi. Við á Ægi áttum ágætar stundir á Írlandi þar sem áhöfnin hvíldist og fór í skoðunarferðir. Þó þurfti að sinna ákveðnum „skyldustörfum“. Undirritaður fór og heilsaði upp á fulltrúa borgarstjóra í Cork eins og algengt er að skipstjórar „herskipa“ geri þegar komið er í erlendar hafn- ir. Eldavélin að liðast í sundur Hafnarstjóri Cork var einnig heim- sóttur, farið var í heimsókn til írska sjóhersins og haldin móttaka um borð í Ægi fyrir fulltrúa írska sjó- hersins og fleira fólk. Ýmis búnaður var lagfærður um borð í stoppinu svo sem rakamælir veðurstöðvarinnar og eldavél skips- ins en hún var hreinlega að liðast í sundur eftir allan veltinginn. Stjórnendur verkefnisins í Shann- on komu í heimsókn um borð í varð- skipið, menn sem varðskipsmenn höfðu átt dagleg samskipti við í gegnum Inmarsat C-tækin, og var það ánægjuleg heimsókn. Aftur í veðurathuganir Haldið var aftur út frá Cork 3. febr- úar og haldið á fyrri veður- athuganaslóðir. Eins og við var að búast hreppti varðskipið hin verstu veður í ferðinni, væntanlega veð- urfræðingum verkefnisins til ánægjuauka en daglega voru okkur sendar afar nákvæmar þriggja daga veðurspár, miðaðar sérstaklega við þau svæði sem skipin voru á hverju sinni og oft fengum við fyrirmæli um að sigla í veg fyrir lægðirnar. Það kom fyrir að þegar við feng- um þessi fyrirmæli um að færa okk- ur til á svæðinu var stundum illa „ferðafært“ og einungis mögulegt að halda sjó. Í einu skeytanna frá veðurfræð- ingum í Shannon á Írlandi stóð eft- irfarandi þegar kröpp lægð var að nálgast hratt úr suðvestri: „It should be a very nice case“, og í öðru skeyti frá þeim stóð „Low no. 41 conside- red for the moment as the best Fast- ex case“. Ég skal alveg viðurkenna að ég var ekki jafn hrifinn og fyrrgreindir veðurfræðingar þegar ég las þessi skeyti frá þeim. Vindhraði á svæðinu var oftast um 35-40 hnútar (16-20m/ sek) flesta daga, og þegar vindur datt niður í 25-30 hnúta (12-15m/sek) höfðu sumir á orði að það væri kom- in blíða. Hæstu öldur langt yfir turninn Verst var veðrið dagana 14. og 15. febrúar, en þá blés hressilega eða frá 50 hnútum (25m/sek) upp í 80-90 Skólastjórinn og nemandinn Halldór B. Nellett og Guðjón Ármann Eyjólfsson um borð í varðskipinu Þór árið 2014. 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.