Morgunblaðið - 27.07.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Meðalsöluverð gefi ekki rétta mynd
Ósammála því að kindakjötsútflutningur borgi sig ekki Ódýrari afurðir dragi meðalsöluverðið niður
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Ég er ósammála þeirri niðurstöðu
að það borgi sig ekki að flytja út
kindakjöt,“ segir Svavar Halldórs-
son, framkvæmdastjóri Markaðsráðs
kindakjöts og Icelandic Lamb, í sam-
tali við Morgunblaðið, sem óskaði eft-
ir viðbrögðum við úttekt KPMG sem
unnin var fyrir atvinnu- og nýsköp-
unarráðuneytið á virðiskeðju afurða-
stöðva. Þar kom m.a. fram að það
borgaði sig ekki að framleiða kinda-
kjöt til útflutnings m.v. meðaltals-
söluverð og að hagræða mætti í virð-
iskeðju afurðastöðva. Skýrslan var
unnin skv. tillögu aðalfundar Lands-
„Ég hefði líka viljað sjá enn betri
greiningar á sóun í kerfinu. En það er
mjög margt gott í úttektinni, mikið af
gögnum, hún er vel uppsett og læsi-
leg og upplýsingar þar um verð-
myndun sem við höfum ekki haft áð-
ur.
Úttektin gefur okkur vissulega
upplýsingar og styður við það sem
við höfum talið okkur sjá, það eru lík-
lega miklir möguleikar til að hag-
ræða og gera betur, og varðandi út-
flutninginn þá eru einhverjir
markaðir sem skila ekki ásættanlegu
verði,“ segir Oddný Steina, sem
finnst að úttektin kalli á nánari skoð-
un vegna möguleika til sparnaðar í
ferlinu.
ráðs kindakjöts, og Unnsteinn Snorri
Snorrason, framkvæmdastjóri sam-
takanna.
„Það hefði mátt bera saman sölu-
verð hérlendis og erlendis á kjöti í
sambærilegum flokkum, eins og t.d.
hryggjum og lærum, það að nota
meðaltalskílóverð á kjöti í ósambæri-
legum verðflokkum gefur ekki rétta
mynd,“ segir Unnsteinn Snorri, sem
finnst jafnframt að spurningunum
sem settar voru fram hafi ekki verið
nægilega vel svarað, hann hefði viljað
sjá settar upp sviðsmyndir af mögu-
legum niðurstöðum, það hefði átt að
vera mögulegt miðað við gögn og for-
sendur sem lágu fyrir við gerð
skýrslunnar.
fóður og svo ódýrari hluta af skepn-
unni sem gengur illa að selja innan-
lands, eins og t.d. framparta og slög,“
segir Svavar, sem segir að lamba-
kjötssala hafi tekið við sér á Íslandi
undanfarið, sérstaklega eftir að farið
var að markaðssetja og selja lamba-
kjöt til ferðamanna.
Sammála meginniðurstöðunni
„Það er margt annað gott sem kom
fram í skýrslunni og ég er sammála
þeirri meginniðurstöðu að það megi
hagræða í sláturhúsa- og afurða-
stöðvakeðjunni.“
Undir orð Svavars taka Oddný
Steina Valsdóttir, formaður Lands-
samtaka sauðfjárbænda og Markaðs-
samtaka sauðfjárbænda 2017.
„Það er hæpið að nota meðaltalsút-
reikninga, enda er oft á tíðum verið
að flytja út afurðir sem lítið verð fæst
fyrir, eins og t.d. afskurð í gæludýra-
Morgunblaðið/Jim Smart
Lambakjöt Má hagræða í greininni?
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Þátttaka yngstu fæðingarárganga
barna hér á landi í almennum bólu-
setningum á árinu 2017 er ekki við-
unandi. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu sóttvarnalæknis um þátt-
töku í almennum bólusetningum á
Íslandi á árinu 2017, sem birt hefur
verið á vef Embættis landlæknis.
Þátttakan er svipuð og á árinu 2016,
þar sem hún var mun lakari en áður
hafði tíðkast.
„Ljóst er að þátttaka í bólusetn-
ingum við 18 mánaða og 4 ára aldur
hér á landi er ekki ásættanleg og ef
fram heldur sem horfir, þá geta
blossað upp bólusetningasjúkdómar
sem ekki hafa sést um árabil,“ segir í
skýrslu sóttvarnalæknis. Í því sam-
hengi er bent á að um þessar mundir
geisar langvinnur mislingafaraldur í
Evrópu og víða annars staðar hafa
mislingar stöðugt haldið fótfestu.
Unnið að auðveldara eftirliti
Á undanförnu ári hefur verið lagt í
vinnu við að auðvelda heilsugæslum
eftirlit með þátttöku í bólusetning-
um. „Vonast er til að hægt verði að
merkja sjúkraskrár barna sem eru
ekki bólusett að fullu til að nota megi
tækifærin þegar þau koma á heilsu-
gæsluna í öðrum erindum til að gefa
bólusetningar sem vantar eða gefa
tíma í bólusetningu hið fyrsta,“ segir
m.a. í skýrslunni hvað varðar úrbæt-
ur.
Óviðunandi þátttaka í bólu-
setningum barna hérlendis
Varasöm þróun ef áfram dregur úr þátttöku á næstu árum
Thinkstock
Óviðunandi Dregið hefur úr þátt-
töku í grunnbólusetningu barna.
„Þú getur tekið
manninn úr Eyj-
unum, en þú getur
aldrei tekið Eyj-
arnar úr mann-
inum,“ sagði Elliði
Vignisson, nýráð-
inn bæjarstjóri
Ölfuss, í samtali
við Morgunblaðið,
sem spurði við
þetta tilefni
hvernig það legðist í hann að flytjast
frá Vestmannaeyjum.
Ráðning Elliða í stöðuna var sam-
þykkt á fundi bæjarstjórnar snemma
í gærkvöldi.
Elliði hefur formlega störf 8. ágúst
næstkomandi, en hann var áður
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í 12 ár.
„Tilboðin voru fjölmörg, ég var að
hugsa um að gera kaflaskipti og færa
mig í einkageirann, en svo fór ég að fá
vink héðan og þaðan varðandi stjórn-
un sveitarfélaga. Ég kolféll fyrir Ölf-
usi og stemningunni yfir því sam-
félagi. Ölfusið stendur frammi fyrir
sögulegum tækifærum til vaxtar og til
að bæta enn frekar það góða starf
sem þar hefur verið unnið. Ég stend
bara auðmjúkur frammi fyrir þeim
tækifærum,“ segir Elliði og vitnar í
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar
að lokum: „Hamingjan er hér!“
ernayr@mbl.is
Elliði
bæjarstjóri
Ölfuss
Samþykkt á fundi
bæjarstjórnar í gær
Elliði
Vignisson
Veðrið hefur skánað nokkuð á suðvesturhorninu
og eflaust margir orðnir spenntir að fara hring
eða tvo á vélfákunum.
Leðurklæddir knaparnir hittast gjarnan á Ing-
ólfstorgi á mótorhjólunum og skiptast á sögum
af þeysireið um þjóðvegina.
Þessi bjarthærði ungi maður virti áhugasamur
fyrir sér gljáandi krómið og skærbleikan elds-
neytistankinn á einu mótorhjólanna þar í gær.
Rennur af stað ungi riddarinn
Morgunblaðið/Ómar