Morgunblaðið - 27.07.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018
HAFNARFJARÐARBÆR
RÁÐHÚS HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 6
ÞJÓNUSTUVER
OPIÐ FRÁ KL. 8.00 – 16.00
ALLA VIRKA DAGA
585 5500
hafnarfjordur.is
SKIPULAGSLÝSING
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 23maí s.l. breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar
vegna færslu á háspennulínu við Hamranes.
Þegar vinna við gerð aðalskipulagstillögu hefst skal sveitarstjórn taka saman lýsingu á skipulagsverkefni þar sem fram kemur hvaða
áherslur sveitarstjórn hafi við aðalskipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli,
svo sem um kynningu og samráð við skipulagsgerðina gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.
Lýsingu er hægt að nálgast á hafnarfjordur.is.
Skriflegar ábendingar sendist á: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
eigi síðar en 9. ágúst 2018.
Þormóður Sveinsson
Skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar
Umhverfis- og skipulagsþjónusta, Norðurhella 2, 221 Hafnarfjörður,
Sími 585 5500www.hafnarfjordur.is
BreytingáaðalskipulagiHafnarfjarðar
vegnabráðabirgðaflutningsáHamraneslínu Iog II.
Hagnaður Landsbankans á öðrum
ársfjórðungi var 3,5 milljarðar
króna. Til samanburðar var hagnað-
ur bankans 5,1 milljarður í sama árs-
hluta á síðasta ári. Virðisbreytingar
útlána voru jákvæðar um 703 millj-
ónir á fjórðungnum en þær voru hins
vegar neikvæðar um 478 milljónir á
öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Hreinar vaxtatekjur Landsbank-
ans drógust saman á milli ára og
námu 9,8 milljörðum á síðasta árs-
fjórðungi, borið saman við 10,2 millj-
arða í fyrra. Þjónustutekjur námu
2,2 milljörðum og breyttust lítið á
milli ára.
Ný útlán til viðskiptavina á öðrum
ársfjórðungi voru um 172 milljarðar
króna. Að teknu tilliti til afborgana,
virðisbreytinga og fleiri þátta hækk-
uðu heildarútlán um 53 milljarða
króna á fjórðungnum.
Heildareignir Landsbankans í lok
júní námu 1.250 milljörðum króna.
Eigið fé nam 232 milljörðum króna
og eiginfjárhlutfallið var 24,1%. Lág-
markseiginfjárkrafa Fjármálaeftir-
litsins fyrir Landsbankann nemur
21,4% .
Tekjuauki á fyrri árshelmingi
Þegar litið er til fyrstu sex mánaða
ársins var hagnaður Landsbankans
11,6 milljarðar króna, borið saman
við 12,7 milljarða króna hagnað á
fyrri árshelmingi 2017. Hreinar
vaxtatekjur voru 19,5 milljarðar
króna og hækkuðu um 7,2% á milli
tímabila. Hreinar þjónustutekjur
námu 3,9 milljörðum króna, en þær
námu 4,4 milljörðum króna á fyrri
helmingi síðasta árs.
Rekstrarkostnaður bankans nam
12,2 milljörðum króna á fyrri helm-
ingi ársins sem er hækkun um 0,9%
miðað við sama tímabil árið 2017.
Vaxtamunur eigna og skulda nam
2,7% fyrstu sex mánuðina en var
2,5% á sama tímabili í fyrra.
Árangur af hagræðingu
Lilja Björk Einarsdóttir banka-
stjóri segir í tilkynningu að afkoman
sýni að rekstur bankans sé traustur,
hvort sem litið sé á tekjur, útlán eða
rekstrarkostnað. „Árangur af hag-
ræðingu í rekstri Landsbankans sést
m.a. á því að rekstrarkostnaður helst
stöðugur þrátt fyrir umtalsverðar
fjárfestingar sem tengjast áfram-
haldandi kerfisuppbyggingu bank-
ans, netöryggismálum og framþróun
í stafrænni tækni.“ Hún segir útlán
og innlán hjá Landsbankanum hafa
aukist talsvert milli tímabila sem
endurspegli bæði vaxandi umsvif í
þjóðfélaginu og aukna markaðshlut-
deild bankans sem mælist nú 37,9%
meðal einstaklinga og 37,1% meðal
fyrirtækja.
Hagnaður á öðrum árs-
fjórðungi 3,5 milljarðar
Ný útlán Landsbankans námu um 172 milljörðum króna
Morgunblaðið/Golli
Landsbanki Lilja Björk segir rekstrarkostnað hafa haldist stöðugan þrátt
fyrir umtalsverðar fjárfestingar í kerfisuppbyggingu og netöryggismálum.
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær Bubba Morthens tónlistar-
mann og Ríkisútvarpið ohf. til að
greiða Steinari Berg Ísleifssyni,
fyrrv. hljómplötuútgefanda, 500
þúsund krónur í miskabætur fyrir
meiðyrði Bubba um Steinar Berg.
Dómsmálið varðar ummæli sem
Bubbi lét falla í sjónvarpsþættinum
Popp- og rokksaga Íslands á RÚV í
mars 2016 auk ummæla sem hann
lét falla á Facebook og í fjölmiðlum
í kjölfarið. Var RÚV og Bubba
hvoru um sig gert að greiða Stein-
ari Berg 250 þúsund krónur í
miskabætur. RÚV og Bubba ber
einnig að greiða tvær milljónir
króna óskipt í málskostnað.
Steinar Berg höfðaði mál á hend-
ur Bubba og RÚV árið 2016 fyrir,
eins og áður segir, ummæli sem
Bubbi lét falla í sjónvarpsþætti á
RÚV, á Facebook og í samtölum við
fjölmiðla. Bubbi sakaði þar Steinar
Berg um að hafa sem útgefandi
hans brotið á sér er hann starfaði í
hljómsveitunum Utangarðsmönnum
og Egó á níunda áratugnum. Stein-
ar Berg sagði, í samtali við mbl.is
haustið 2016, ummælin vera ósönn.
Meðal þeirra ummæla Bubba
sem héraðsdómur féllst á að væru
ærumeiðandi í garð Steinars Bergs
og dæmdi dauð og ómerk eru: „Út-
gefandinn hann mokgræddi á okk-
ur, það er bara þannig,“ sem var
haft eftir Bubba í þættinum Popp-
og rokksaga Íslands; og: „Fyrir-
tækið nýtti sér reynsluleysi mitt
okkar og yfirburðastöðu sína, þann-
ig var það,“ sem eru ummæli sem
Bubbi lét falla á Facebook 14. mars
2016.
Fyrir utan það að dómurinn taldi
ummælin fela í sér ærumeiðandi að-
dróttanir, taldi hann einnig að RÚV
hefði af stórfelldu gáleysi endursýnt
umræddan þátt þrátt fyrir yfirlýs-
ingu Steinars um málshöfðun. RÚV
hefði síðan ennfremur stuðlað að
víðtækri dreifingu meiðyrðanna
með því að gefa þættina út á DVD-
diskum.
Í frétt á vef RÚV í gær segir
Bubbi að hann hafi aldrei dróttað að
lögbroti með ummælum sínum og
að efnislega eigi ummælin mikið er-
indi í samfélagsumræðunni.
Greiða hálfa millj-
ón króna í bætur
Bubbi og RÚV
töpuðu meiðyrða-
máli í héraðsdómi
Morgunblaðið/Golli
Dómsmál Bubbi þarf að greiða
250.000 krónur í miskabætur.