Morgunblaðið - 27.07.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 27.07.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Róbert Aron Róbertsson, fram- kvæmdastjóri fasteignaþróunar- félagsins Festis, telur að hægja muni á verðhækkunum á nýjum og vel stað- settum fasteignum. „Við teljum að tímabil mikilla verð- hækkana sé að baki. Við teljum að verðið muni hækka í takt við verðlag á næstu árum. Við gerum ekki ráð fyrir mikið meiri hækkunum,“ segir Róbert Aron. Tilefnið er við- tal í Morgun- blaðinu í gær við Magnús Árna Skúlason, hag- fræðing og fram- kvæmdastjóra Reykjavík Econo- mics. Kom þar fram að meðalverð seldra fasteigna er að hækka. Til dæmis hefðu íbúðir fyrir fyrstu kaup- endur hækkað um tugi prósenta í verði á nokkrum árum. Um 300 íbúðir á Héðinsreit Róbert Aron segir starfsmenn Festis fylgjast grannt með markaðn- um. Þá til dæmis hvernig spennandi og vel staðsettar eignir miðsvæðis eru verðlagðar og hvernig þær seljast. Verðþróunin sé skoðuð með hliðsjón af undirbúningi félagsins að uppbygg- ingu íbúða á Héðinsreit. Hann segir deiliskipulagsvinnu á Héðinsreit á lokametrunum. Að því loknu geti hönnun farið í fullan gang. Nú sé miðað við um 300 íbúðir á reitn- um. Þar af sé miðað við um 200 íbúðir á þeim hluta reitsins þar sem Festir er í forsvari. Athygli vekur að nú er til sölu tölu- verður fjöldi nýrra íbúða í miðborg- inni sem kosta yfir 75 milljónir. Spurður hvernig hann meti eftir- spurnina eftir íbúðum í þessum verð- flokki segir Róbert Aron að almennt reyni kaupendur að gera góð kaup. „Markaðurinn fyrir íbúðir sem kosta yfir 75 milljónir er auðvitað lít- ill. Ef margar slíkar íbúðir verða byggðar getur svo farið að þær seljast ekki. Við erum ekki að horfa á slíkt meðalverð í plönum okkar fyrir Héð- insreitinn. Við ætlum að reyna að búa til góða blöndu og vera samkeppnis- hæf í verði. Svo verða auðvitað líka minni íbúðir.“ Kaupverðið trúnaðarmál Fram kom í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins, í síðustu viku að Fest- ir hefði selt byggingarlóðir félagsins á Gelgjutanga. Róbert Aron segir söl- una eiga sér nokkurn aðdraganda. „Fjárfestar sýndu verkefninu áhuga. Þetta hófst með því að fast- eignasala hafði samband við okkur. Úr varð tilboð og svo hefur þetta ver- ið að mjakast áfram undanfarna mán- uði. Viðræðum lauk svo með undir- ritun samninga um daginn.“ Róbert Aron segir kaupverðið trúnaðarmál. Kaupandi var félagið U 14-20 ehf., dótturfélag Kaldalóns bygginga hf. sem er tengt Kviku banka (sjá fylgjugrein og hnotskurn). Með kaupunum tekur dótturfélag Kaldalóns yfir uppbyggingu í Voga- byggð. Þar hafði Festir látið forhanna 270 íbúðir í fjórum byggingum. Festir átti fjórar af fimm lóðum í Vogabyggð 1. Miðað við að lóðarverð sé 7,5 millj- ónir á íbúð er verðmæti lóðanna rúm- ir 2 milljarðar. Þær eru á eftirsóttum stað og verða margar íbúðirnar með sjávarsýn. Róbert Aron segir að- spurður að þessar teikningar séu fyrst og fremst hugmyndavinna. Það sé nýrra eigenda að útfæra verkefnið. Festir hafði átt byggingarlóðirnar lengi þegar undirbúningur að nýju skipulagi Vogabyggðar hófst. Fram- kvæmdir eru hafnar í hluta hverfisins sem verður með yfir þúsund íbúðir. Fram kom í Morgunblaðinu um daginn að Festir hefði endurmetið áform um hótel á Suðurlandsbraut 18. Þá væri félagið ekki lengur með áform um hótel á Héðinsreit. Félagið byggði Exeter-hótelið á Tryggvagötu sem verður opnað síðar í mánuðinum. Spáir nú minni hækkunum  Framkvæmdastjóri Festis telur nýtt skeið að hefjast á fasteignamarkaðnum  Tímabil mikilla hækkana sé að baki  Festir muni nú einbeita sér að Héðinsreit Tölvuteikningar/Rakel Karls ApS/Ikonoform Vogabyggð í Reykjavík Hér má sjá drög arkitekta að því hvernig hluti nýju byggðarinnar gæti litið út. Róbert Aron Róbertsson Nýr borgarhluti Sjávarsýn verður frá mörgum íbúðum í hverfinu. Með um 900 íbúðir » Fram kom í Viðskiptablaðinu í febrúar að Kaldalón bygg- ingar hf., fasteignafélag í eignastýringu hjá Kviku banka, hefði eignast meirihluta í félagi um uppbyggingu 176 íbúða við Vesturbugt, sem er steinsnar frá Héðinsreit í Reykjavík. » Alls hefði félagið rétt til að byggja um 600 íbúðir í Reykja- vík, Kópavogi og Garðabæ. » Með kaupunum á Gelgju- tanga hefur félagið skv. því lóðir fyrir tæplega 900 íbúðir. BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 FESTON BARSTÓLL kr. 58.300 20 - 60% afsláttur a f ú t s ö l u v ö r u m Ú T S Ö L U L O K Núkr. 34.980 SETUHÆÐ 65 CM -40% 1 0 % a f s l á t t u r a f n ý j u m v ö r u m L a u g a r d a g i n n 2 8 . j ú l í Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Allar almennar bílaviðgerðir Samkvæmt Creditinfo eiga fimm hluthafar um 82,66% í Kaldalóni byggingar hf. Þeir eru Nanna Björk Ás- grímsdóttir (22,8%), Gunnar Sverrir Harðarson (17,45%), Þórarinn Arnar Sævarsson (17,45%), Gunnar Henrik B. Gunnarsson (13,56%) og Lovísa Ólafsdóttir (11,4%). Þórarinn Arnar er fasteignasali hjá Re- max. Hann er tengdur fjölda fé- laga í gegnum Loran ehf. Nanna Björk er skráð til heimilis í Lúxemborg, líkt og eiginmaður hennar, fjárfestirinn Sigurður Bollason. Fleiri hluthafar hafa tengsl við Lúxemborg. Meðal hluthafa er t.d. félagið Charamino sem er skráð í Lúxemborg. Samkvæmt fyrirtækjaskrá Lúxemborgar er Einar Sveinsson, fjárfestir í London, skráður eini hluthafinn í félaginu. Sonur hans, Bene- dikt, er framkvæmdastjóri ís- lenska dótturfélagsins P126 ehf. Þá fer hann fyrir öðru dótturfélagi, Pei ehf. Benedikt er jafnframt hlut- hafi í félaginu EE Development sem hyggst reisa 65 íbúðir í Borgartúni 24 í Reykjavík. Margir eiga í Kaldalóni BYGGINGARRISI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.