Morgunblaðið - 27.07.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 27.07.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018 Á Sólfari Kátur ferðalangur bregður á leik á útilistaverkinu Sólfari við Sæbraut í Reykjavík. Verkið er óður til sólarinnar og mjög vinsælt myndefni meðal erlendra ferðamanna í höfuðborginni. Arnþór Vorið 2017 var Dalai Lama, andlegum leið- toga Tíbeta og frið- arverðlaunahafa Nób- els frá 1989, boðið að halda ræðu við útskrift nemenda frá Kaliforn- íuháskóla í San Diego. Margir kínverskir nemendur við skólann tóku þessu illa, sögðu Dalai Lama tákngerv- ing sundrungar, hann hefði að mark- miði að skilja Tíbet frá Kína. Um 5.000 kínverskir námsmenn eru við skólann í San Diego. Þeir hafa eigin samtök sem hófu baráttu gegn því að Dalai Lama fengi að tala undir merkjum skóla. Sendinefnd þeirra gekk á fund háskólarektors sem hafnaði kröfunni um að gera Dalai Lama afturreka, ræða hans yrði auk þess ekki um stjórnmál. Það reyndist rétt því að andlegi leið- toginn flutti tvær ræður, annars vegar um fjölbreytileika og hins veg- ar samkennd. Rök kínversku námsmannanna voru meðal annars að Dalai Lama yrði til þess að „spilla gleði“ þeirra. Þá kæmu margar fjölskyldur frá Kína til að verða við athöfnina og ræðumaðurinn særði þær. Dalai Lama væri „pólitískt viðkvæmur einstaklingur í Kína“ og þess vegna sýndu háskólayfirvöld litla tillits- semi og menningarlega virðingu með því að bjóða honum að flytja ræðu. Háskólayfirvöld sögðu Dalai Lama talsmann friðar, hnattrænnar ábyrgðar og þjónustu við mannkyn. Allt væru þetta háleitar hug- sjónir sem nemendur ættu að tileinka sér. Þessi áreitni kín- verskra námsmanna í garð 14. Dalai Lama (83 ára) er þjónkun við yfirvöld í Kína sem vilja ekki aðeins ráða yfir landi Tíbeta heldur einnig andlegum heimi þeirra. Þau vilja ákveða hver verði 15. Dalai Lama, kínverskur stjórn- arstimpill verði að staðfesta end- urholdgunina. Þessu hafna Tíbetar og segja að 14. Dalai Lama velji sjálfur arftaka sinn. Frekja námsmannanna gagnvart Dalai Lama og yfirvöldum háskól- ans er aðeins eitt dæmi af mörgum sem mætti nefna um að ein- staklingar og hópar segjast eiga rétt á „öruggu svæði“ þar sem þeir þurfi ekki að heyra eða sjá neitt sem raski ró þeirra. Óvænt árás á þingforseta Hér á landi höfum við kynnst því undanfarna daga hvernig pólitísk öfl vilja ráða skoðanamyndun í landinu með því að þagga niður í erlendum einstaklingi sem þeir eru ósammála. Umburðarlyndið gagnvart skoð- unum annarra er ekkert og þess er krafist að sjálft Alþingi sé „öruggt svæði“. Að þessu sinni beindist óþol- ið að forseta danska þingsins, Piu Kjærsgaard. Formenn allra flokka fluttu þings- ályktunartillögu sem samþykkt var einróma á Alþingi í október 2016 um viðburði á fullveldisafmælisárinu 2018. Alþingi skyldi koma saman til hátíðarfundar á Þingvöllum 18. júlí, daginn sem þingmenn Dana og Ís- lendinga rituðu undir sambands- lagasáttmálann árið 1918. Ríkis- stjórnin efnir til hátíðahalda 1. desember 2018. Þá verður öld liðin frá því að sambandslögin öðluðust gildi. Síðan varð að ráði að forseti danska þingsins, Pia Kjærsgaard, yrði heiðursgestur Alþingis. Mar- grét Þórhildur Danadrottning heiðr- ar íslensku þjóðina með komu sinni 1. desember. Stórdeilurnar vegna komu Piu Kjærsgaard á fund Alþingis eru angi af umræðum sem setja sterkan svip á stjórnmál líðandi stundar í Evrópu. Sjónarmið sem hún boðar í útlendingamálum voru fyrir nokkr- um árum kennd við öfgaskoðanir. Þau eru nú viðurkenndur hluti meg- insjónarmiða í evrópskum stjórn- málum. Þeir sem átta sig ekki á því er sama fólkið og áttaði sig ekki á því fyrr en þriðjudagskvöldið 17. júlí að Kjærsgaard mundi næsta dag tala sem gestur Alþingis. Fyrr þennan sama þriðjudag hafði forseti Alþingis á þingfundi boðið þeim sem vildi andmæla dag- skrá fundarins á Þingvöllum að gera það. Enginn bað um orðið. Þing- forsetinn fékk svo vitneskju um það í rútunni á leið til Þingvalla að þing- flokkur pírata ætlaði ekki að sækja hátíðafundinn. Píratar hafa löngum verið þekktir fyrir að sigla undir fölsku flaggi í von um ránsfeng með óvæntri árás. Misheppnuð atlaga Atlagan að Piu Kjærsgaard var dæmd til að mistakast og verða auk þess þeim til skammar sem að henni stóðu. Að svo varð birtist best í því hvernig píratarnir hafa farið úr einu vígi í annað á undanhaldinu. Full- trúa þeirra í forsætisnefnd Alþingis stóð einfaldlega á sama um erlenda gestinn. Píratinn hefur svo reynt að kenna forseta Alþingis um að sjálfur svaf hann á verðinum. Með fordæmingu sinni á við- horfum Kjærsgaard skipar Sam- fylkingin sér í hóp andstæðinga danskra jafnaðarmanna í útlend- ingamálum. Formaður danska jafn- aðarmannaflokksins nýtur á sama tíma vaxandi virðingar flokksbræðra í öðrum löndum en hér vegna harðr- ar útlendingastefnu sinnar. Slík fyr- irstaða kunni að stöðva fylgistap jafnaðarmannaflokka um alla Evr- ópu. Eftir að þingmenn luku störfum sínum á fundinum á Þingvöllum flutti forseti danska þingsins ávarp sitt. Hæfði efni þess vel tilefninu. Röksemdaskortur gagnrýnenda Kjærsgaard er svo mikill að nú nota þeir eftirfarandi kafla í ræðu hennar til að réttlæta andúð sína á henni: „Er ríkjasamband okkar var við lýði þótti Dönum Ísland vera það land þar sem hin upphaflega sjálfs- mynd norrænna manna var varð- veitt. Á 19. öld átti Ísland þátt í að kynda undir danskri þjóðerniskennd sem þá var í blóma. Litið var á Ís- land sem vöggu norrænnar menn- ingar. Þegar við Danir komum til Ís- lands finnum við fyrir land sem skipar sérstakan sess hjá dönsku þjóðinni. Hér sjáum við rætur okk- ar.“ Þeir sem hafa einhverja nasasjón af því sem sagt hefur verið um Ís- land í norrænum hátíðaræðum í ár- anna rás láta sér ekki bregða við þessi orð. Að taka þeim illa eða gera tortryggileg sannar enn hve langt er seilst í þágu lélegs málstaðar. Þurfi þingmenn að ganga af þingfundi á „öruggan stað“ vegna ummæla af þessum toga, ættu þeir ekki að fara í framboð. Útskúfun Gagnrýni á þennan texta í ræð- unni og tilraunir til að gera hann tortryggilegan staðfesta að ágrein- ingurinn vegna danska þingforset- ans snýst um að erlendur gestur megi ekki tala óáreittur á Alþingi nema hann hafi sömu skoðun í út- lendingamálum og píratar eða aðrir sem sætta sig ekki við aukna gæslu á landamærum eða varðstöðu um norrænan og evrópskan menningar- arf. Þetta er í ætt við viðhorfið hjá kín- versku námsmönnunum sem gengu þeirra erinda að banna Dalai Lama að flytja ræðu sína. Þetta er tilraun til útskúfunar í því skyni að hefta frjálsa skoðanamyndun. Þess vegna verður að snúast hart til varnar, rétt einstaklinga til skoðana sinna ber að vernda ekki síður en fullveldi þjóða. Eftir Björn Bjarnason » Þetta er tilraun til útskúfunar í því skyni að hefta frjálsa skoðanamyndun. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Krafa um útskúfun þingforseta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.