Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Þetta er bara ónýt vertíð“
Býflugur og geitungar fjölga sér minna Rólegt sumar hjá meindýraeyðum
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Þegar fólk fer að vinna í garðinum
og svona þá rekst það á geitunga hér
og þar. Ef það er gott veður þá er
hringt í okkur en annars ekki,“ segir
Ólafur Sigurðsson meindýraeyðir.
Lítið hefur verið af geitungum og bý-
flugum á höfuðborgarsvæðinu þetta
sumarið.
„Þetta er bara ónýt vertíð. Þegar
náttúran er svona þá er fólk rólegt í
tíðinni og sumarið rólegt hjá okkur.
Við erum aðallega að sinna því sama
og á veturna, eitrum fyrir silfur-
skottur og bjöllur heima hjá fólki og
annað slíkt,“ bætir hann við.
Guðmundur Halldórsson skor-
dýrafræðingur segir býflugur og
geitunga einfaldlega fjölga sér
minna þegar veður er vott og kalt.
„Kuldinn og bleytan hefur áhrif á
skordýrin, rétt eins og okkur. Mörg
skordýr fjölga sér yfir sumarið. Ef
það er kalt og blautt þá fjölga þau
sér hægar,“ segir hann.
Guðmundur segir ólíklegt að bý-
flugur og geitungar séu að drepast í
stórum stíl. „Lítil fjölgun er frekar
ástæða þess að minna er um geit-
unga og býflugur heldur en að veðrið
valdi því beinlínis að skordýr drep-
ist.“ Guðmundur bendir á að fæðu-
öflun verði erfiðari fyrir geitunga og
býflugur þegar veðrið er eins og það
hefur verið á suðvesturhorninu.
„Blómstrandi blóm eru afar mikil-
væg fæða fyrir geitunga og hunangs-
flugur. Þetta veðurfar verður til þess
að það er minna af þeim og því minna
af fæðu fyrir báðar tegundirnar.“
Spurður hvort bleyta og kuldi séu
vænleg fyrir einhver skordýr segir
Guðmundur svo ekki vera.
„Ég veit ekki til þess að það séu
nein skordýr á Íslandi sem vilji lægri
hita en er á sumrin. Þetta eru ein-
faldlega þannig dýr að það er mikil
breyting fyrir þau þegar hitinn
lækkar.“
Morgunblaðið/Eggert
Býflugur Þessar hafa varla látið sjá
sig á höfuðborgarsvæðinu í sumar.
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
„Það er búin að vera bræla suðaust-
an við Vestmannaeyjar svo flotinn er
búinn að vera mest hér vestan við
þær. Þetta er svona heldur köflótt,
var allt í lagi áðan og þá fengum við
270 tonn,“ sagði Bergur Einarsson,
skipstjóri á Hoffelli SU, skipi Loðnu-
vinnslunnar, í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Hoffellið landaði rúmlega 1.000
tonnum í síðustu viku, þ.m.t. 470
tonnum síðasta fimmtudag. Hélt
skipið úr höfn á ný á föstudagsmorg-
un sl. en ferðin á miðin sunnanlands
tekur um sólarhring. Spurður út í
næstu skref á yfirstandandi túr segir
Bergur það vel geta farið svo að
áhöfnin færi sig austar, en þar er bú-
ist við batnandi veðri næstu daga.
Venus NS, skip HB Granda hf, var
væntanlegt til Vopnafjarðar um ell-
efuleytið í gærkvöldi með 700 tonn af
makríl. „Á Síðugrunni tókum við eitt
holl og svo færðist fiskurinn til Vest-
mannaeyja, bara rétt austan við Eyj-
ar og var alveg upp í harða landi
þar,“ sagði Kristján Þorvarðarson,
skipstjóri á Venusi NS, við blaða-
mann Morgunblaðsins í gærkvöldi.
Þá var Víkingur AK, annað skip
HB Granda hf, með um 190 tonn af
makríl um hádegisbil í gær, sunnu-
dag, að sögn Kristjáns. Farið verður
beint í löndun og stefnir Venus strax
aftur út á miðin að löndun lokinni.
Verður það sennilega á þriðjudags-
morgun, að sögn Kristjáns.
Bræla við miðin suðaustan-
lands en þokkalegasta veiði
Hópur skipa vestan við Eyjar Venus NS með 700 tonn
Ljósmynd/Albert Kemp
Veiðar Hoffell SU hefur landað yfir
1.000 tonnum af makríl á vertíðinni.
Mikill snjór á
gönguleið Lauga-
vegar hefur ekki
haft teljandi áhrif
á sumarið, að
sögn staðarhald-
ara í Land-
mannalaugum.
Daniel Demaime
er einn skála-
varða í skálanum
í Hrafntinnu-
skeri, sem er vinsæll viðkomustaður
þeirra sem ganga Laugaveginn.
Segir hann að snjórinn hafi ekki
horfið fyrr en nýlega. „Hér hefur
rignt mikið undanfarnar vikur og því
er snjótímabilinu að ljúka núna. Í ár
var óvanalega mikið magn af snjó.
Það má líklegast skrifa á veturinn
sem var óvenju harður og lágt hita-
stig í sumar.“ Hann segir snjóinn
hafa gert göngufólki erfiðara fyrir í
upphafi sumars en umferð verið fín
þrátt fyrir veðurfar. „Þrátt fyrir
veður hefur verið ágæt traffík á
Laugaveginum í sumar, aðeins
minna en í fyrra þó. Það var aðeins
erfiðara að tjalda í Hrafntinnuskeri í
byrjun sumars því það var svo mikill
snjór á tjaldsvæðinu. Svo var mikil
bleyta sem getur verið leiðinleg.“
Hann mælir með því að göngufólk
gefi sér nokkra aukadaga við skipu-
lagningu á göngu um hálendið. „Við
mælum með því að fólk gefi sér svig-
rúm til að geta planað gönguna út
frá veðri.“ ninag@mbl.is
Óvenju
mikill snjór
á hálendinu
Fegurð Laugaveg-
urinn er sívinsæll.
Færri ganga
Laugaveginn í ár
„Hítará var orðin hrein innan við
viku frá því að skriðan, féll,“ segir
Jón Guðlaugur Guðbrandsson, bóndi
á Staðarhrauni í Borgarnesi, um
skriðuna sem féll úr Fagraskóg-
arfjalli 7. júlí og talin er hafa verið
yfir milljón rúmmetrar að stærð.
Skriðan stíflaði farveg Hítarár.
„Hítará rennur nú framhjá skrið-
unni og í farveginn í ána Tálma. Það
eykur magnið af vatni sem rennur í
gegnum landið hjá mér og rýfur
bakkana svolítið. Landgræðslan er
eitthvað að skoða hvað hægt er að
gera,“ segir Jón.
Ólafur Sigvaldason í Brúarhrauni
í Borgarnesi og formaður veiðifélags
Hítarár, segir ána orðna eðlilega og
að veiði hafi verið mjög góð í sumar.
Hítará að ná
sér og veiði góð
Vel heppnaðri hjólreiðahelgi á Akureyri lauk í
gær með Íslandsmeistaramóti í fjallabruni í Hlíð-
arfjalli þar sem keppni hófst við Strýtu og brun-
aði hver keppandi tvívegis niður fyrirfram
ákveðna braut. Betri tíminn gilti. Leiðin lá meðal
annars um Andrésar-brekkuna, sem skíðamenn
þekkja vel, og brautin endaði við neðri enda
stólalyftunnar Fjarkans. Keppt var í fullorð-
insflokki karla og kvenna og nokkrum yngri
flokkum beggja kynja.
Á föstudagskvöld fór fram keppni þar sem
hjólað var frá Siglufirði til Akureyrar og um
helgina var keppt í alls kyns hjólreiðum, m.a. var
sprettur upp Listagilið í miðbænum og fjalla-
hjólakeppni úr Hlíðarfjali niður í Kjarnaskóg.
Brunað og stokkið í Hlíðarfjalli
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vel heppnuð hjólreiðahelgi á Akureyri