Morgunblaðið - 30.07.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 30.07.2018, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 21 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Ganga um nágrennið kl. 11. Félagsvist með vinningum kl. 13. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar. Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá kl. 14.30-15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst. Úti boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega vel- komin. Vitatorg sími: 411-9450 Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Gjábakki kl. 9 Handavinna, kl. 13 Canasta. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, ganga kl. 10, handavinnu- hornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir vel- komnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Korpúlfar Gönguhópar Korpúlfa starfandi í allt sumar, hressir, bætir, kætir. Allir velkomnir kl. 10 alla mánudagsmorgna og miðvikudags- morgna, lagt af stað frá Borgum með gleði í hjarta. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30,morgunleikfimi kl. 9.45, upp- lestur kl. 11, gönguhópurinn kl. 14, bíó á 2. hæð kl. 15.30. Upplýsingar í s. 4112760. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ Ágúst Jóhanns-son fæddist að Teigi í Fljótshlíð 31. ágúst 1927. Hann lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 22. júlí 2018. Foreldrar Ágústs voru Mar- grét Albertsdóttir og Jóhann Jensson, bændur í Teigi. Ágúst kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Sig- rúnu Runólfsdóttur, þann 28. ágúst 1955. Hún er fædd 31. jan- úar 1930. Foreldrar hennar voru Unnur Þorsteinsdóttir og Run- ólfur Runólfsson í Bræðratungu í Vestmannaeyjum. Börn Ágústs og Sigrúnar eru: Unnur Ágústsdóttir, f. 6. júní 1955, Margrét Ágústsdóttir, f. 6. október 1957, Runólfur Ágústs- son, f. 9. apríl 1963, kvæntur Ás- laugu Guðrúnardóttur, f. 14. apríl 1973, og Jóhann Ágústs- son, f. 2. mars 1965, kvæntur Aðalheiði Gunnarsdóttur, f. 10. september 1966. Börn og stjúpbörn Unnar eru Börn Jóhanns eru Hugrún Sjöfn Jóhannsdóttir, f. 1991 og Ágúst Freyr Jóhannsson, f. 1993. Að lokinni skólagöngu í Barnaskóla Fljótshlíðarhrepps frá 8 til 12 ára aldurs, lauk Ágúst gagnfræðaprófi frá Hér- aðsskólanum á Laugarvatni árið 1946. Árin 1952-1953 stundaði hann nám við landbúnaðarskóla á Jótlandi auk þess sem hann vann á dönsku býli og kynnti sér búskaparhætti þar ytra. Árið 1955 hófu þau hjónin, nýgift, bú- skap að Teigi með foreldrum hans. Ágúst átti sæti í hrepps- nefnd Fljótshlíðarhrepps sam- fellt í 17 ár, um tíma sem vara- oddviti. Hann sat einnig árum saman í stjórn Fjárræktarfélags- ins og var formaður þess. Árið 1972 brugðu þau hjónin búi og fluttust á Selfoss þar sem Ágúst var starfsmaður Kaupfélags Ár- nesinga, fyrst sem lagerstjóri en síðan sem innheimtufulltrúi, allt til ársloka 1995, þegar hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Síðustu árin bjuggu Ágúst og Sigrún á Vesturgötu 7 í Reykja- vík. Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 30. júlí 2018, klukkan 13. Sigrún Krist- insdóttir, f. 1973, Védís Árnadóttir, f. 1977, Heiðar Valur Bergmann, f. 1979, Hallgrímur Árna- son, f. 1988, Salvör Bermann, f. 1990, og Katrín Árna- dóttir, f. 2000. Börn Margrétar eru Kristín Ágústa Krantz, f. 1977, gift Jeff Krantz, Franklín Jóhann Margrétarson, f. 1980, kvæntur Sólveigu Hallsteinsdóttur, og Lára Hrafnsdóttir, f. 1990. Dóttir Kristínar Ágústu er Mía Sólrún Hannah Krantz. Syn- ir Franklíns Jóhanns eru Jón Halldór Franklínsson, Ágúst Helgi Franklínsson og Maron Veigar Franklínsson. Börn og stjúpbörn Runólfs eru Skarphéðinn Án Runólfsson, f. 1987, Stefán Bjartur Runólfs- son, f. 1988, Eyvindur Ágúst Runólfsson f. 1995, Emilía Ósk Bjarnadóttir, f. 1997, Lana Sóley Magnúsdóttir, f. 2008 og Sigrún Erla Runólfsdóttir, f. 2014. Föðurbróðir minn Ágúst Jó- hannsson frá Teigi í Fljótshlíð er látinn tæplega 91 árs að aldri. Gústi frændi bjó ásamt Dúnu eig- inkonu sinni myndarbúi í Teigi 1 á uppvaxtarárum mínum en for- eldrar mínir voru bændur í Teigi 2. Teigsbæirnir eru tveir á sama hlaðinu og var því eðlilega mikill samgangur og samhjálp þegar á þurfti að halda þau tæplega 20 ár sem Gústi og Dúna bjuggu þar ásamt börnum sínum. Synirnir Olli og Jói voru enda mínir fyrstu leikfélagar þó þeir væru báðir nokkrum árum yngri en ég. Árið 1972 fluttist fjölskyldan á Selfoss og það var ekki laust við að ég velti því fyrir mér á þeim árum hversu erfitt það hlyti að vera fyrir Gústa að selja bústofn, vélar og jörð og skipta um starfsvettvang eins og hann gerði. Ég ímynda mér þó að það hafi auðveldað Gústa að flytj- ast burtu þar sem Jens, yngsti bróðir hans tók við búinu að Teigi 1. Gústi hóf störf sem innheimtu- fulltrúi hjá Kaupfélagi Árnesinga og þar starfaði hann fram á eft- irlaunaaldur. Bóndinn blundaði þó ávallt í Gústa og strax eftir að hann flutti á Selfoss byggði hann sér hesthús í útjaðri bæjarins og stundaði þaðan útreiðar og einnig hélt hann nokkrar kindur í húsinu. Gústi og Dúna voru tíðir gestir í Fljótshlíðinni, einkum á sumrin og í mörg ár voru þau með hjólhýsi í landi Hlíðarendakots hjá vini þeirra sem þar bjó og þar var Gústi ætíð með reiðhesta sína með sér. Gústi var glæsimenni og gæfu- maður, eignaðist fjögur mann- vænleg börn og átti frábæra eig- inkonu sem hefur stutt mann sinn í blíðu og stríðu í um 65 ár. Gústi var fluggreindur, aflaði sér menntunar í búfræðum í Dan- mörku á unga aldri og var síles- andi. Á þeim fjölmörgu árum sem ég og Hlín kona mín höfum heim- sótt Gústa og Dúnu, ýmist á Sel- fossi eða í Reykjavík, hafði hann alltaf frá mörgu að segja, þuldi heilu ljóðabálkana og rakti ættir og heiti örnefna og staða í okkar heimasveit. Allt fram á síðustu vikur fyrir fráfall sitt hringdi Gústi reglulega í Jens bróður sinn og spurði frétta af búskapnum í Teigi og í öll þau skipti sem ég heimsótti hann ræddum við um sveitina okkar. Hann spurði hvernig búskapurinn gengi en tveir af yngri sonum Jens og sambýliskona annars hafa nú tekið yfir búreksturinn á báð- um Teigsbæjunum. Eitthvað sem gladdi Gústa óskaplega mikið þeg- ar frá var gengið, en í Teigi er nú rekið stórbú. Þó heilsan hafi ekki verið góð síðustu árin þá átti Gústi margar góðar stundir og gott var að heim- sækja hann og rifja upp liðna tíð. Verst þykir mér að hafa ekki bet- ur lagt á minnið eða skrifað hjá mér allan þann fjölda vísna og frá- sagna sem fara nú með honum. Ég votta Dúnu, börnum þeirra og fjölskyldunni allri samúð. Minningin um Gústa frænda lifir. Guðbjörn Árnason. Ágúst Jóhannsson ✝ Sigmar Jónssonfæddist á Mæli- felli í Skagafirði 25. maí 1935. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans 23. júlí sl. eftir stutt en erfið veik- indi. Foreldrar hans voru hjónin Jón Dal Þórarinsson, f. 12.11. 1911, d. 23.2. 1997, og Sigurveig Jóhannes- dóttir, f. 4.7. 1915, d. 22.2. 2005, bændur í Tunguhlíð Lýtings- staðahreppi. Sigmar var elstur sex systk- ina, þau eru Jóhannes Þór, f. 1938, d. 1997, Bergþóra, f. 1939, d. 1940, Magnús Þórarinn, f. 1943, Hallur Steinar, f. 1953, og Ragnheiður Hrefna, f. 1954. Sigmar kvæntist Hlíf Jóhanns- dóttur hinn 13. apríl 1963. Hlíf, f. 15.7. 1939, er dóttir arvatni 1954 og fluttist til Reykjavíkur eftir það. Hann vann um tíma á Keflavíkur- flugvelli og síðar starfaði hann mikið við sölumennsku hjá fyr- irtækjum eins og Davíð S. Jóns- syni og Friðriki Bertelsen þang- að til hann varð hlutaeigandi að heildversluninni Vestu. Árið 1976 keyptu þau hjónin heild- verslunina S. Ármann Magn- ússon og ráku hana fram til árs- ins 2011. Sigmar var alltaf virkur í fé- lagsstörfum, var formaður Skag- firðingafélagsins í Reykjavík, stofnaði og var formaður Skag- firsku söngsveitarinnar ásamt því að koma af stað briddsdeild innan Skagfirðingafélagsins. Hann sat í stjórn Félags ís- lenskra stórkaupmanna og var virkur innan félagsins í mörg ár, hans helsta ástríða voru veiðar og þá helst laxveiðar á stöng og nutu hjónin þess áhugamáls sam- an. Útför Sigmars fer fram í Bú- staðakirkju í dag, mánudaginn 30. júlí 2018, kl. 15. hjónanna Jóhanns Sigurðar Jóhanns- sonar og Ólafar Guðrúnar Bjarna- dóttur. Börn Sig- mars og Hlífar eru Sveinn Dal, f. 1963, Sigrún Jóna, f. 1966, eignmaður hennar er Sigurður Guðmundsson, f. 1964, og Jóhanna, f. 1975, eiginmaður hennar er Atli Guðmundsson, f. 1989. Fyrir átti Sigmar soninn Jón Pál, f. 1960, d. 1993, móðir hans er Dóra Jónsdóttir. Hlíf á dótturina Ólöfu Guðrúnu, f. 1959, sem Sigmar gekk í föðurstað og ættleiddi síðar, eiginmaður Ólaf- ar er Sigurður Gunnarsson, f. 1949. Barnabörn eru 17 talsins og barnabarnabörnin 8. Sigmar ólst upp í Skagafirði fram á unglingsár, útskrifaðist frá Héraðsskólanum á Laug- Til þín, elsku pabbi. Þú ert ljós í myrkri minnar sálar minningarnar ylja á sorgarstund. Er þræddi eg ljósi byrgðar brautir hál- ar birti upp þín hlýja og góða lund. Þú gafst mér von í veður lífsins dróma, vinur, sem að aldrei gleymist mér, með nálægð þinni hvunndag léstu ljóma lífið varð mér sælla nærri þér. Þú verður hér í draumi dags og nætur ef dreyra þakin hugur kvelur mig, ef sorgir á mig herja og hjartað grætur huggunin, er minningin um þig. Ég kveð þig nú með djúpan harm í hjarta. Þú hefur lagt af stað þín síðstu spor. Til himnaföður liggur leið þín bjarta, liðnar þrautir, aftur komið vor. (Rúna Guðfinnsdóttir.) Þín elskandi dóttir, Sigrún. Sumarið er senn á enda og komin er kveðjustund. Það er skrýtið til þess að hugsa hvað lífið þýtur áfram, hversu auðvelt það er að gleyma sér, að staldra við og njóta í erli dagsins. Þegar mér var það ljóst að það væri ekki langt þar til hann afi myndi kveðja þetta líf rifjuðust upp fyr- ir mér góðar minningar. Ég var mikið hjá ömmu og afa í Aust- urgerði á mínum uppvaxtarárum og bjó þar af og til um tíma. Þeirra heimili var mér ávallt opið og þar var gott að vera. Afi vann mikið, hann var kaupmaður og því var mörgu að sinna. Hann kenndi mér ýmsa ósiði hvað varð- ar mat, honum fannst gott að borða. Cheeriosið var vel sykrað svo skafa mætti úr botninum, vel var sett af feiti og smjöri á fiskinn og rúgbrauðið. Á unglingsárum þegar ég bjó þar um tíma kom hann heim á hverju kvöldi með VHS spólur, eina nýja og aðra gamla. Sá gamli var oft sofnaður áður en myndin var búin og ósjaldan með vindil í hendi, þá var amma ekki langt undan að drepa í vindlinum. Ekki fór það fram hjá neinum þegar afi var sofnaður, það heyrðist milli hæða. Amma og afi héldu ávallt jólaboð á jóladag þar sem mikið var sungið og trallað og yfirleitt var kalkúnn um kvöldið fyrir börn og barnabörn. Ég man ekki eftir afa öðruvísi en brosandi og glöðum þegar fjölskyldan kom saman. Elsku afi, nú ertu kominn í sumarlandið, þar til við sjáumst næst. Svo viðkvæmt er lífið, sem vordagans blóm, er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina felur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund Sem aldrei mér hverfur úr minni. Og ertu gengin á guðanna fund, Það geislar af minningu þinni. (Fr. St. frá Grímsstöðum.) Elsku afi, farðu í friði, hafðu þökk fyrir allt og allt. Bjarni Már. Sigmar Jónsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefn- um. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hve- nær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargrein- unum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.