Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018
Ármúla 24 - s. 585 2800
ÚRVAL ÚTILJÓSA
Fjárfestirinn Steve Eisman, sem er
þekktastur fyrir að hafa séð fyrir
bandarísku veðlánakreppuna sem
stuðlaði að fjármálahruninu árið
2008, hefur greint Bloomberg frá að
hann hafi tekið skortstöðu í hluta-
bréfum Tesla.
Eisman segir vanda Tesla felast í
því að bandaríska rafbílaframleiðand-
anum gengur erfiðlega að koma því
til framkvæmdar sem Elon Musk,
stjórnanda og stofnanda fyrirtæk-
isins, dreymir um. „Elon Musk er
mjög snjall maður, en heimurinn er
fullur af snjöllu fólki og því verður
líka að takast að framkvæma hlutina.
Hann á við framkvæmdarvanda að
stríða,“ sagði Eisman um afstöðu sína
og bætti við að Tesla væri skammt á
veg komið í þróun sjálfakandi bíla en
að þar væri von á mikilli samkeppni
strax á næsta ári.
Eisman er ekki sá eini sem hefur
áhyggjur af framtíð Tesla en margir
fjárfestar eru órólegir yfir því hve
hratt gengur á handbært fé fyrirtæk-
isins. Hefur Tesla átt í vandræðum
með að ná framleiðslumarkmiðum
sínum og í síðustu viku lækkuðu
hlutabréf félagsins eftir að Wall
Street Journal greindi frá að Tesla
hefði beðið hóp birgja að endurgreiða
hluta af greiðslum þess til að hjálpa
fyrirtækinu að skila hagnaði. Tesla
segir umrædda beiðni eðlilegan hluta
af samningaviðræðum vegna yfir-
standandi viðskipta. ai@mbl.is
Steve Eis-
man veðjar
gegn Tesla
AFP
Óvissa Ungur bílaáhugamaður
skoðar Teslu í sýningarsal í Peking.
Fulltrúar Kanada, ESB, Japans,
Mexíkó og Suður-Kóreu munu hitt-
ast í Genf í vikunni til að ræða hvern-
ig megi bregðast við hótunum Do-
nalds Trump Bandaríkjaforseta um
að leggja tolla á innflutta bíla og
varahluti. Reuters greinir frá þessu
og hefur eftir embættismönnum sem
komið hafa að undirbúningi fundar-
ins.
Eins og greint hefur verið frá lét
Trump hefja rannsókn á því hvort
innflutningur á bílum geti ógnað
þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Sams
konar rannsókn var notuð til að rétt-
læta tolla sem Trump lagði á ál og
stál í byrjun þessa árs en talið er
mögulegt að Bandaríkjastjórn leggi
allt að 25% viðbótartoll á bifreiðar.
Gagnrýnendur forsetans hafa bent á
að tollarnir myndu hafa þau áhrif að
hækka verð á bílum, draga úr sölu
nýrra bifreiða og leiða til fækkunar
starfa hjá bílaframleiðendum um all-
an heim.
Er talið sennilegt að fundurinn í
Genf miði að því að samræma að-
gerðir komi til þess að Trump láti til
skarar skríða. Viðbrögð bílafram-
leiðslulandanna gætu falist í að
leggja sams konar tolla á innflutning
frá Bandaríkjunum eða kæra hækk-
aða tolla Trumps til Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar. Mun meiri
hagsmunir eru í húfi nú en þegar toll-
ar á ál og stál voru hækkaðir, en árið
2016 fluttu Bandaríkinn inn bíla fyrir
173 milljarða dala og bílaíhluti fyrir
70 milljarða, en fluttu á sama tíma
inn stál fyrir 21 milljarð. ai@mbl.is
AFP
Floti Raðir af bílum í höfninni í Richmond. Mikið er í húfi ef tollar hækka.
Bílaframleiðslu-
lönd þétta raðirnar
Gætu samræmt aðgerðir gegn Trump
Ef marka má ummæli Luigi Di Maio,
aðstoðarforsætisráðherra Ítalíu og
leiðtoga Fimmstjörnuhreyfingarinn-
ar, mun ný ríkisstjórn landsins ekki
efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um að
hætta að nota evruna.
Reuters greinir frá þessu en um-
mælin lét Di Maio falla í viðtali sem
birt var á sunnudag í dagblaðinu Cor-
riere della Sera í Mílanó. Var hann
spurður álits eftir að Beppe Grillo,
stofnandi Fimmstjörnuhreyfingar-
innar, sagði fyrr í vikunni að Ítalía
myndi þurfa að hafa það sem „plan B“
að hætta að nota evruna ef efnahags-
legar aðstæður krefðust þess, og að
halda ætti þjóðaratkvæðagreiðslu til
að fá það á hreint hvort meirihluti
landsmanna væri fylgjandi því að
gefa evruna upp á bátinn.
Grillo fer ekki með embætti í sam-
segir hann þjóðaratkvæðagreiðslu
ekki hluta af stjórnarsáttmálanum við
Norðurbandalagið, og ekki eitthvað
sem ríkisstjórnin hyggst ráðast í.
ai@mbl.is
AFP
Stefna Luigi Di Maio segir ekki von á þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna.
Þjóðaratkvæði um evru
ekki á dagskrá á Ítalíu
Stofnandi stjórn-
arflokks vill „plan
B“ sem valkost
steypustjórninni sem mynduð var í
vor en orð hans vöktu spurningar um
hvort Ítalía kunni að vera á leiðinni út
úr evrusamstarfinu. Di Maio hefur
núna tekið af allan vafa um málið og
Nicolás Maduro, forseti Venesúela,
greindi frá því í sjónvarpsávarpi í
síðustu viku að fimm núll yrðu skorin
aftan af gjaldmiðli landsins og að ný-
ir seðlar yrðu settir í umferð 20.
ágúst. Að sögn FT munu nýju seðl-
arnir ekki verða mikils virði ef verð-
bólgan í landinu heldur áfram á
sömu braut en AGS gerir ráð fyrir að
hún fari yfir milljón prósent á þessu
ári. Ætti seðillinn með hæsta nafn-
virðið, 500 bólivara seðill, að vera um
6 bandaríkjadala virði í lok ágúst, og
20 senta virði í
árslok.
Áætlað er að
um 20 milljarða
bólivara virði af
seðlum sé í um-
ferð í Venesúela í
dag og eru þeir að
mestu verðlausir.
Í ávarpi sínu
upplýsti Maduro
að gengi nýja bólivarsins yrði tengt
gengi rafmyntarinnar petro sem
ríkisstjórn landsins kynnti til sög-
unnar fyrr á árinu. Petroinn á að
vera tryggður með þeirri olíu sem er
að finna í jörðu í Venesúela en nánari
upplýsingar um þennan rafræna
gjaldmiðil liggja ekki á lausu. Rík-
isstjórnin segir að áhugasamir kaup-
endur hafi boðið jafnvirði 5 milljarða
dala þegar fyrstu petro-myntirnar
voru boðnar út en ekki hefur verið
greint frá hvert þeir peningar hafa
ratað.
„Ríkisstjórn Venesúela hefur enn
valdið til að búa til fleiri petro-mynt-
ir. Að tengja gengi [nýja] bólivarsins
við petro-myntir er því ekki ekki svo
frábrugðið því að tengja bólivarinn
við sjálfan sig,“ hefur FT eftir hag-
fræðingnum Francisco Rodríguez
hjá fjárfestingarbankanum Torino
Capital í New York. ai@mbl.is
Fimm núll klippt af bólivarnum
Nýir seðlar fara
í umferð í ágúst
Nicolás Maduro
Sonny Perdue, landbúnaðarráð-
herra Bandaríkjanna, segir stjórn-
völd þar í landi ætla að greiða bænd-
um bætur vegna þess tjóns sem þeir
hafa orðið fyrir vegna tolla sem aðr-
ar þjóðir hafa lagt á bandarískar
vörur út af nýjum tollum Donalds
Trumps.
Að sögn Reuters verður greiðsl-
unum beint til bænda sem rækta
sojabaunir, dúrru, maís, hveiti, bóm-
ull og einnig til mjólkurbýla og
svínabúa en áætlað er að bandarísk-
ur landbúnaður muni tapa um 11
milljörðum dala vegna hefndartolla
viðskiptaþjóða Bandaríkjanna.
Bandaríkjastjórn hyggst leggja 12
milljarða dala til hliðar til að bregð-
ast við áhrifum af tollastríðinu sem
Trump hefur hrundið af stað.
Í viðtali við Reuters, á fundi land-
búnaðarráðherra G20 ríkjanna í
Buenos Aires á sunnudag, sagði
Perdue að á bilinu 7-8 milljarðar
dala yrðu greiddir út til bændanna.
„Augljóslega mun þetta ekki bæta
þeim tjónið að fullu,“ sagði hann og
bætti við að um 200 milljónir dala
yrðu notaðar til að greiða leið banda-
rískra landbúnaðarvara inn á nýja
markaði. Bæturnar verða aðeins
greiddar vegna yfirstandandi upp-
skeruárs og sagði Perdue að stjórn-
völd hygðust ekki greiða bætur til
frambúðar. ai@mbl.is
Bandarísk stjórnvöld
bæta tjónið að hluta
AFP
Vandi Svínabændur eru meðal
þeirra sem gjalda fyrir tollastríðið.
Bændur fá
greiðslur
vegna tolla