Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 16

Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Viðtal The WallStreet Journ-al um helgina við Devin Nunes, þingmann Repúblik- ana og formann nefndar þingsins um leyniþjónustumál, var mikið lesið, enda athyglisvert. Í viðtalinu er rætt um vinnubrögð Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, í forseta- kosningunum 2016 og aðdraganda þess að Trump tók við embætti forseta. Það sem komið hefur í ljós við rannsókn Nunes og fleiri er síður en svo til þess fallið að auka traust á FBI eða sannfæra almenning um að sú mikilvæga stofnun standi utan og ofan við átök stjórnmálanna. Í inngangi viðtalsins segir WSJ frá því að rannsókn á vinnubrögð- um FBI hafi leitt í ljós að FBI hafi notað heimildarmenn gegn Trump í kosningabaráttunni, að stofnunin hafi orðið sér úti um heimild til hlerunar hjá Trump byggða á skýrslu sem unnin var fyrir kosningavél Hillary Clinton, og að eftir kosningar hafi starfs- menn Obama forseta misnotað að- stöðu sína til að fylgjast með liðs- mönnum Trumps. Nunes lýsir miklum áhyggjum af því sem FBI gerði og raunar einnig af viðbrögðum fjölmiðla. Hann segir að margt af því sem komið hafi upp í Bandaríkjunum sé nokkuð sem komi upp í ríkjum sem Bandaríkjamenn líti á sem vandamálaríki. „Það er stjórn- málaflokkur sem stýrir leyniþjón- ustustofnunum og stjórnar fjöl- miðlunum, allt til þess að tryggja að þessi flokkur haldi völdum,“ segir Nunes og bætir við að ef Bandaríkin fari þessa leið sé þar ekki lengur um að ræða virkt lýðræði. Hann segir að eitt af því sem vakið hafi athygli hans og orðið til þess að hann hafi farið að gruna að ekki væri allt með felldu hafi verið þeg- ar lítill hópur af starfsmönnum Obama hafi skyndilega farið að gera nýtt öryggismat tveimur vik- um áður en Trump átti að taka við embætti og farið að halda því fram að Rússar hafi unnið sér- staklega að því árið 2016 að fá Trump kosinn forseta. „Enginn neitar því að Rússarnir voru að reyna að ata Hillary Clinton auri vegna þess að allir jarðarbúar – þar með taldir Rússar – trúðu því að hún mundi vinna,“ segir Nu- nes. Þess vegna hafi ekki verið neitt vit í því þegar þessu hafi ver- ið snúið á haus og fullyrt að þetta hafi snúist um að fá Trump kjör- inn forseta. Fyrir Bandaríkin skiptir miklu að rannsókn sú sem Nunes vinnur að klárist og að allt sem máli skiptir komi upp á yfirborðið. Ef rétt er, sem flest bendir til, að FBI hafi verið misnotuð í forseta- kosningunum er nauðsynlegt að tryggja að ekkert þvílíkt end- urtaki sig. Þess vegna er til dæm- is óskandi að Trump verði við beiðni nefndar Nunes um að létta leynd af gögnum sem kunna að varpa skýrara ljósi á þessi mál. En það er líka mikilvægt fyrir marga blaðamenn og áhrifamikla fjölmiðla að láta ekki skoðun sína á Trump hafa áhrif á umfjöllun um þessi mál. Þau dæmi hafa því miður iðulega sést en enginn fjöl- miðill sem tekur sig alvarlega get- ur leyft sér slíkt. Nauðsynlegt er að fá botn í rannsókn á þætti FBI í forseta- kosningunum bandarísku 2016} Óhreint mjöl Launakostnaðurhefur hækkað gríðarlega á liðnum árum eins og stjórn- endur úr mat- vælageiranum bentu á í samtölum við Morgunblaðið á laugardag. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, nefnir að laun hafi á síðustu þremur til fjór- um árum hækkað um 30-40% en aðeins brot af þessari hækkun hafi farið út í verðlagið. Gengi krónu hafi framan af verið að styrkjast sem hafi hjálpað til, en gengið muni ekki styrkjast meira og því þurfi að hækka verð. Hann telur tímabili lágrar verðbólgu lokið og framundan sé 5-10% verðbólga næstu tvö árin eða svo. Aðrir taka í sama streng um kostnaðarhækk- anir sem séu byrjaðar að fara út í verðlagið og hljóti að halda því áfram. Ofan á þessar kostnaðarhækk- anir sem fyrirtækí í landinu hafa lent í leggjast miklar opinberar álögur á laun. Tryggingagjaldið var hækkað mikið í tíð vinstri stjórnarinnar og hefur lækkað allt of lítið síðan. Augljóst er fyrir rík- isvaldið að bregðast nú hratt við og lækka tryggingagjaldið til að skapa eðlilegra starfsumhverfi fyrir fyrirtækin í landinu og draga úr þörf á verðhækkunum. Sama á við um aðrar skattabreytingar sem beðið er eftir, svo sem gjöld á bifreiðar, eins og framkvæmdastjóri Bíl- greinasambandsins nefnir í sam- tali við Morgunblaðið í dag. Að óbreyttu stefnir í tuga prósenta hækkun bifreiða vegna breyttra staðla ESB. Þá bíða útgefendur bóka og fjölmiðla eftir þeim skattalækkunum sem þeim hefur verið lofað og veitir ekki af í bar- áttunni við erlenda keppinauta. Ríkisstjórnin ætti að kosta kapps um að viðhalda þeim stöð- ugleika sem hér hefur verið og tryggja fyrirtækjum viðunandi skattaumhverfi. Það er ekki hægt að ganga út frá því að mikill vöxt- ur með lágri verðbólgu og hratt vaxandi velmegun haldi áfram, en stjórnvöld þurfa að stuðla að því að þessi jákvæða þróun geti haldið áfram. Stjórnvöld þurfa að bregðast hratt við til að neikvæðar horfur verði ekki að veruleika} Blikur á lofti L ífsviðhorf fólks mótast oft af því hvar það er statt. Ungt fólk hefur aðra afstöðu til lífsins en þeir sem teknir eru að reskjast, þeir sem hafa lítið milli handanna hafa ann- að sjónarhorn en hinir sem eru loðnir um lóf- ana. Okkur hættir til þess að sjá allt undir okk- ar sjónarhorni og gera lítið úr skoðunum annarra. Ég ber enga virðingu fyrir skoðunum þeirra, sem telja að ákveðnir kynþættir séu annars flokks eða að eðlilegt sé að ákveðnar stéttir eða hópar njóti forréttinda og fríðinda umfram aðra. En ég vil gjarnan reyna að skilja hvers vegna fólk hugsar eins og það gerir. Nýlega sá ég vitnað í endurminningar rúss- neska rithöfundarins Varlam Shalamov sem var í fangabúðum í Síberíu í fimmtán ár undir harðstjórn Stalíns. Sjónarhorn fangans er auð- vitað annað en þeirra sem ganga frjálsir, en ályktanir hans vöktu mig til umhugsunar. Í lista yfir það sem honum varð ljóst í fangavistinni segir: „Ég áttaði mig á því að reiðin getur viðhaldið lífsneist- anum. Mér varð ljóst að það getur haldið fólki á lífi að vera sama um allt. Ég skildi hvers vegna fólk getur ekki lifað á voninni – það er engin von. Það getur heldur ekki lifað af á frjálsum vilja – hvaða frjálsi vilji er til? Fólk lifir á innsæi, tilfinn- ingu fyrir því að halda sér á lífi, rétt eins og tré, steinn eða dýr. Ég komst að því að maður á ekki að skipta mannkyninu upp í gott eða slæmt fólk heldur hugrakka og hugleys- ingja. Níutíu og fimm prósent hugleysingja geta orðið afar grimm, jafnvel banað öðrum, við vægustu hótun.“ Getum við dregið einhverjar ályktanir af sjónarhorni fangans í einræðisríki? Sjálfur hef ég séð hið prúðasta fólk taka stakkaskiptum í óvenjulegum aðstæðum. Í verkföllum eða mót- mælum rennur æði á suma sem eru rólynd- ismenn frá degi til dags. Skelli á stríð magnast ofsinn eflaust. Fyrir viku birtist skrautleg mynd í Morg- unblaðinu af prúðbúnum kirkjunnar þjónum. Flestir hrifust af myndinni, en í umræðum um hana heyrði ég að margir sem telja sig víðsýna hafa lítið umburðarlyndi í garð kirkjunnar. Ég er ósammála því viðhorfi, þó að ég skilji efa- hyggju vel. Í bók eftir Englendinginn William Lord Watts sem skrifuð var árið 1876 um för hans yfir Vatnajökul segir hann frá því er bóndi las hús- lestur á sunnudegi: „Allt heimilisfólkið var saman komið og sat á rúmunum, vel til fara og prúðmannlegt. Það var sungið, lesið og beðin bæn. Enginn getur efast um mildandi og sálbætandi áhrif fágaðra trúarbragða, hverju nafni sem þau nefnast, þegar þau eru ekki yfirskyggð af ofsatrú, og á þetta ekki hvað síst við um þá, sem búa við fremur örðugt veraldargengi.“ Á þessa leið hugsa ég, þótt ég sé ekki trúrækinn maður. Geri trúarbrögð öðrum gott skulum við ekki gera lítið úr þeim, ef þau eru ekki yfirskyggð af ofsatrú. Benedikt Jóhannesson Pistill Skoðanir annarra Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Krafa um sjálfbærni á öllumsviðum samfélagsinsverður sífellt háværari oger orðin að mikilvægu tak- marki fyrir fyrirtæki og stjórnvöld um allan heim. Í auknum mæli er rætt um kol- efnisfótspor, sem mælir hversu um- hverfisvænt ákveðið land eða fyrir- tæki getur talist. Allajafna er hugtakið notað sem almennt samheiti fyrir losun koltvísýrings eða gróður- húsalofttegunda út í andrúmsloftið, oft mælt á CO2 kvarða. Skýrsla sem unnin var af verk- fræðistofunni Eflu fyrir Vegagerðina og kom út á dögunum skýrir frá mengun er verður af völdum sam- gangna. Heildarlosun yfir 4.000 tonn Kemur þar fram að heildarlosun Íslands, samkvæmt mælingum Um- hverfisstofunar, var 4.670 þúsund tonn CO2 ígilda árið 2016. Alls var losun gróðurhúsalofttegunda frá farartækjum á vegum Íslands 920 þúsund tonn CO2 ígilda sama ár og valda bifreiðar því alls 20% af heild- arlosun landsins. Iðnaður er stærsti þátturinn í þessari jöfnu með 47%, samanborið við 20% í Evrópu. Undir iðnað heyra framleiðsla hráefna og byggingar- efna, en einnig framkvæmdir og byggingariðnaður. Þau hráefni og byggingarefni sem framleidd eru er- lendis fyrir íslenskar framkvæmdir teljast ekki menga hér á landi og er því hluti af þeirri mengun sem hlýst vegna samgönguinnviða falinn í kol- efnisbókhaldi annarra ríkja, er segir í skýrslunni. Takmarkanir ESB Losun frá stóriðju eða iðnaði er í sérstöku viðskiptakerfi ESB fyrir losunarheimildir (e. EU ETS). Kerfið hefur verið starfrækt innan ESB frá árinu 2005 og hafa EFTA-ríkin verið þátttakendur frá 2008. Fyrirtækjum innan viðskiptakerfisins er úthlutað ákveðnum fjölda losunarheimilda án endurgjalds á viðskiptatímabili 2013- 2020. Stefnt er að því að árið 2020 verði losun fyrirtækja innan við- skiptakerfisins 21% minni en árið 2005. Eftir það þurfa fyrirtækin að leita annarra leiða til að eiga heim- ildir fyrir losun sinni. Með það í huga að losun frá stór- iðju eða iðnaði er í kerfi ESB, þá má segja að losun vegna farartækja sé í raun stærsti losunarþátturinn sem ís- lenska ríkið ber ábyrgð á. Vistvænni mannvirki Í skýrslunni segir að ein stærsta uppspretta mengunar tengdrar sam- göngum sé brennsla jarðefnaelds- neytis í farartækjum. Þá þurfi einnig að horfa til annarra umhverfisáhrifa, s.s. mannvirkja sem raskað geta óspilltri náttúru og valdið sjón- mengun. Auk þess fari mikil hráefna- notkun í gerð samgöngumannvirkja. Ætlast er til að slík mannvirki vari til lengri tíma og því mikilvægt að fram- kvæmdirnar séu eins vistvænar og sjálfbærar og möguleiki er á. Í skýrslunni er lagt til að mannvirki séu byggð út frá vistvænni hönnun, sem horfir til lengri tíma og tekur mið af öllum vistferlum mannvirkis. Í vistvænni hönnun er mikilvægt að huga að þremur þáttum; um- hverfisáhrifum, að mannvirkið sé fjárhagslega hagkvæmt í gegnum allt ferlið og að það hafi jákvæð áhrif á samfélagið. Lagt er til að notast verði við slík vistvottunarkerfi í inn- viðaverkefnum Vegagerð- arinnar í framtíðinni. Vistvænni þróun samgangna á Íslandi Ásrún Rúdólfsdóttir, gæðastjóri Vegagerðarinar, segir umhverf- isstefnu Vegagerðarinnar taka mið af áskorunum nútímans í umhverfismálum. Rannsókn- arsjóður Vegagerðarinnar styrki t.a.m. umhverfisrannsóknir á við umrædda skýrslu. „Vega- gerð og samgöngur eru svo ná- tengd umhverfinu og tengjast með margvíslegum hætti inn í umhverfisumræðuna.“ Hún seg- ir stofnunina m.a. vera hluti af stýrihóp um áætlun um loft- gæði á Íslandi. „Allar styttingar á vegum og þar með styttingar vegalengda á milli staða stuðla að aukinni þjóð- hagslegri hagkvæmni og arðsemi. Einnig er umhverfislegur hagur fólginn í því að setja bundið slitlag og slíkt, þetta hefur allt áhrif á um- hverfið.“ Áætlun um betri loftgæði VEGAGERÐ OG UMHVERFIÐ Ásrún Rudolfsdóttir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vegagerð Frá vegaframkvæmdum í Dalasýslu í sumar. Vegagerðin leitast nú við að innleiða vistvottunarkerfi í innviðaverkefni sín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.