Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 19

Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 ✝ Helga Guð-mundsdóttir fæddist 22. júní 1929 í Reykjavík. Hún lést á Land- spítala Háskóla- sjúkrahúsi 21. júlí 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Sigríður Bene- diktsdóttir frá Eskifirði, f. 6. jan- úar 1896, og Guðmundur Helgason frá Hvítanesi í Hval- firði, trésmiður, f. 27. október 1888. Systkini Helgu eru: Gísli, f. 1930, Guðfinna, f. 1931, Guð- sjúkraliði, gift Rúnari Inga Garðarssyni, f. 1990, kvik- myndagerðarmanni. Eiga þau einn dreng, Gabríel Inga, f. 2012. 2) Júlía, f. 1995, há- skólanemi. Helga fæddist og ólst upp á Njálsgötu 59 í Reykjavík. Hún gekk í Austurbæjarskóla og síð- an í Verslunarskóla Íslands og lauk þaðan verslunarprófi árið 1949. Hún starfaði lengi á aug- lýsingaskrifstofu Morgunblaðs- ins og seinna á skrifstofu Áburðarverksmiðjunnar í Gufu- nesi þar sem hún hitti eig- inmann sinn. Helga tók sér frí frá vinnumarkaðinum á meðan hún ól upp dóttur sína og tók aftur til starfa við skrif- stofustörf hjá Landssíma Ís- lands við uppfærslu og skrán- ingu símaskrár. Útförin verður frá Fossvogs- kirkju hinn 30. júlí 2018 kl. 13. ríður, f. 1933, d. 1935, Kristján, f. 1934, d. 2018, Helgi, f. 1936d. 2017, Guðríður, f. 1938, og Eðvarð, f. 1939. Helga giftist Gunnari Þórarni Ólasyni, efnaverk- fræðingi, f. 29. jan- úar 1925, d. 29. júlí 1991. Barn þeirra er Þóra Guðrún Gunnarsdóttir, f. 1966, mynd- listamaður, eiginmaður hennar er Grétar Sölvason, f. 1964, múrarameistari. Börn þeirra eru 1) Klara Rakel, f. 1992, Í dag verður móðir mín lögð til hinstu hvílu. Margar minningar streyma fram, góðar og dýrmæt- ar. Mamma var afar góðhjörtuð kona og mátti ekkert illt sjá. Hún fóðraði stóran dúfnahóp á svöl- unum okkar í Sólheimum, föður mínum og nágrönnunum til mik- illar armæðu og dró stundum með sér heim flækingsketti til að gefa þeim rjómabland. Hún var styrktarforeldri hjá Action Aid þar sem hún styrkti indverskar stúlkur til menntunar löngu áður en byrjað var á þessu hér af Rauða krossinum og SOS. Einu sinni man ég eftir að hún kom með bréf sem hún hafði fengið sent frá Action Aid sem hún var afskaplega óánægð með. Í bréf- inu var henni tjáð að stúlkan sem hún styrkti til náms hefði verið tekin úr skólanum af foreldrum sínum til að fara að vinna þar sem fjölskyldan þurfti á peningum að halda. Þetta var meira en stóra hjartað hennar mömmu þoldi því í kjölfarið ákvað hún að styrkja frekar almenn málefni en að þurfa að þola svona vonbrigði aft- ur. Mamma lagði mikið upp úr námi og hve margar dyr það gæti opnað að vera vel menntaður. Sjálf hafði hún verslunarpróf frá Verslunarskólanum og vann við skrifstofu- og ritarastörf allan sinn starfsferil. Föður mínum kynntist hún þegar hún starfaði í Áburðarverksmiðjunni en þar vann hann einnig sem efnaverk- fræðingur. Mamma hafði alltaf mikið og gott samband við mömmu sína og systkini sín og hún elskaði allar mágkonur sínar sem systur. Afmælis- og sérstak- lega jólaboð voru mannmörg og skemmtileg og mamma, systir hennar Guðfinna og mágkonurn- ar hlóðu borðin kræsingum svo allir stóðu á blístri. Árið 1993 lenti mamma í bílslysi ásamt yngsta bróður sínum og eigin- konu hans. Blessunarlega lifðu þau öll en mamma hlaut heila- skaða sem breytti lífi hennar og okkar allra og gerði það að verk- um að hún bjó á hjúkrunarheimili til dauðadags. Starfsfólki Skóg- arbæjar þakka ég umönnunina og einnig starfsfólki gjörgæslu- deildar Landspítalans í Fossvogi fyrir hugulsama fylgd síðustu stundirnar. Þóra Gunnarsdóttir. Nú er ég minnist Helgu systur minnar rifjast upp margar minn- ingar frá bernsku- og æskuárum okkar. Við fæddumst öll systkin- in í húsinu við Njálsgötuna nr. 59 og var Helga okkar elzt. Við báð- ar á líkum aldri, vorum mjög samrýndar og góðar vinkonur. Hennar leiksystur voru einnig mínar. Við húsið okkar var stór garður og grasblettir þar sem við og vinir okkar lékum okkur á af- girtri lóðinni. Mörg sporin áttum við systurnar um Laugaveginn. Faðir okkar var trésmiður og oft færðum við honum eftirmiðdags- kaffið á verkstæðið, sem var á Laugavegi 1. Stöku sinnum átt- um við erindi í Sokkabúðina hjá Söru. Frú Sara var einkar væn kona og talaði við börn eins og fullorðin væru. Hún virtist þekkja öll fatanúmer viðskipta- vina sinna. Í þá tíð var Laugaveg- urinn okkar Oxfordstræti sem margir þekkja; iðandi mannlíf, bílaumferð og hávaði miðað við okkar friðsælu Njálsgötu. Þá fann ég hlýjuna og öryggið frá hendi Helgu systur minnar, enda var henni treystandi fyrir litlu systur sinni. Þegar við systurnar höfðum aldur til var eina fáan- lega vinnan að gæta barna. Það gerðum við og öfluðum okkur tekna og fengum þá stöðuheitið „barnapía“. Æskuár okkar liðu að mestu í félagsskap KFUK. Þar eignuðumst við góðar vin- konur og eigum fallegar minning- ar þaðan. Helga systir var afar minnug og átti auðvelt með allt nám, enda gott að leita til hennar á námsárunum. Hún var glaðlynd og þolinmóð, mjög góð systir og vinkona. Söknuður minn er mik- ill. Þá vil ég að endingu þakka starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar fyrir afar góða umönnun sem Helga systir mín naut þar eftir bílslys sem hún lenti í fyrir allmörgum árum. Þar leið henni alltaf mjög vel. Þóru, Grétari, Klöru Rakel, Júlíu og öðrum ástvinum sendum við systkinin, makar og frændsystk- inin okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Verði hún ætíð á Guðs vegum. Guðfinna. Föðursystir mín Helga Guð- mundsdóttir hefur kvatt okkur og hafið för sína í sumarlandið. Það er skammt stórra högga á milli hjá systkinahópnum sem ólst upp á Njálsgötu 59. Nú hefur elsta systkinið fallið frá og er Helga þriðja systkinið sem fellur frá á innan við ári. Helga var ævinlega þakklát fyrir stórt sem smátt. Hún naut samverustunda með Guðfinnu systur sinni sem sinnti henni ein- staklega vel eftir að Helga slas- aðist mikið í bílslysi. Þá naut hún þess að hitta fjölskyldu og frænd- fólk og rifja upp gamla tíma sem hún mundi svo vel. Hún lofaði allt sitt fólk við hvert tilefni og þar var ekkert til sparað við orðaval- ið. Þar sem Sibba mágkona henn- ar eldaði afar ljúffengan mat þá fékk hún að sjálfsögðu viðurnefn- ið „Sibba súperkokkur“. Helga hafði einstaklega gam- an af því að segja sögur og sér- staklega af pabba þegar hann var smábarn enda var hún stóra syst- ir og þurfti því oft að gæta hans. Ekki fylgdi sögunum hvort það hefði verið mikið í uppáhaldi hjá henni að gæta hans. Eitthvað virtust þær systur Helga og Guð- finna hafa þurft að kaupa sér smá frið frá honum stöku sinnum með því að gefa honum eina krónu fyr- ir sælgæti. Upp frá því fékk pabbi viðurnefnið „Ebbi króna“. Helga þakkaði ævinlega fyrir háan aldur og naut lífsins eins og heilsan leyfði. Helga var einstak- lega frændrækin, hvers manns hugljúfi og síðast en ekki síst var hún virkilega orðheppin og grín- isti fram í fingurgóma. Ef hún hefði verið á sínum besta aldri í dag þá er ég viss um að hún hefði verið uppistandari. Þeir eru ótelj- andi brandararnir sem komu frá henni. Þeim fjölgaði með hverju árinu sem leið. Það eru ófáar veislurnar sem hún kom í til okk- ar hjóna og þar sat unga fólkið í kringum hana og gjörsamlega veinaði af hlátri yfir því sem kom frá henni. Gömul æskuvinkona mín hafði á orði við mig í skírn- arveislu yngri dóttur minnar að Helga ætti bara að skella sér í uppistand þrátt fyrir háan aldur, hún myndi stórgræða á því. Ég vil fyrir hönd fjölskyldunn- ar votta Guðfinnu, Þóru, Grétari og fjölskyldu þeirra okkar dýpstu samúð. Sandra Eðvarðsdóttir og fjölskylda. Við Helga urðum vinkonur þegar við settumst í þriðja bekk í Verslunarskóla Íslands haustið 1947. Helga spurði hvort við ætt- um ekki að sitja saman og ég samþykkti það. Ég leit upp til Helgu því hún var tveimur árum eldri en ég. Ég mundi óljóst eftir Helgu og Finnu systur hennar þegar við bárum út Morgunblað- ið nokkrum árum fyrr. Við Finna vorum einnig fermingarsystur. Ég fékk góðar móttökur hjá fjöl- skyldu Helgu á Njálsgötu 59. Systkinin voru sjö og kölluð fal- legu systkinin því þau voru svo lagleg. Við vorum svo nánar við Helga að stundum gistum við hvor hjá annarri, til dæmis þegar framkvæmdir voru á heimilum okkar. Við vinkonurnar sóttum kristilegar samkomur en snið- gengum dansæfingar og ferðalög á vegum skólans. Helga var góð- ur námsmaður og náði hún sér- staklega góðum tökum á ensku sem kom sér vel þegar hún ferð- aðist til útlanda. Rúmfræði vafð- ist fyrir okkur Helgu svo Guð- mundur bróðir minn tók okkur í aukatíma. Helga fékk verðlaun á burtfararprófi og notaði styrkinn til utanfarar. Við Helga höfðum þann sið þegar við vorum í Verslunarskól- anum að sækja messu á aðfanga- dag í Dómkirkjunni hjá séra Bjarna Jónssyni. Annar prestur kom ekki til greina. Ég vildi að við hefðum getað haldið þessum sið áfram alla ævi en fjarlægð og fjölskylduhagir komu í veg fyrir það. Mér eru líka minnisstæðar samkomur KFUM og K í Vatna- skógi og Vindáshlíð. Sérstaklega er minnisstætt mót í Vatnaskógi sumarið 1950. Þar tjölduðum við saman, ég, Helga og Finna ásamt Grétu og Svövu og fleiri vinkon- um. Margar gleðistundir áttum við í saumaklúbbi okkar níu skóla- systra. Klúbburinn tvístraðist eftir skólagöngu þegar við flutt- um í ýmsar áttir en lifnaði aftur við um miðjan sjötta áratuginn. Aðeins þrjár eru nú á lífi. Eftir að við skólasysturnar úr VÍ tókum upp þann sið að hittast mánaðar- lega á Grand Hótel höfum við færst nær hver annarri og kynnst enn þá betur. Helga var falleg kona, fólk sem eitt sinn mætti henni á tröppun- um í Sólheimum spurði ná- grannakonu hennar hver þessi fallega kona væri. Helga var allt- af smekklega klædd og átti fal- legt heimili. Ég leit oft inn til hennar á laugardögum eftir fundi í Langholtskirkju og hún tók mér alltaf vel og sagðist einmitt hafa ætlað að hita kaffi. Ég sagði Helgu frá áhyggjum mínum yfir hinu og þessu en Helga stappaði í mig stálinu og sagði: „Þú miklar þetta fyrir þér, Anna.“ Síðustu árin sáumst við Helga sjaldan vegna veikinda. Helga sýndi ávallt æðruleysi og jafnað- argeð og henni varð tíðhugsað til skólasystkina okkar í símtölum. Innilegar samúðarkveðjur til ættingja og þá sérstaklega til Guðfinnu systur hennar og Þóru dóttur hennar. Anna G. Þorsteinsdóttir. Helga Guðmundsdóttir Elsku pabbi, tengdapabbi og afi. Þú kvaddir þenn- an heim 7. júlí sl. eftir erfið veik- indi síðasta hálfa árið. Aldrei er maður tilbúinn að kveðja en þetta er víst lífsins gangur. Við geymum minningar um ánægjulegar stundir í gegnum tíðina og efst í huga okkar eru ferðalög bæði innanlands og ut- an. Við fjölskyldan nutum þess að ferðast með ykkur mömmu. Það að skreppa upp í Heiðmörk eða á Þingvelli á góðum degi með nesti og kannski veiðistöng ef við átti var alltaf svo skemmtilegt. Og Spánarferðirnar eru ógleyman- legar en þar vorum við lóðsuð um staði sem þið mamma höfðuð far- ið á í fyrri ferðum ykkar og ýms- um fróðleik lætt að okkur. Borð- uðum á veitingastöðum þar sem þú þekktir jafnvel starfsfólkið frá Jónas Grétar Sigurðsson ✝ Jónas GrétarSigurðsson fæddist 9. sept- ember 1933. Hann lést 7. júlí 2018. Útför Jónasar fór fram frá Bú- staðakirkju 23. júlí 2018. fyrri tíð en þú hafðir gaman af spjalli og þó að tungumálið væri ekki alveg til staðar gastu alltaf gert þig skiljanleg- an. Og hitinn var þitt uppáhald. Þó að hitastigið væri 35-37 stig þá fannst þér það bara notalegt. Elsku pabbi, tengdapabbi og af,i við þökkum þann tíma sem við höfum haft með þér. Hvíli þú í friði. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Ingigerður, Róbert og Vigfús Heiðar. Kæra vinkona. Það var mér mik- ið áfall að frétta af sviplegu fráfalli þínu. Leiðir okk- ar lágu fyrst saman við afleys- ingar á leigubíl á BSR fyrir nokkrum árum. Við áttum ekki í miklum samskiptum fyrst um sinn, en auðvitað fórstu ekki fram hjá mér. Þú leist ekki svo vel út þá og barst með þér að hafa upplifað ýmislegt. Tíminn leið og segja má að við höfum fyrst átt almennileg sam- skipti þegar við sátum saman leyfishafanámskeið vorið 2017. Við náðum strax ágætlega sam- an, og mér er minnisstæður há- degisverður sem við snæddum á sushi-veitingastað, sem þú sagðir mér að þú hefðir mikið dálæti á. Svo mikið var dálætið, að þú vild- ir keyra alla leið frá Mjódd og inn í Hafnarfjörð. Við ræddum um daginn og veginn og áttum gæða- stund. Útlitslega hafðirðu tekið miklum stakkaskiptum. Þú ljóm- aðir af hamingju og það fór ekki framhjá neinum að þar fór ást- fangin stúlka, en skömmu áður hafði samband ykkar Jónbjörns hafist. Það var svo gaman að fá að fylgjast með ykkur á sam- skiptamiðlum og verða vitni að því hversu innilega ástfangin þið voruð og hvernig lífið lék við ykk- ur. Við fengum svo úthlutað leyfi til leigubílaaksturs á sama tíma og vorum í svolitlum samskiptum þá. Mér leið ávallt vel í nærveru þinni, það var afskaplega gaman að setjast inn í bíl hjá þér og eiga við þig gefandi samræður. Við bjuggum yfir svipaðri lífs- reynslu, sem getur gefið fólki dýpt ef það vinnur úr henni. Það átti svo sannarlega við um þig. Við ræddum um að hittast og fagna nýfengnu leyfi með því að fá okkur sushi, en af því varð því miður ekki. Þykir mér sárt að hafa ekki fengið að hitta þig aft- ur, því þó svo að kynni okkar hafi ekki verið löng eða samskiptin mikil þótti mér einkar vænt um þig. Þú varst glæsilegur fulltrúi stéttarinnar, hafðir mikla lífs- reynslu og gríðarlega útgeislun, svo af bar. Ég dýrkaði rámu röddina þína, heillaðist af ein- stökum hlátrinum og týndist ein- hvers staðar í fallegu brosi þínu. Elsku Þóranna mín. Megi Guð geyma þig og englarnir vefja örmum sínum utan um þig þang- að til við hittumst aftur. Kæri Jónbjörn og aðrir að- standendur. Mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tím- um. Guðmundur Óskar Bjarnason. Leiðir okkar Þórönnu lágu saman á Bifröst fyrir um áratug. Kynni okkar hófust þó ekki fyrir alvöru fyrr en ég réð hana til starfa hjá mér í versluninni í þorpinu. Þá var hún í fjarnámi við Háskólann á Bifröst en bjó á staðnum og þetta hentaði því fullkomlega. Án þess að hafa of mörg orð Þóranna Gunnarsdóttir ✝ Þóranna Gunn-arsdóttir fædd- ist 1. september 1981. Hún lést 16. júlí 2018. Útför Þórönnu fór fram frá Hafn- arfjarðarkirkju 27. júlí 2018. um það, þá var þetta samstarf mjög skemmtilegt. Lítil búð í litlu þorpi úti á landi gerir að verk- um að þeir sem starfa í búðinni vita allt um alla og meira en vilji er til. Við Þóranna áttum svo margar stundir saman þar sem við flissuðum að kaup- hegðun fólks, spáðum fyrir um kaup morgundagsins og gerðum áætlanir um að hækka sölutölur með því að auka framboð á sum- um vörum. Það voru ófáir dag- arnir þar sem við hlógum okkur máttlausar eftir tilraunir með grillaðan kjúkling, þar sem önn- ur hvor okkar gleymdi iðulega að taka úr frysti tímanlega og þurft- um svo að vera að hringja í fólk, seinka afhendingartíma og af- saka. Þóranna hafði yfir þeim einstaka eiginleika að búa, að ef hún gerði mistök, þá bara sagði hún það. Og svo fylgdi alltaf út- skýring sem var oftast svo fyndin og einlæg að það var ekki annað hægt en að hlæja með. Það var líka eiginleiki hjá Þórönnu, að finna alltaf broslegu hliðina á að- stæðum sem er mjög aðdáunar- verður hæfileiki sem ég hef reynt að tileinka mér. Við áttum sumt sameiginlegt eins og börn í sama bekk. Við gátum rætt ósanngjarnar kröfur kennara um heimanám, hvernig skólinn var ekki að skilja sér- þarfir nemenda og þannig mál- efni. Það var okkur hugleikið þar sem börnin okkar eru einstök og með hæfileika sem passa ekki al- veg inn í grunnskólakerfið. Þór- anna hafði áhyggjur af því að framkoma við hana væri öðruvísi því hún hefði eignast sína dóttur mjög ung, en ég gat sagt henni að ég, mun eldri, væri að upplifa það sama og við værum bara báðar að glíma við svipuð verkefni og áskoranir. Á þessum tíma lét ég son minn á einhverfurófi starfa í búðinni við áfyllingar og önnur einhæf og einföld störf tvisvar í viku. Það var á þeim dögum sem ég fór fyrr en Þóranna sá um að loka og hafði því umsjón með honum. Alltaf gat hún hrósað honum og ekki bara í hans eyru, heldur líka í mín daginn eftir. Þetta var hennar hæfileiki. Hún gat alltaf séð það jákvæða og góða, hitt var aukaatriði, enda lítil ástæða til að velta sér upp úr því. Í síðustu viku fór þessi sonur minn og sótti um vinnu í hverfisbúðinni og fékk, auk þess að fá metna starfsreynslu. Þetta veit ég að hún Þóranna mín sá um úr sum- arlandinu. Það hefur alla tíð frá Bifrast- arárunum haft áhrif á mig hvað Þóranna var dugleg að tjá sig og tilfinningar sínar, hún sagði fólk- inu sínu allt um sína ást og vænt- umþykju og geymdi ekkert af því fram á síðasta dag. Í dag kann ég að meta þennan lærdóm. Ég syrgi Þórönnu, en góðu minning- arnar og þakklætið fyrir kynnin eru sorginni yfirsterkari. Þór- anna auðgaði líf mitt og minna sona og það mun ekki gleymast. Elsku Eva Marý, ef ég get ein- hvern tímann gert fyrir þig helminginn af því sem mamma þín gerði fyrir Valdimar minn þá yrði ég mjög glöð. Fv. verslunarstjóri Samkaupa á Bifröst, Sylvía Ólafsdóttir. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.