Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 1. J Ú L Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 178. tölublað 106. árgangur
FRELSIÐ
FINNUR KÁRI
Í FLUGINU
FJÖL-
SKRÚÐUGAR
FÍGÚRUR
DANÍEL URRAR
FYRIR MÍNA
HÖND LÍKA
SKEMMTILEGS 30 MEGAS OG DANÍEL FRIÐRIK 33FISFLUG 12
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir það ekki
markmið breyttra mælinga á meng-
un bifreiða að auka tekjur ríkissjóðs.
Bílgreinasambandið áætlar að
breytingarnar muni að óbreyttu
hækka verð nýrra bíla um 20-30%
þegar þær taka gildi um áramót.
„Ég hef haft áhyggjur af þessu
máli og er með það til greiningar í
fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Þeirri vinnu er ekki alveg lokið. En
ég útiloka ekki að við bregðumst við
vegna þessara ábendinga,“ segir
Bjarni og boðar skattalækkanir.
Gjaldið lækkað í áföngum
„Ég sé fyrir mér lækkanir á
tryggingagjaldi í skrefum strax um
næstu áramót og svo aftur ári síðar.
Síðan stendur yfir vinna – við ræðum
um það í stjórnarsáttmálanum – við
að lækka neðra skattþrepið.“
Bjarni segir svigrúm til launa-
hækkana orðið lítið sem ekkert.
„Það er auðvitað með ólíkindum að
heyra verkalýðsleiðtoga að því er
virðist tala gegn betri vitund um að
það sé svigrúm á almenna markaðn-
um til tuga prósenta launahækkana
– kannski 20-30% launahækkana –
og af því að það hafi ekki skilað verð-
bólgu í fortíðinni muni það ekki gera
það í framtíðinni,“ segir Bjarni.
Gjaldtaka endurmetin
Fjármálaráðherra kveðst hafa áhyggjur af fyrirhugaðri hækkun gjalda á bíla
Ný mengunarviðmið leiði ekki til hærri gjalda Lítið svigrúm til launahækkana
MFjármálaráðherra segir… » 10
Nálgast aðra hópa
» Bjarni segist hafa beitt sér
fyrir endurskoðun á kjararáði.
» Kjörnir fulltrúar sem síð-
ast voru hækkaðir á kjördag
2016 séu komnir á sama ról
undir lok þessa árs og aðrir
hópar.
„Þegar lagt var af stað í þetta
verkefni var mikil áhersla lögð á að
ferjan myndi byrja að sigla í apríl
eða maí þannig að áhöfnin og sér-
staklega skipstjórarnir myndu læra
á skipið að sumri,“ segir Sigurður
Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri
siglingasviðs Vegagerðarinnar, í
samtali við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til þess að
enn er óljóst hvenær nýr Herjólfur
byrjar áætlunarsiglingar á milli
lands og Vestmannaeyja, en eins og
greint hefur verið frá í Morgun-
blaðinu hefur pólska skipasmíða-
stöðin Crist S.A. beðið um frest á
afhendingu ferjunnar.
„Nú er svo komið að skipið mun
ekki byrja áætlunarsiglingar fyrr
en í nóvember ef áætlanir ganga
eftir, þegar veður eru válynd,“
segir Sigurður Áss, en það veldur
auknu álagi á áhöfnina. »11
Nýr Herjólfur kemur
við erfið veðurskilyrði
Ljósmynd/Crist S.A.
Ferja Smíð nýs Herjólfs er í fullum gangi.
Þeir voru heldur brattir á að líta piltarnir þrír í Ólafsvík þegar þeir sigldu
um á heimasmíðuðum bárujárnskajak í heitri sumarsólinni. Hvert förinni
var heitið fylgir ekki sögunni en eflaust lentu félagarnir í einhverjum
ævintýrum á leiðinni á áfangastað.
Þrír félagar á heimasmíðuðu fleyi
Morgunblaðið/Eggert
„Frjókorn í
lofti verða í há-
marki næstu
tvær til þrjár vik-
urnar. Þeim fer
síðan fækkandi
fljótlega eftir
verslunarmanna-
helgina,“ segir
Sigurveig Sig-
urðardóttir,
læknir á göngu-
deild ofnæmissjúkdóma á Landspít-
ala. Að hennar sögn er mikilvægt
fyrir fólk með ofnæmi að fylgja
leiðbeiningum sérfræðinga. Það
minnki óþægindin sem skapist
vegna grasfrjóaofnæmis. »11
Frjókorn í hámarki
Frjókorn Mikið er
um frjókorn í lofti.
Heldur færri ökutæki voru ný-
skráð á fyrri helmingi ársins en á
sama tímabili árið 2017, sem var
metár í bílasölu. Þetta kemur fram
í tölum sem Samgöngustofa tók
saman að beiðni Morgunblaðsins.
Fjöldi nýskráðra ökutækja á
fyrstu sex mánuðum ársins nam
17.181 ökutæki en á sama tímabili í
fyrra höfðu 20.000 ökutæki verið
nýskráð. Það er um 14% sam-
dráttur á milli ára.
Úlfar Steindórsson, forstjóri
Toyota á Íslandi, segir að rekja-
megi þetta að miklu leyti til minni
kaupa frá bílaleigum á árinu. „Það
er stærsta skýringin, en til við-
bótar er töluvert af nýlegum not-
uðum bílum á markaðnum og ekk-
ert óeðlilegt að fólk skoði það,
heldur en að kaupa sér nýjan bíl.
Þetta er samspil af þessu tvennu.“
»16
Færri bílar nýskráðir á fyrri árshelmingi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Innflutningur Á fyrri helmingi ársins
var 17.181 ökutæki nýskráð.
Orka náttúrunnar hefur til-
raunaframleiðslu á vetni á næstu
vikum. Búið er að kaupa rafgreini
og verið er að setja hann upp á
svæði tæknigarða vestan við Hellis-
heiðarvirkjun. Búist er við að hægt
verði að hefja sölu á bíla í október.
Uppsetning vetnisstöðvarinnar
er liður í evrópsku verkefni sem
Orka náttúrunnar tekur þátt í með
tveimur öðrum íslenskum fyrir-
tækjum; Orkunni, sem er í eigu
Skeljungs, og Íslenskri nýorku.
Orkan opnaði tvær afgreiðslu-
stöðvar fyrir vetnisbifreiðar fyrr í
sumar. Notað verður innflutt vetni
þar til byrjað verður að afgreiða
vetni frá nýju stöðinni.
Framleiðslugeta rafgreinisins er
rífleg miðað við þá bíla sem hér eru
í notkun. Búist er við aukinni notk-
un á næstunni, meðal annars með
vetnisknúnum strætisvögnum. »4
Vetnisstöð sett upp við Hellisheiðarvirkjun
Morgunblaðið/Ófeigur
Strætó Þörfin eykst með fjölgun vetnis-
knúinna strætisvagna á götunum.
Hæsta 20 stiga
hlutfall frá „hita-
bylgjunni miklu“
fyrir nákvæmlega
tíu árum, eða 30.
júlí árið 2008,
mældist á landinu
sl. sunnudag, að
sögn Trausta
Jónssonar veður-
fræðings. Þá
mældust 29,7
gráður á Þingvöllum og 26, 4 stig í
Reykjavík. Hitastigið steig mjög
hratt í Reykjavík á sunnudags-
morguninn, eða úr 12,7 stigum
snemma um morguninn upp í 22,7
stig á hádegi, en hæstur varð hitinn
á Patreksfirði 24,7 stig. Þetta er
sjaldgæft í Reykjavík en algengara
á Austur- og Norðausturlandi. »4
Yfir 20 gráður á 132
stöðum á sunnudag
Reykjavík Sólbað
við Austurvöll.