Morgunblaðið - 31.07.2018, Page 6

Morgunblaðið - 31.07.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 Kristján Árnason, fyrr- verandi þýðandi og dós- ent í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, lést fyrir helgi, 83 ára að aldri. Kristján var fæddur í Reykjavík þann 26. september 1934. For- eldrar hans voru Árni Kristjánsson, píanóleik- ari og tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins, og Anna Guðrún Stein- grímsdóttir, húsmóðir. Kristján stundaði nám við MR og útskrif- aðist þaðan með stúdentspróf 1953. Þá útskrifaðist hann með BA-próf í grísku og latínu frá HÍ 1962 og lagði stund á nám í heimspeki, bók- menntum og fornmálum við háskóla í Þýskalandi og Sviss á árunum 1953-1958 og 1963-1965. Hann starfaði m.a. sem kennari við Menntaskólann á Akureyri og Kennaraskóla Íslands á sjöunda áratugnum og hjá Menntaskólanum á Laugarvatni á árabilinu 1967- 1990. Eftir Kristján liggja fjölmörg skáldverk og þýðingar en hann var sérstaklega gefinn fyrir gríska menningu og listir og var t.a.m. for- maður Grikklandsvinafélagsins Hellas og var sæmdur stórridd- arakrossi hinnar grísku Fönix-orðu, fyrir framlag sitt til eflingar grísk- um menntum á Ís- landi. Hann gaf út ljóða- bækurnar Rústir 1962 og Einn dag enn 1990 sem var tilnefnd til ís- lensku bókmennta- verðlaunanna. Hann var þó einnig þekktur fyrir þýðingaverk sín en hann þýddi leikrit, ljóð, skáldsögur og fræðirit m.a. eftir höf- undana Aristóteles, Aristófanes, Catullus, François Mauriac, Goethe og Thomas Mann og hlaut árið 2010 íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á Ummyndunum eftir Óvíd. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands gaf út helstu ritgerðir hans um bókmenntir, þýðingarlist og heimspeki í ritinu Hið fagra er satt á sjötugsafmæli hans. Kristján var kvæntur Ingu Huld Hákonardóttur sagnfræðingi, sem lést 2003. Hann var áður kvæntur Kristínu Önnu Þórarinsdóttur leikkonu, sem lést 1986, og eignuðust þau þrjú börn, Önnu Guðrúnu, fædda 1962 og látna 1963, Árna, fæddan 1965 og Þórarin, fæddan 1967. Þá lætur hann einnig eftir sig tvö stjúpbörn, Eyjólf Kjalar Emilsson, fæddan 1953, og Öldu Arnardóttur, fædda 1960. Andlát Kristján Árnason Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin áformar að bjóða út á næstu vikum fyrsta áfanga breikkunar Suðurlandsvegar frá Kambarótum að Selfossi. Áfanginn er frá Hveragerði að Kotströnd. Sveitarfélagið Ölfus hef- ur samþykkt að gefa út framkvæmda- leyfi vegna vegarins og áður höfðu Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Sel- foss veitt leyfi. Fyrsti áfanginn liggur frá Varmá sem er rétt austan við Hveragerði og að Kotströnd. Vegurinn verður breikkaður og gerð gatnamót til móts við Ölfusborgir og Velli. Upphaflega var miðað við að veg- urinn á milli Kamba og Selfoss yrði tví- breiður í báðar áttir en þau áform voru endurskoðuð fyrir nokkrum árum til að draga úr kostnaði. Að sögn Svans G. Bjarnasonar, svæðisstjóra hjá Vega- gerðinni á Selfossi, verður vegurinn svokallaður tveir plús einn vegur þar sem skiptast á ein og tvær akgreinar í hvora átt. Aksturstefnur verða að- skildar með vegriði. Hins vegar verður undirbygging miðuð við að hann verði tvöfaldaður í framtíðinni. Ekki verða gerð mislæg gatnamót að svo stöddu. Verði vegarlagningin boðin út í ágúst má reikna með að verklok verði haustið 2019. Framhaldið er óljóst vegna þess að samgönguáætlun fyrir næstu ár hefur ekki verið afgreidd. Svanur vonast til að hægt verði að halda verkinu áfram og annar áfangi þá boðinn út eftir ár. Það verði vænt- anlega vegurinn frá Kotströnd að Kög- unarhóli eða alla leið að Biskups- tungnabraut. Svanur segir að það ráðist af fjárveitingum. Hönnun gerir ráð fyrir að vegurinn verði tekinn beint frá Kotströnd svo hlykkurinn sem er austan kirkjunnar verði minni. Gamli vegurinn nýtist áfram sem hlið- arvegur, til að tengja heimreiðar. Gert er ráð fyrir að á gatnamótum Bisk- upstungnabrautar sem munu færast um 200 metra til norðurs verði tvöfalt hringtorg. Það mun tengja hringveg við Biskupstungnabraut og Suður- landsveg á gömlu Ölfusárbrúna. Kostar 6,6 milljarða Síðasti áfanginn verður væntanlega færsla vegarins við Hveragerði, frá Kambarótum að Varmá. Á allri leið- inni verða nokkur undirgöng, fyrir ak- andi, gangandi og ríðandi fólk. Í fram- haldinu þarf að byggja nýja brú á Ölfusá, norðan Selfoss, og leggja veg að henni. Áætlað hefur verið að framkvæmdir á milli Varmár og Biskupstungna- brautar kosti í heildina um 5 milljarða og færsla vegarins hjá Hveragerði 1,6 milljarða til viðbótar. Þá hefur verið áætlað að ný brú á Ölfusá myndi kosta 5,5 milljarða . Fyrsti áfangi boðinn út í ágúst IN G Ó L FS FJ A L L Ölfusá Va rm á Hveragerði Kotströnd Bi sk up st un gn ab ra ut Selfoss Reykjavík Þo rlá ks hö fn /Þ re ng sli Gr ím sn es Flói Fyrirhugað vegstæði Fyrsti áfangi Fyrirhuguð brú yfir Ölfusá Núverandi vegstæði Núverandi lega hringvegar Ölfusárbrú Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss  Vegagerðin undirbýr breikkun Suðurlandsvegar frá Hveragerði að Selfossi  Fyrsti áfanginn verður frá Varmá að Kotströnd  Byggður verður þriggja akreina vegur með aðskildum akstursstefnum Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Landeigandi bað mig að gera til- lögu að hóteli á lítilli eyri sem geng- ur fram í Lárós við Grundarfjörð. Ég gerði fyrst tillögu að tveggja hæða húsi en fannst það svo ekki gera mikið í þessu umhverfi. Allt í einu tók byggingin völdin og reis upp úr landinu eins og fjall, eða klettur,“ segir Orri Árna- son, arkitekt hjá Zeppelin arki- tektum, um drög að 60-100 herbergja hóteli við Grundarfjörð. Hótelið er teiknað á jörðinni Skerðingsstöðum en sam- kvæmt fasteignaskrá eru eigendur hennar Jóhannes G. Þorvarðarson og Kolbrún Reynisdóttir. Ræktað land á jörðinni er 4,8 hektarar. Falli vel að landslaginu Eins og rakið er í tímaritinu Landi og sögu svipar hótelinu til Kirkju- fells. Orri segir aðspurður að Zeppe- lin arkitektar hafi teiknað hótel sem tekur mið af náttúrunni í kring. „Hótelið er óður til Kirkjufells og fellur vel að landinu án þess þó að falla inn í það og hverfa,“ segir Orri sem kveðst aðspurður sjá fyrir sér að hótelið verði byggt úr timbur- einingum og öðrum náttúrulegum efnum. Athygli vekur að tré hefur verið teiknað á þak hótelsins. „Hug- myndin er komin til af því að aka um landið. Þá sér maður gjarnan bæi þar sem varla er stingandi strá en svo stendur stakt tré til hliðar við íbúðarhúsið. Mér hefur alltaf fundist það óendanlega fögur sjón.“ Drögin eru til umsagnar hjá skipulagsyfirvöldum í Grundarfirði. Orri segir hugmyndina hafa verið kynnta fyrir einni hótelkeðju. Við- brögðin veki góðar vonir. Ótal gönguleiðir á svæðinu „Verkefnið fékk þær undirtektir að við ákváðum að halda því áfram. Það er ekkert almennilegt hótel við Grundarfjörð, sem er synd, því svæðið er mjög fallegt og þar eru ótal gönguleiðir upp um fjöll og firn- indi. Þar er jafnframt hægt að fara í hestaferðir og sigla og dorga á vatn- inu. Á veturna er hægt að fara á snjósleða upp á næstu fjöll og það er víst frábært að stunda ísklif í Mýrar- hyrnu á veturna. Um daginn sá ég Baltasar Kormák í sjónvarpinu þar sem hann klifraði upp á Kirkjufell að vetrarlagi,“ segir Orri. Hótelið er á þessu stigi tæpir 4 þúsund fermetrar. Ekki er gert ráð fyrir kjallara undir öllu húsinu. Við hótelið hafa verið teiknuð lítil hús sem munu tengjast rekstrinum. „Óður til Kirkjufells“  Arkitektar teikna 60-100 herbergja hótel við Grundarfjörð  Hótelkeðja sýnir áhuga  Hönnun tekur mið af náttúru Teikningar/Zeppelin arkitektar Aðalbygging og smáhýsi Hugmyndir eru um allt að 100 herbergja hótel. Jafnframt voru teiknuð smærri hús. Horft til náttúrunnar Arkitektarnir hafa hugmyndir um að nota timbur. Kirkjufell Hótelið og fjallið. Orri Árnason Eldur kom upp í fólksbíl við fjölfar- in gatnamót sem tengja saman Sæbraut, Reykjanesbraut og Miklu- braut í Reykjavík um miðjan dag í gær. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæð- inu tók ökumaður bílsins eftir því að reyk lagði frá bílnum og hætti í kjölfarið akstri. Skömmu síðar varð bifreiðin alelda, en ökumann sakaði ekki. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og var bílflakið fjarlægt. Fólksbifreið gjöreyðilagðist í eldi Morgunblaðið/Arnþór Brunarúst Flak bílsins var fjarlægt af vettvangi og fer væntanlega í förgun á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.