Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 27
tryggingum, Marel, SR mjöli og Eimskip. Benedikt var formaður sjálf- stæðisfélags Garða- og Bessa- staðahrepps 1973-75, sat í skóla- nefnd Garðabæjar 1974-86, þar af formaður 1982-86. Hann var bæj- arfulltrúi í Garðabæ 1986-98, þar af oddviti meirihlutans og for- maður bæjarráðs í tíu ár. Benedikt fór oft í laxveiði hér áður fyrr en heldur sig nú við sil- ungsveiði: „Ég hef veitt mikið við Þingvallavatn, í landi Kald- árhöfða, og við Ölfusvatn og er reyndar nýkominn þaðan. Ég hef alla tíð verið viðloðandi íþróttir, æfði og keppti sjálfur í knattspyrnu með yngri flokkum Vals, fylgdist vel með íþrótta- iðkun sona minna í Stjörnunni og hef verið stuðningmaður Stjörn- unnar frá því ég kom í Garða- bæinn, sem nú er orðinn öflugur íþróttabær og Stjarnan stór- veldi. Ég byrjaði að leika golf er ég var við nám í Bandaríkjunum, sleppti því síðan í þrjá áratugi vegna anna, en tók svo upp þráðinn aftur fyrir tveimur ára- tugum eða svo og er enn að. Svo nýt ég þess að sinna barnabörn- unum og nú hefur langafa- strákur bæst í hópinn. Við hjónin höfum ferðast tölu- vert eins og flestir gera núorðið og ég les talsvert, einkum ævi- sögur og sagnfræði. Ég var t.d. nú að ljúka við ævisögu Ein- steins en það er mjög athygl- isverð bók.“ Fjölskylda Kona Benedikts er Guðríður Jónsdóttir, f. 19.9. 1938, dóttir Jóns Gunnarssonar, f. 1900, d. 1973, verkfræðings og fyrrum forstjóra SH, og k.h., Hólm- fríðar Sigurlínu Björnsdóttur, f. 1904, d. 1996, húsmóður. Synir Benedikts og Guðríðar eru Sveinn, f. 16.1. 1962, tölvu- fræðingur í Garðabæ en kona hans var Unnur Fadila Vilhelms- dóttir tónlistarkona sem er látin en sonur hennar er Gunnar Már Óttarsson. Núverandi eiginkona Sveins er Helga Kristjánsdóttir, dr. í hagfræði og kennari við Háskólann á Akureyri en sonur hennar er Kristján Sigurðsson; Jón, f. 16.10. 1964, rafmagns- verkfræðingur í Garðabæ, kvæntur Ágústu Grétarsdóttur lyfjafræðingi og eru börn þeirra Kristín, Benedikt og Þorsteinn, en Kristín á óskírðan son, f. 16.6. 2018, með sambýlismanni sínum, Rúti Birgissyni hdl, og Bjarni, f. 26.1. 1970, alþingis- maður, fjármálaráðherra og for- maður Sjálfstæðisflokksins, kvæntur Þóru Margréti Bald- vinsdóttur og eru börn þeirra Margrét, Benedikt, Helga Þóra og Guðríður Lína. Systkini Benedikts eru Ingi- mundur, f. 21.4. 1942, arkitekt í Reykjavík; Guðrún, f. 25.10. 1944, lögfræðingur á Seltjarn- arnesi, og Einar, f. 3.4. 1948, framkvæmdastjóri, búsettur í Garðabæ. Foreldrar Benedikts: Sveinn Benediktsson, f. 12.5. 1905, d. 12.2. 1979, framkvæmdastjóri í Reykjavík. og k.h., Helga Ingi- mundardóttir, f. 23.12. 1914, d. 22.1. 2008, húsmóðir. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is fyrir heimilið VifturHitarar LofthreinsitækiRakatæki Ásgeir Guðbjartur Guðbjartssonfæddist í Kjós í Grunnavík-urhreppi 31.7. 1928 . For- eldrar hans voru Jónína Þ. Guðbjarts- dóttir húsfreyja, og Guðbjartur Ásgeirsson, formaður og útgerðar- maður. Eiginkona Ásgeirs var Sigríður Guðmunda Brynjólfsdóttir sem lést 2009. Þau eignuðust fjögur börn, Guð- bjart, f. 1949, Guðbjörgu, f. 1950, Kristínu Hjördísi, f. 1952 og Jónínu Brynju, f. 1953 Ásgeir flutti ungur með foreldrum sínum til Hnífsdals og síðan til Ísa- fjarðar þar sem hann ólst upp. Hann hóf sinn sjómannsferil nýfermdur og var þá á dragnót upp á hálfan hlut. Ás- geir vann um tíma hjá Norðurtang- anum og við beitingu. Sextán ára fór hann að róa upp á heilan hlut á línu-, troll- og síldarbátum. Ásgeir tók hið minna fiskimanna- próf á Ísafirði 1948 og hið meira fiski- mannapróf í Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1965. Hann var skipstjóri á Valdísi ÍS 72, 1948, Bryndísi ÍS 69, 1949, Jódísi ÍS 73 sama ár, Pólstjörnunni ÍS 85 í fjór- ar vertíðir, Ásbirni ÍS 12 1956, en tók þá við Guðbjörgu ÍS 47 og hafa þeir bátar og skip sem hann síðan var með verið nefnd Guðbjörg, en hann var á skuttogaranum Guðbjörgu ÍS 46. Ásgeir stofnaði útgerðarfélagið Hrönn hf. á Ísafirði ásamt fleirum, ár- ið 1956.en það gerði út sjö báta og tog- ara sem báru nafnið Guðbjörg ÍS. Út- gerðin lét m.a. smíða fyrir sig frystitogara 1994 sem þá var talinn eitt fullkomnasta fiskiskip í heiminum. Ásgeir hætti til sjós árið 1995, 67 ára að aldri. Þá hafði hann verið skip- stjóri í meira en 45 ár. Ásgeir var afburða aflamaður og harðsækinn. Hann var aflakóngur á Ísafirði á sextán vetrarvertíðum sam- fleytt og auk þess var hann oft afla- kóngur á Vestfjörðum. Ásgeir var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar 17. júní 1991. Ásgeir lést 22.2. 2017. Merkir Íslendingar Ásgeir Guðbjartsson 90 ára Hólmfríður Stefánsdóttir 85 ára Emil Guðmundsson Eysteinn Leifsson 80 ára Benedikt Sveinsson Jóhann Stefánsson 75 ára Alexander Ólafsson Halldór Ársæll Jensson Hanna Lára Köhler Ingunn Lilja Hjaltadóttir Lilja Kristjánsdóttir Linda Gústafsdóttir Sigurbjört Þórðardóttir Sigurður Jóhannsson 70 ára Aðalheiður Laufey Hákonardóttir Ásgeir Þorláksson Erlingur Einarsson Hjálmar Jóhannesson Krystyna Maria Blasiak Cortes Magnús Magnússon Margrét Kjartansdóttir Sigrún Guðmundsdóttir Stefán Rúnar Jónsson 60 ára Andrzej Ignacy Rybicki Hrafnhildur Vigfúsdóttir Hörður V. Vilhjálmsson Kjartan D. Kjartansson Rimas Ziugzlys Snorri Gylfason Þorvaldur Ísleifur Þorvaldsson 50 ára Agnar Sturla Helgason Anna Berglind Gunnlaugsdóttir Björn Magnússon Böðvar Jónsson Dariusz Roman Zdrojewski Guðmundur Ingi Guðmundsson Halldór Marías Ásgeirsson Inga María S. Jónínudóttir Mikolaj Wawrzeniuk Ólafur G. Gunnsteinsson Stella Rósa Stelly Gústafsd. Thelma Hrund Guðjónsdóttir 40 ára Arndís Sveinsdóttir Björn Halldórsson Daníel Friðjónsson Guðmundur Sævarsson Harry Jóhannsson Monika Tischleder Pálmi Skowronski Rúnar Freyr Rúnarsson Sigrún Ósk L. Gunnarsdóttir Torfi Runólfur Þorbergsson Tryggvi Logi Jóhannsson 30 ára Árni Heiðar Geirsson Birkir Steinn Erlingsson Einar Óli Ægisson Emil Ingvardt C. Hvidtfeldt Haukur Guðmundsson Karolina Wiszowata Linda Huld Loftsdóttir Pedro Miguel Silva Pina Riza Bation Patayon Sindri Freyr Ólafsson Valerie Fock Xiaolong Wang Þór Birgisson Til hamingju með daginn 30 ára Magnús ólst upp í Garðabæ, býr í Kópavogi, lauk sveinsprófi í rafvirkjun frá FB og er rafvirki á eigin vegum. Maki: Íris Dögg Haralds- dóttir, f. 1991, að ljúka BSc-námi í viðskiptafræði. Synir: Mikael Aron, f. 2011, og Elmar Leví, f. 2013. Foreldrar: Bjarni Pálsson, f. 1961, bakari, og Zanný Sigurbjörnsdóttir, f. 1962, sjúkraliði. Magnús Páll Bjarnason 30 ára Linda ólst upp í Reykjavík og á Jersey á Ermarsundi, býr í Reykja- vík, lauk BA-prófi í sál- fræði frá HÍ og er að hefja störf hjá Virk. Maki: Alex Sieroczuk, f. 1988, endurskoðandi. Dætur: Mia, f. 2015, og Lily, f. 2017. Foreldrar: Guðrún Bjarnadóttir, f. 1967, skrif- stofumaður, og Loftur Loftsson, f. 1965, tölfræð- ingur. Linda Huld Loftsdóttir 30 ára Haukur býr á Eg- ilsstöðum, lauk BSc-prófi í landfræði og MSc-prófi í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði og starfar hjá Eimskip. Maki: Auður Jónsdóttir, f. 1988, starfar við leikskola. Foreldrar: Guðmundur Ólafsson, f. 1958, og Katr- ín Ásgeirsdóttir, f. 1954, fyrrv. loðdýrabændur en hann er nú skólabílstjóri og veiðivörður en hún starfar hjá HSA. Haukur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.