Morgunblaðið - 31.07.2018, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
ICQC 2018-20
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Magnús Þór Jónsson – Megas –
kemur annað kvöld, miðvikudags-
kvöld, fram á tónleikum í menning-
arhúsinu Mengi við Óðinsgötu
ásamt gítarleikaranum Daníel Frið-
rik Böðvarssyni. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 21.
Í tilkynningu segir að efni þessara
hljómleika séu „ný og eldri lög sem
ekki hafa birst alþýðu manna með
einum eða öðrum hætti. Þessi lög
hafa ekki verið réttu lögin á þetta
eða hitt prógrammið eða líkt og fall-
ið milli skips og bryggju, orðið út-
undan án þess að hafa nokkuð til
þess unnið. Nýrri söngvar eru
tækifærisafurðir, afkvæmi augna-
bliks sem ef svo má segja hefur fros-
ið. Ennfremur eru nokkur sýnishorn
frá verkum í vinnslu og eiga sér
máski glæsta framtíð í óorðinni nú-
tíð, í það minnsta í vikunni með
sunnudögunum sjö. Fúlsið nú ekki
við krásunum, lömbin mín.“
Eykur ánægju sína
Undanfarin misseri hefur Megas
komið víða fram á tónleikum ásamt
Kristni H. Árnasyni gítarleikara,
meðal annars í Mengi þar sem boðið
hefur verið upp á ólíkar efnisskrár,
ýmist með kunnum og vinsælum eða
lítt þekktum lögum. Megas segir
þetta vera í fyrsta skipti sem þeir
Daníel Friðrik starfa saman.
„Kiddi var í fríi í sumar,“ segir
hann um gítarleikaraskiptin. „Ég er
að gera prógramm úr óbirtum lög-
um og bað Skúla Sverrisson [bassa-
leikara og listrænan stjórnanda
Mengis] að benda mér á einhvern
góðan. Hann benti mér á Daníel sem
ég þekkti ekkert fyrr en var allur
augu og eyru þegar ég heyrði hvað
hann gat spilað,“ segir Megas.
Þegar spurt er hvort Daníel Frið-
rik nálgist heim laga hans með svip-
uðum hætti og hinn fjölhæfi Krist-
inn, hrósar hann Kristni og segir
margt einstakt í hans spilamennsku.
„En Daníel er líka einstakur og
mjög fljótur að grípa hlutina.“
– Er þetta allt saman óbirt og óút-
gefið efni sem þið flytjið?
„Já. Það er eitthvað af gömlum
lögum sem hafa lent milli skips og
bryggju, voru ekki útgefin, og svo
önnur sem ég hef verið að gera á
síðastliðnum árum.“
– Vellur alltaf eitthvað nýtt fram?
„Það er ekkert voðalega mikið um
það – en það gerist,“ er svarið.
– Allan þinn feril hefur þú reglu-
lega fundið þér nýja meðspilara, og
gjarnan ungt fólk. Felst ekki viss
ögrun í því að byrja endurtekið að
vinna með nýjum hljóðfæraleikur-
um?
„Maður er með því að auka
ánægju sína, það er alltaf gleðilegt
tilefni,“ svarar Megas og vitnar í
skáldið Þorstein Erlingsson: Ef
æskan vill rétta þér örvandi hönd,
þá ertu á framtíðar vegi …
– Þú hefur gert þau orð að þínum?
„Já, og ég man líka útgáfu Bald-
vins Halldórssonar af þessum línum:
Ef æskan vill rétta þér urrandi
hund…“ Hann skellir uppúr og bæt-
ir við: „Daníel urrar flott, og urrar
fyrir mína hönd líka…“
Svigrúm fyrir stemningu
Meðleikari Megasar, Daníel Frið-
rik, gat sér gott orð sem gítarleikari
hljómsveitarinnar Moses Hightow-
er, var einn stofnenda sveitarinnar
en leikur ekki lengur með henni.
Hann nam við Tónlistarskóla FÍH
og Jazz Institute Berlin.
„Ég hef búið í Berlín undanfarin
sjö ár en flutti heim í vetur,“ segir
Daníel en hann er þó reglulega á
faraldsfæti, er til að mynda með-
limur í hljómsveit í Berlín sem gefur
út plötu í vetur og fer þá í tónleika-
ferð. „Ég er líka með sólóefni í bí-
gerð og hef verið að spila með þess-
um eftir að ég kom heim, en
aðallega í Mengi. Ég kem til dæmis
fram með Kristínu Önnu þar á
föstudaginn kemur.“
Þegar spurt er hvar hann stað-
setji sig í tónlistinni segist Daníel
hafa verið í djassnámi en hann stað-
setji sig þó ekki endilega sem djass-
tónlistarmann þótt hann fáist mikið
við spuna. Orðið djass sé það sögu-
legt að það geti virkað afmarkandi í
hugum fólks. „Ég segist fást við tón-
list sem er lifandi og spunnin, það er
rauður þráður í flestu sem ég geri,
þótt tónlistin geti verið þjóðlaga-
skotin eða poppuð, eins og hjá
Magnúsi.“
– Hvernig leist þér á það boð að
leika með Megasi?
„Mér fannst það mikill heiður og
ánægjulegt enda ber ég mikla virð-
ingu fyrir Megasi og hef lengi verið
aðdáandi hans. Mér finnst frábært
að fá að vinna með honum að þessu
prógrammi.“
– Magnús færir meðspilurum sín-
um venjulega lögina á nótum, fékkst
þú rými til að vinna út frá þeim á
þinn hátt?
„Já. Hann kom með öll lögin á
nótum en ég fæ mikið svigrúm til að
búa hverju lagi stemningu og grúv.
Ég fæ frekar frjálasr hendur með
það.“
Feimnin hvarf fljótt
Í efnisskránni sem þeir Megas og
Daníel Friðrik flytja á morgun
hljóma lög sem ekki hafa verið gefin
út. Fær Daníel fyrir vikið meira
frelsi heldur en hann hefði fengið
væru lögin þekkt og þar með orðin
hálfgerð almeningseign?
„Ætli það ekki,“ svarar hann.
„Það verður enginn vonsvikinn eins
og kynni að gerast ef ég gerði eitt-
hvað skrítið við „Tvær stjörnur“.
Það er þeim mun skemmtilegra að
taka efni sem maður hefur ekki
sjálfur mjög mótaða hugmynd um
fyrirfram.“
Megas er vitaskuld goðsögn í ís-
lensku tónlistarlífi en þegar Daníel
er spurður að því hvort hann hafi
verið feiminn við að fara sínum
höndum um lög meistarans þá svar-
ar hann neitandi.
„Við höfum hist það oft að sú
feimni hvarf fljótt. Ég reyni bara að
gera eitthvað af viti. Þetta eru frá-
bær lög og frábærir textar og ég
reyni bara að gera mitt besta til að
koma þeim til skila. Það er ekki
pláss fyrir neina feimni í því.“
„Urrar fyrir mína hönd líka“
Megas og gítarleikarinn Daníel Friðrik koma fram á tónleikum í Mengi annað kvöld Flytja
„eitthvað af gömlum lögum sem hafa lent milli skips og bryggju“ og önnur óútgefin frá síðustu árum
Flytjendurnir Megas og Daníel Friðrik koma fram í Mengi. Megas segist
hafa verið „allur augu og eyru þegar ég heyrði hvað hann gat spilað“.
Framhald hinnar feikivinsælu
söngvamyndar Mamma Mia!,
Mamma Mia! Here We Go Again,
naut góðrar aðsóknar um helgina.
Tæplega sex þúsund manns sáu
myndina sem hlotið hefur jákvæðar
viðtökur gagnrýnenda og þá m.a.
gagnrýnanda Morgunblaðsins sem
gaf myndinni fjórar stjörnur í ein-
kunn. Mun færri sáu næst-
tekjuhæstu mynd helgarinnar,
teiknimyndina Hótel Transylvanía
3, eða um 1.400 manns og um 900
sáu hasarmyndina Equalizer 2.
Bíóaðsókn helgarinnar
Mamma Mia! Here We Go Again 1 2
Hotel Transylvania 3 2 3
Equalizer 2 4 2
The Incredibles 2 3 6
Ant-Man and the Wasp 5 4
Hereditary 6 2
Skyscraper 7 3
Kona fer í stríð 8 10
Book Club 9 6
Ocean's 8 12 7
Bíólistinn 27.–29. júlí 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
6.000 sáu Mamma Mia:
Here We Go Again
Gleðibomba Úr söngvamyndinni
Mamma Mia! Here We Go Again.