Morgunblaðið - 06.07.2018, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.07.2018, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 5FRÉTTIR jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST 569 6900 09:00–16:00www.ils.is Opið er fyrir umsóknir um stofnframlög Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum. Viðmat á umsóknum er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi þætti: Nýbyggingar og fjölgun leiguíbúða. Íbúðir á svæðum þar sem þörf er fyrir leiguíbúðir fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum. Auk þess verður lögð áhersla á: Hagkvæmar íbúðir hvað stærð og herbergja- fjölda varðar sbr. viðmiðunarstærðir. Hagkvæmar aðferðir við íbúðabyggingar í því skyni að lækka byggingarkostnað. Íbúðir sem uppfylla þarfir íbúa á hverju svæði. Íbúðir sem uppfylla mismunandi þarfir ólíkra hópa. Að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun. Viðmiðunarstærðir Við úthlutun verður horft til þess að íbúðir séu að jafnaði ekki stærri en eftirfarandi tafla segir til um: Hámarksstærð Fjöldi herbergja m.v. herbergjafjölda Einstaklingsíbúð 50 m² 2ja herbergja íbúð 60 m² 3ja herbergja íbúð 80 m² 4ra herbergja íbúð 95 m² 5 herbergja íbúð 110 m² Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi á heimasíðu sjóðsins. Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2018. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is. Auglýst er eftir umsóknum fyrir árið 2018 um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 555/2016. Umsóknarfrestur: 31. október 2018 • • • • • • • Um er að ræða nk. hulsu – þó ekki hefðbundnar skóhlífar – sem smeygt er yfir skóna. Hulsan er næfurþunn, lauflétt og gerð úr latex-blöndu og heldur skónum skraufþurrum. Þar sem hulsan er fjarskaþunn, og latex ekki mjög sterkt efni, er skósmokkurinn auglýstur sem einnota vara sem byrjar að láta á sjá eftir um 15 km göngu á mal- bikuðu yfirborði. Kaupa má skósmokkana (e. rain socks) á www.onfadd.com á 19 dali og passa þeir yfir skó sem eru frá 25 til 29 cm á lengd. ai@mbl.is Öryggið á oddinn með skósmokk AUKAHLUTURINN Það er ekki tekið út með sældinni að hafa gaman af fallegum og dýrum skóm þegar úti er stanslaus rigning. Stígvél eru ágæt til að arka yfir polla vandræðalaust en henta ekki vel þegar kom- ið er inn í verslunarmiðstöð, á kaffi- hús, eða í sæti í leikhúsi. Hver nennir síðan að burðast um með aukapar og þurfa svo að skipta um skó fyrir allra augum? Fyrirtækið ONFAdd býður upp á áhugaverða lausn: skósmokka. TÍSKAN Á meðan beðið er eftir sumrinu er ekki úr vegi að búa í haginn fyrir ærsl og sprell úti í sundlaug í sumarsól- inni. Meðal þess sem þarf þá að hafa til taks er skotheld sundskýla. Verst hvað sundskýlur eru alla jafna fábrotnar. Yfirleitt eru þær ein- litar og lágstemmdar, og stendur val- ið aðallega á mili þess að velja skýlu sem er þröng eða víð, stutt eða síð. En svo birtist Orlebar Brown upp úr þurru með James Bond-sund- skýlur sem munu gera allt vitlaust. Orlebar Brown er tíu ára gamalt breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í sundfatnaði fyrir herra og þykir gera einstaklega vandaða og klæðilega vöru. Bond-skýlurnar eru fáanlegar í fjórum útgáfum með myndskreyt- ingum úr þremur Sean Connery- kvikmyndum og einni með Roger Moore. Stykkið kostar 245 pund hjá www.orlebarbrown.com. ai@mbl.is Með Bond í sund- laugina Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.