Morgunblaðið - 06.07.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.07.2018, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 15FÓLK Icelandair Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður nýrrar stuðnings- deildar flugreksturs Icelandair. Sylvía kemur til Ice- landair frá Landsvirkjun þar sem hún var deildarstjóri jarðvarma- deildar á orkusviði. Áður starfaði hún m.a. hjá höfuðstöðvum Ama- zon í Evrópu, og sem forstöðu- maður á fjármálastöðugleikasviði Seðlabanka Íslands. Sylvía er með M.Sc-próf í Opera- tional Research frá London School of Economics og B.Sc-próf í iðn- aðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún situr í stjórn Ölgerðarinnar og Símans og er í starfshópi um Hvít- bók um framtíðarsýn fyrir fjár- málakerfið. Sylvía stýrir stuðnings- deild flugreksturs Margrét Lena Kristensen og Karl Már Lárusson komu auga á að að- gengi að heilsufarsgögnum er ekki eins og best verður á kosið. „Gögn um sjúkdómsgreiningu, lyf, niður- stöður prófa og læknismeðferðir eru geymd á ólíkum stöðum, í ólíkum kerfum og gagnagrunnum sem í sum- um tilfellum tala ekki saman, og hafa ekkert upplýsingaflæði sín á milli. Vilji einstaklingur fá að sjá heilsu- farsgögnin sín gæti hann þurft að fara á milli margra staða, og jafnvel mæta í eigin persónu til að sækja gögnin.“ Jafnvel innan sömu stofnunarinnar getur það gerst að upplýsingaflæði á milli deilda er skert. „Getur þetta leitt til þess að einstaklingur er send- ur í endurtektar rannsóknir s.s. blóð- prufur og myndatökur, eða lyfi ávísað án vitundar um ofnæmi eða önnur lyf sem ávísað hefur verið af öðrum lækni og skráð á öðrum stað.“ Þannig lýsir Margrét hluta af vandanum sem LiveLine ætlar sér að leysa. LiveLine tekur þátt í Startup Reykjavík í sumar og er ætlunin að búa til eina gátt þar sem almenningur getur nálgast eigin heilsufarsgögn og valið, eftir atvikum, að deila upplýs- ingunum með heilbrigðisstarfsfólki eða öðrum sérfræðingum. „LiveLine verður milliliður fyrir einstaklinga og aðstoðar þá við að sækja gögnin sín með rafrænum hætti. Allt á þetta að gerast í einu skrefi og taka örstutta stund enda markmiðið að LiveLine tengist öllum þeim kerfum sem geyma heilbrigðis- upplýsingar.“ Eiga rétt á upplýsingum Margrét segir nýja Evrópu- reglugerð um meðferð persónu- upplýsinga greiða leiðina fyrir þjón- ustu af þessu tagi. Mikið hefur verið fjallað um að reglugerðin leggi ríkar skyldur á herðar þeim sem safna og vinna með persónugögn en minna hefur verið rætt um að reglugerðin tryggir jafnframt rétt einstaklinga til að fá afhent gögn sem varða þá sjálfa, sama hvar og hvernig þau eru vistuð. Með lausnum eins og LiveLine getur fólk því betur áttað sig á eigin gögnum og tekið stjórnina. „LiveLine hjálpar notandanum að fá yfirsýn yfir eigin sjúkrasögu og tryggja að þeir sem veita honum heilbrigðisþjónustu hafi allar nauðsynlegar upplýsingar til að gera vandaða sjúkdómsgrein- ingu eða veita meðferð við hæfi,“ seg- ir Margrét og bætir við að nefna megi fjölmörg dæmi þar sem þjónusta LiveLine gæti sparað tíma og pen- inga og aukið gæði heilbrigðis- þjónustu. „Við getum t.d. ímyndað okkur einstakling sem á sér langa sjúkrasögu, hefur flakkað á milli lækna og farið í alls kyns rannsóknir á mismunandi stöðum. Erfitt getur verið að halda utan um öll þessi gögn, bæði fyrir fagaðilann og einstakling- inn sjálfan. Betra aðgengi að þessum upplýsingum ætti að létta störf lækna til muna og um leið hjálpa til að draga úr kostnaði hér og þar.“ Evrópureglugerðin sem vikið var að hér að framan kveður á um haár sektir ef rangt er farið með persónu- upplýsingar, og varla er að finna við- kvæmari persónugögn en sjúkrasögu fólks. „Við leysum úr því með því að geyma aldrei eða safna gögnum sjálf. LiveLine sér aldrei gögnin sem not- andinn biður um, heldur sækir þau einfaldlega í aðra gagnagrunna og miðlar beint áfram til einstaklingsins. Með öruggu skráningarkerfi, sem fylgir nýjustu stöðlum, má síðan tryggja að óviðkomandi komast ekki inn í kerfið til að sjá upplýsingar um aðra.“ Gervigreind gæti hjálpað Þegar fram í sækir mætti hugsan- lega nota kerfi LiveLine til að t.d. hjálpa við sjúkdómsgreiningu eða forvarnir. Myndi þá gervigreind skima öll heilbrigðisgögn til að reyna að greina mynstur. „Það eru mjög spennandi hlutir að gerast á sviði gervigreindar í heilbrigðisþjónustu en hugmyndir af þessu tagi eru samt mjög fjarlægur veruleiki í dag og myndu kalla á að yfirstíga ýmsar hindranir, bæði tæknilegs og lagalegs eðlis. Fyrsta skrefið væri þá að tryggja að ekki megi rekja gögnin til tiltekinna einstaklinga áður en þeim er safnað saman til greiningar. Þá myndi kerfið þurfa að hafa aðgang að gríðarlegu magni gagna til að geta skilað sínu, en að koma LiveLine í loftið verður löng vegferð og reiknum við með að á næsta ári getum við að- eins birt notendum takmarkaðar heil- brigðisupplýsingar en bætum svo við nýjum gagnasöfnum skref fyrir skref.“ Tekjumodel LiveLine er enn í mót- un en Margrét telur best ef hægt verður að fjármagna þjónustuna þannig að sjúklingar þurfi ekki að standa straum af kostnaðinum. „Kerfið einfaldar fagaðilum vinnuna og hjálpar heilbrigðisstofnunum að spara, svo að jafnvel gæti verið eðli- legt að hið oinbera stæði straum af kostnaðinum.“ Að sögn Margrétar glíma heil- brigðiskerfi um allan heim við sama vanda og fjöldi sprotafyrirtækja vinn- ur að því að koma fram með hugvits- samlegar lausnir. „Við munum reyna að finna okkar hillu og móta okkur sérstöðu á þessum markaði. Ein leið sem við sjáum til að byrja að ná fót- festu erlendis er að vera íslenskum ferðalöngum innan handar enda mjög gagnlegt ef fólk þarf að leita til lækn- is á ferðalagi erlendis að geta strax sótt sjúkrasöguna frá Íslandi.“ Morgunblaði/Arnþór Birkisson „Betra aðgengi að þessum upplýsingum ætti að létta störf lækna til muna og um leið hjálpa til við að draga úr kostnaði hér og þar,“ segir Margrét Lena Kristensen. Í dag dreifast gögn mjög víða í heilbrigðiskerfinu. Ein gátt að öllum heilsu- farsgögnum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Mikið getur áunnist, fyrir bæði sjúklinga, heilbrigðisstarfs- fólk og -stofnanir, ef sprotanum LiveLine tekst að greiða almenningi leið að eigin heilsufars- og sjúkrasögu. SPROTAR Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrirVOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.