Morgunblaðið - 06.07.2018, Side 10

Morgunblaðið - 06.07.2018, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018FRÉTTIR ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Allt útlit er fyrir að næstkomandi föstudag muni Bandaríkin hækka tolla á vörur að jafnvirði 34 milljarða dala, sem fluttar eru inn frá Kína. Stjórnvöld í Peking munu gjalda líku líkt og þannig magnast smám saman tollastríðið á milli tveggja stærstu hagkerfa heims. Ef við bætum síðan við þeim tollum og hefndartollum sem er verið að leggja á viðskipti bæði yfir Atlantshafið og innan Norður-Ameríku þá verður heild- arvirði þeirra viðskipta sem tollastríð Donalds Trumps snertir, komið yfir 100 milljarða dala markið í lok þess- arar viku. En það er aðeins byrjunin. Áður en langt um líður gæti um- fang tollastríðs Trumps hæglega rokið yfir 1.000 milljarða dala mark- ið. Fari svo mun það hafa veruleg efnahagsleg áhrif bæði í Bandaríkj- unum og um alla heimsbyggðina. Það myndi jafngilda um það bil fjórðungi af öllum viðskiptum Bandaríkjanna við umheiminn á síðasta ári, sem námu samtals 3.900 milljörðum dala, og ná yfir a.m.k. 6% af öllum við- skiptum með verslunarvörur á heimsvísu (að upphæð 17,5 milljarðar dala m.v. mælingar Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar fyrir árið 2017). Hér að neðan eru þrjár ástæður fyrir því að 1.000 milljarða dala tolla- stríð er fjarri því ósennilegt. 1. Deilur Trumps og Kína gætu bráðum orðið að 600 milljarða dala tollastríði Þær kínversku vörur sem ríkis- stjórn Trumps hefur hækkað tollana á frá og með 6. júlí eru um 34 millj- arða dala virði. Það jafngildir hér um bil virði alls innflutnings frá Kína til Bandaríkjanna í einum mánuði. Í þessari atlögu verður 25% innflutn- ingsskattur lagður á 818 vöruteg- undir sem spanna allt frá hrað- suðukötlum og rennibekkjum yfir í iðnaðarvélmenni og rafmagnsbíla. Á móti mun Peking leggja álíka háa tolla á langan lista af varningi s.s. sojabaunir, sjávarfang og hráolíu. Bæði ríkin hafa birt lista yfir fleiri vörur sem þau munu hækka tolla á og mun þá hvort ríki fyrir sig hafa hækkað tolla á vörur fyrir 50 millj- arða dala. En Trump brást ókvæða við hefndartollum Kína og fyrirskipaði í júní að bæta vöruinnflutningi frá Kína, að virði 200 milljarða dala, á listann sinn og leggja á hann 10% tolla, auk þess sem hann hótaði að bæta við öðru eins. Peking hefur lof- að að svara í sömu mynt. Til að setja í samhengi hótanir Bandaríkjanna um að leggja tolla á vörur að virði 450 milljarða dala, þá nam heildarvirði innflutnings Banda- ríkjamanna á kínverskum varningi 505 milljörðum dala á síðasta ári og útflutningur á bandarískum varningi til Kína fór upp í 129,9 milljarða dala á sama tíma, sem var nýtt met. Það er ekki svartsýnisraus að segja að innan fárra mánaða verði búið að leggja nýja tolla á öll þessi viðskipti milli þjóðanna tveggja, sam- tals upp á 635,4 milljarða dala, og að Kína muni reyna að beita öðrum úr- ræðum til að jafna það tjón sem Bandaríkin valda þeim. 2. Tollastríð Trumps gegn bíla- framleiðendum gæti náð til jafnvel meira en 600 milljarða dollara viðskipta Í viðtali sem sjónvarpað var á sunnudag kallaði Bandaríkjaforseti hugmyndir sínar um að leggja tolla á innflutta bíla og varahluti, í nafni þjóðaröryggis, „þann stóra“ af þeim jarðskjálftum sem hann hefur skellt á heim alþjóðaviðskipta. Og það er einmitt þannig sem málið horfir við ESB og fleirum. Samkvæmt opinberum mælingum fluttu Bandaríkin inn bíla og litla sendibíla fyrir 191,7 milljarða dala á árinu 2017 og varahluti fyrir 143,1 milljarða dala, samanlagt 334,8 millj- arða. Nú stendur yfir rannsókn á því hvort innflutningur á bílum erlendis frá ógni þjóðaröryggi Bandaríkj- anna. Og þó svo að það sé létt að henda gaman að þeirri hugmynd að bíll frá BMW eða Toyota stefni ör- yggi nokkurs einasta lands í voða þá hefur ríkisstjórn Trumps gert það al- veg ljóst að hún lítur á það sem for- gangsatriði í þjóðaröryggismálum að vernda innlendan verksmiðjuiðnað. Sömu rökum var beitt til að réttlæta það að leggja tolla á innflutt ál og stál fyrr á þessu ári. Líkt og þegar hann lagði á málm- tollana þá virðist Trump trúa því að tollar á bifreiðar hjálpi honum að standa betur að vígi í vöruskipta- viðræðum við ESB og Japan, og einnig gagnvart Kanada og Mexíkó í viðræðunum um breytingar á Frí- verslunarsamningi Norður-Ameríku. Trump er að auka þrýstinginn til að þvinga viðsemjendur sína til upp- gjafar. Bara það eitt þýðir að það ætti alls ekki að afskrifa það sem langsótta hugmynd að Bandaríkin muni leggja 20% tolla á þennan inn- flutning bifreiða og íhluta, í heild sinni eða að hluta til. Og líklegt er að þeim tollum sem Bandaríkin leggja á verði svarað í sömu mynt. En nýjum tollum Bandaríkjanna verður ekki alltaf svarað með jafn- háum hefndartollum. Ráðamenn hjá ESB hafa verið að vinna að áætlun sem myndi leiða til tolla á innflutning bandarísks varnings að verðmæti 10 milljarða evra ef af því verður að hækka tolla á þá bíla og íhluti sem Bandaríkin kaupa frá ESB, en árið 2017 voru þau viðskipti 61,2 milljarða dala virði. En ef allt fer á versta veg, þar sem öllum nýjum tollum er svarað með jafnháum tollum á móti – þá þýðir það að alþjóðaviðskipti fyrir meira en 650 milljarða dala eru í húfi, og fyrir- tæki um allan heim myndu finna fyr- ir því. 3. Gleymum ekki Nafta Það vill oft gleymast í umræðunni að Bandaríkin eiga í mun meiri við- skiptum við Kanada og Mexíkó (1.100 milljarðar dala) en við Kína, Japan, Þýskaland og Bretland sam- anlagt. Árum saman hefur Trump kvartað sáran yfir því „stórslysi“ sem hann álítur núverandi 24 ára gamla útgáfu Nafta-samningsins vera og leitast hann núna við að semja upp á nýtt. Kjör nýs forseta í Mexíkó flækir mál- ið. Kanada og Mexíkó hafa verið á móti kröfum Bandaríkjanna um að m.a. verði bætt við samninginn ákvæði um að hann renni út á fimm ára fresti ef hann er ekki sérstaklega endurnýjaður. En Bandaríkin hafa aukið á óviss- una í Nafta-viðræðunum með því að láta tollana á innflutt ál og stál ná bæði til Kanada og Mexíkó, og með hótunum um tolla á bifreiðar sömu- leiðis. Innflutningur Bandaríkjanna á bifreiðum frá hinum Nafta- löndunum – sem kemur að megninu frá bílaverksmiðjum í eigu banda- rískra framleiðenda – nam 158,3 milljörðum dala árið 2017. Útflutn- ingur Bandaríkjanna á bílum til Kan- ada og Mexíkó nam 87,8 millj- örðum dala á sama tímabili. Þúsund milljarða dala tollastríð framundan? Eftir Shawn Donnan í Washington Enn harðnar tollastríðið sem Bandaríkjaforseti hef- ur stofnað til og inn í átökin flækjast nokkur af stærstu hagkerfum heimsins. AFP Þegar önnur ríki hafa svarað fyrir sig í tollastríðinu hefur Donald Trump brugðist við og hækkað tollana enn frekar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.