Morgunblaðið - 07.08.2018, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 7. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 183. tölublað 106. árgangur
Í DRAUMASTARFINU
Á 480 HESTAFLA
OFURBÍL
KVOSIN
FULL AF LIST-
UNNENDUM
LÍFGAÐI UPP Á
TÓNLISTARLÍF
LANDSMANNA
INNIPÚKINN 29 MERKILEGUR FERILL 26TRUKKABÍLSTJÓRI 12
Búast má við mik-
illi útbreiðslu
skógarkerfils hér
á landi að sögn
Sigurðar H.
Magnússonar
plöntuvistfræð-
ings. Sigurður
hefur háð baráttu
við kerfilinn í
sinni heimasveit
og segir að helst þurfi að stinga plönt-
una upp til að koma í veg fyrir að hún
fjölgi sér. Skógarkerfill er skil-
greindur sem ágeng planta og að
sögn Sigurðar ryðja ágengar plöntur
öðrum plöntum úr vegi og verða ein-
ráðar í náttúrunni. Kerfillinn nær að-
allega að nema land með bílaumferð
hér á landi og sáir sér utan í vegum til
að byrja með. Sigurður leggur til að
kerfillinn verði sleginn við vegi í upp-
hafi sumars til að koma í veg fyrir að
hann fjölgi sér á nýjum svæðum. »6
Erfitt að
losna við
skógarkerfil
Býst við mikilli
útbreiðslu kerfilsins
Sigurður H.
Magnússon
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Í drögum að ráðlegginum um matar-
æði fyrir hrumt og veikt eldra fólk,
sem embætti landlæknis hefur birt í
samstarfi við rannsóknarstofu Há-
skóla Íslands og Landspítala í öldr-
unarfræðum, er lagt til að veikt eldra
fólk auki próteininntöku sína til
muna. „Próteinið skiptir gífurlega
miklu máli og líkaminn þarf á því að
halda sérstaklega ef hann er að berj-
ast við vandamál. Fólk sem er í
styrktarþjálfun eða að keppa í íþrótt-
um bætir próteindufti í matinn sinn
og ef þú ert með litla lyst eru til leiðir
til þess að hjálpa þér,“ segir Anna
Birna Jensdóttir, forstjóri á hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni. Hún situr í
faghópnum sem vann ráðleggingarn-
ar. Matarlyst minnkar oft með hækk-
andi aldri en þörf fyrir vítamín og
steinefni er nánast óbreytt en pró-
teinþörfin eykst,
segir í drögunum.
Anna segir að það
væri góð leið fyrir
eldri borgara að
mæta þessari
þörf, t.d með því
að bæta prótein-
dufti í drykki
sína. „Það, eða
næringardrykkir,
mjólkurhristing-
ar, eitthvað sem þú setur í blandar-
ann og bætir þar við ögn af næring-
arefnum,“ segir Anna og bætir við að
líkast til hafi þeirri staðreynd ekki
verið gefinn nægilegur gaumur að
próteininntakan þarf að vera tölu-
verð.
Hún segir að verkefnið hafi verið
þarft hjá Embætti landlæknis og af-
ar nauðsynlegt hafi verið að fá hóp
sérfræðinga til að gefa út þessar leið-
beiningar. Ráðleggingunum er ætlað
að auðvelda þeim störfin sem útbúa
mat fyrir hrumt eða veikt eldra fólk
eða sinna umönnun þess. Við gerð á
drögunum var stuðst við ráðlegging-
ar frá European Society for Clinical
Nutrition and Metabolism, norrænar
næringarráðleggingar og ráðlegg-
ingar um mataræði fyrir hruma og
veika frá öðrum Norðurlandaríkjum.
Spurð um hvort næringarleysi hjá
veiku eldra fólki sé vaxandi vanda-
mál segir hún að það sé fremur aukin
þekking sem leiði til þessara ábend-
inga. „Ég myndi segja að rannsóknir
á þessu sviði bendi okkur á þörfina.
Þetta hefur kannski ávallt verið
vandamál, eða lengi, miðað við mína
reynslu. Nýlegar rannsóknir á þessu
sviði sýna okkur fram á mikilvægið.
Það skiptir náttúrlega gífurlega
miklu máli að fólk sem er komið á efri
ár og býr eitt og er að glíma við fjöl-
þætta sjúkdóma og annað fái nær-
ingu við hæfi.“
Veikt eldra fólk þarf
próteinríkari fæðu
Embætti landlæknis gefur út ráðleggingar um mataræði
Anna Birna
Jensdóttir
Þau voru ólík viðfangsefnin sem Íslendingar lögðu fyrir sig
um verslunarmannahelgina. Halldór Meyer var utan við
Gróttu í góðum hópi fólks sem lagði stund á svokallað sjó-
drekaflug. Við þá iðju notast iðkendur við kraftdreka og þar
til gert brimbretti til þess að þeytast eftir yfirborði sjávar.
Í suðvestan- og norðanáttinni eru aðstæður við Gróttu
einkar góðar til sjódrekaflugs. Þegar blæs úr suðaustri getur
reynst betra að leggja á hafið frá Álftanesi eða Skipaskaga.
Þá þykja Ölfusárósar heppilegir þegar blæs úr þeirri áttinni.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Þeyst eftir haffletinum rétt utan Gróttu
Ásgeir Sigurvinsson tók þátt í
stjörnuleik gamalla kempna á 125
ára afmælishátíð Stuttgart í Þýska-
landi í fyrradag. Um 60.000 manns
fylgdust með leiknum, en Ásgeir er
í miklum metum innan raða félags-
ins. Ásgeir var á sínum tíma kosinn
besti leikmaður Þýskalands ásamt
því að vinna Þýskalandsmeistara-
titilinn með liðinu. Undanfarið ár
hefur hann starfað sem sendiherra
á vegum félagsins og er því dugleg-
ur að sækja leiki liðsins. „Starfið
felst í því að maður er fenginn til að
koma á leiki að spjalla við fólk frá
ýmsum fyrirtækjum auk annarra
verkefna,“ segir Ásgeir.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fögnuður Ásgeir stýrði Íslandi til sigurs á
ógnarsterku liði Ítala í Laugardalnum 2004.
Ásgeir er sendiherra
hjá Stuttgart