Morgunblaðið - 07.08.2018, Side 23

Morgunblaðið - 07.08.2018, Side 23
endurráðin af stjórn hljómsveitar- innar til fjögurra ára. Arna Kristín hefur setið í stjórn ýmissa sjóða sem styrkja ungt tón- listarfólk. Sem tónleikastjóri Sinfón- íuhljómsveitarinnar lagði hún grunn- inn að stofnun Ungsveitar Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, árið 2009. Þar fá ungir, framúrskarandi tónlistar- nemendur tækifæri til að vinna undir handleiðslu hljóðfæraleikara Sinfón- íuhljómsveitarinnar og stjórnenda hennar: „Ég trúi svo heitt á mátt tón- listarinnar. Tónlistin er tungumál sem allir skilja og tónbókmenntirnar geyma einhver merkustu og fegurstu listaverk sem mannsandinn hefur skapað. Tónlistin fer líka með okkur í tímaflakk, við færumst á milli landa og ólíkra menningarheima á sama tíma og við komumst í snertingu við okkar eigin tilfinningar. Tónlist er þannig hálfgerður galdur sem erfitt er að útskýra.“ Arna Kristín stundar útihlaup og aðra hreyfingu, fylgist með sonunum á fótboltamótum á sumrin og fjöl- skyldan fer á skíði á veturna. „Það er nauðsynlegt að hafa góða bók við höndina, hafa eitthvað á prjónunum og hitta vini og vinkonur í sauma-, matar- eða leikhúsklúbbum. Ég vona að mér auðnist að halda góðri líkamlegri og andlegri heilsu á seinna æviskeiðinu og takist að hafa í heiðri lífsmottó Bjarnfríðar, móður- ömmu minnar, sem fékk mig í afmæl- isgjöf fyrir 50 árum: Að vanda mig við lífið!“ Fjölskylda Eiginmaður Örnu Kristínar er Hilmar Þorsteinn Hilmarsson, f. 9.10. 1971, grafískur hönnuður. Foreldrar hans eru Hilmar Jónsson, f. 6.7. 1948, búsettur í Reykjavík, og Ásdís Þor- steinsdóttir, f. 22.5. 1948 búsett á Spáni. Fyrri maður Örnu Kristínar er Geir Rafnsson, f. 10.11. 1969, endur- skoðandi hjá National Health Service í Leeds á Englandi. Dóttir Örnu Kristínar og Geirs er Halla Geirsdóttir, f. 12.9. 1992, leik- kona í London. Synir Örnu Kristínar og Hilmars Þorsteins er Hilmar Starri Hilmars- son, f. 27.7. 2004, og Styrmir Örn Hilmarsson. f. 15.11. 2009. Systur Örnu Kristínar eru Vera Einarsdóttir, 11.8. 1980, blaðamaður í Reykjavík, og Gró Einarsdóttir, f. 12.4. 1988, doktor í félagssálfræði. Foreldrar Örnu Kristínar eru hjónin Einar Karl Haraldsson, f. 17 12. 1947, ritstjóri og ráðgjafi í Reykjavík, og Steinunn B. Jóhann- esdóttir, f. 24.5. 1948, leikkona og rithöfundur. Arna Kristín Einarsdóttir Málfríður Bjarnadóttir húsfreyja áAkranesi Leó Eyjólfsson skipstjóri og bílstjóri áAkranesi Bjarnfríður Leósdóttir kennari og verkalýðsleiðtogi áAkranesi Jóhannes Finnsson bókari og sjóm. áAkranesi Steinunn B. Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur í Rvík Steinunn Jóhannesdóttir húsfreyja á Flateyri Finnur Torfi Guðmundsson skipstjóri og útgerðarm. á Flateyri Elísabet Ronaldsdóttir kvik- myndaklippari í LosAngeles Sólborg Sigurðardóttir húsfr. í Rvík allbera Jóhannesdóttir kennari og skólabókavörður áAkranesi Hildur Guðna- dóttir tónskáld Ríkharður Daðason fv. landsliðsm. í knattspyrnu Ronald Símonarson listamaður í Svíþjóð Haraldur Ingi Haraldsson myndlistarm. og fv. forstöðum. Listasafnsins áAkureyri Guðmundur Þ. Jónsson form. Iðju áAkureyri og Landssambands iðnverkafólks Ingveldur G.Ólafs- dóttir dagskrár- gerðark. á RÚV Ragnheiður Ríkharðsdóttir fv. bæjarstj. íMosfells- bæ og fv. alþm. Elísabet Ólafía Sigurðar- dóttir húsfr. í Rvík Bjarnveig Friðriksdóttir húsfr. áAkureyri Gróa Finnsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Hallbera Guðný Leós- dóttir húsfr. áAkranesi Álfheiður Steinþórsdóttir sálfr. og rithöfundur í Rvík Jón Þór Birgis- son í Sigur Rós Reynir Leósson knattspyrnukempa og framkvstj. hjá Vodafone Saga Garðars- dóttir leikkona og uppistandari Birgir Ögmunds- son vélvirki í Rvík Leó Jóhannesson kennari áAkranesi Garðar Sigur- björn Garðarsson tæknifr. í Rvík Ingibjörg Sigurðardóttir húsfr. í Rvík H Hallbera Guðný Gísladóttir landsliðsk. í knatt- spyrnu Garðar Finnsson skipstj. áAkranesi Ragnheiður Kristín Kristjánsdóttir klæðskeri áAkureyri Matthías Einar Guðmundsson lögregluþjónn í Reykjavík Sigríður Kristbjörg Matthíasdóttir verslunarkona áAkureyri Haraldur A.M. Sigurðsson íþróttakennari áAkureyri Jakobína G. Camilla Friðriksdóttir yfirsetukona á Hjalteyri Sigurður Gunnar Jónsson sjómaður á Hjalteyri Úr frændgarði Örnu Kristínar Einarsdóttur Einar Karl Haraldsson ritstjóri og ráðgjafi í Rvík Á Hjalteyri Þar er Friðrikshús, þar sem afi Örnu fæddist og stórfjöl- skyldan nýtur samverustunda. DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 Sigurður Sigfússon fæddist 7.ágúst 1918 á Hofi á Höfða-strönd. Foreldrar hans voru hjónin Sigfús Hansson bóndi, síð- ast í Gröf á Höfðaströnd, f. 1874, d. 1946, og Anna Jónína Jósafats- dóttir húsfreyja, f. 1879, d. 1941. Foreldrar Sigurðar fluttust frá Hofi að Gröf árið 1921 og ólst hann þar upp. Hann fór í trésmíðanám í Iðnskólanum á Siglufirði árið 1938 og lauk þaðan burtfararprófi vorið 1941. Að því loknu fór hann til Vestmannaeyja og lauk þaðan sveinsprófi árið 1943. Árið 1945 fluttist hann til Sauðárkróks og hlaut þar meistarabréf í iðn sinni. Á Sauðárkróki var Sigurður með umsvifamikinn rekstur til ársins 1958. Hann var með bygginga- starfsemi og reisti m.a. barnaskóla og verkamannabústaði og hélt úti vinnuflokkum sem í voru að minnsta kosti 40 manns. Hann var með trésmíðaverkstæði, útskrifaði marga trésmiði og rak um tíma einnig húsgagnaframleiðslu. Hann rak verslun, byggði frystihús og hóf slátrun og fiskvinnslu og beitti sér fyrir fyrstu togaraútgerð á Sauðárkróki með þátttöku í út- gerðinni á Norðlendingi í samráði við Ólafsfirðinga auk síldarsöltunar. Árið 1958 flutti hann til Reykja- víkur og stofnaði þar Fasteigna- miðstöðina sem lengst af var í Austurstræti. Hann starfaði sem fasteigna- og skipasali í tæp 30 ár, eða til 1985. Sigurður var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Helga Guðrún Bald- vinsdóttir. Þau eignuðust einn son, Frey Baldvin, f. 1943, d. 2011. Önnur kona Sigurðar var Geirlaug Helga Þorkelsdóttir. Börn þeirra eru Una, f. 1948, Sigfús Jón, f. 1951, Zophanías Þorkell, f. 1955, og Alma, f. 1957. Þriðja eiginkona Sigurðar var Bára Sigrún Björns- dóttir. Börn þeirra eru Pétur Þór, f. 1954, kjörsonur Sigurðar, Birna, f. 1964, og Sigurður Birkir, f. 1969. Sigurður lést 8. janúar 1997. Merkir Íslendingar Sigurður Sigfússon 101 ára Anna Hallgrímsdóttir 85 ára Dagný Rafnsdóttir Rögnvaldur Guðbrandsson 80 ára Erling Einarsson 75 ára Alda Magnúsdóttir Anna Gústafsdóttir Hafsteinn B. Sigurðsson Hreiðar V. Guðmundsson Kristján Þór Haraldsson Ragna Skagfjörð Bjarnadóttir Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir Viðar Björnsson Þuríður Gunnarsdóttir 70 ára Árni Vigfússon Fahri Ajdini Guðmundur Jón Skarphéðinsson Ingvaldur Ásgeirsson Jakobína Færseth Júlíus Hólm Baldvinsson Lárus Kristinn Lárusson Rúnar Gíslason 60 ára Hildur Þuríður Sæmundsdóttir Hulda Björg Rósarsdóttir Jóhann Garðarsson Karólína Birna Snorradóttir Marías Hafsteinn Guðmundsson Sófus Páll Helgason Valborg Kjærbech Óskarsd. Þóra Sigurþórsdóttir 50 ára Alexander Högnason Ann Linda Denner Birna Dagbjört Þorláksd. Birna Sigurbjörnsdóttir Diego Mendoza Madrazo Drífa Björk Guðmundsd. Eiríkur Eiríksson Friðjón Rúnar Sigurðsson Guðjón Þór Baldursson Hörður Gunnarsson Karólína Júlíusdóttir Kristján Jónsson Linda Sólveig Magnúsdóttir Sigríður Halla Stefánsdóttir Sigurður Páll Ásmundsson Torfi Sigurbjörnsson 40 ára Alejandro Sambiagio Bjarne Klemenz Vesterdal Elfa Björk Rúnarsdóttir Halla Sif Elvarsdóttir Jóhanna Lúvísa Reynisd. Jóna María Ásmundsdóttir Óskar Þór Hauksson Sigurlína Dögg Sigurðard. Sofiya Dimitrova Zahova Svava Elfarsdóttir Þórdís Þúfa Björnsdóttir 30 ára Anna Margrét Arthúrsdóttir Anna Marie Lárusdóttir Bergur Páll Gylfason Björg Birgisdóttir Daniel Olaru Emil Freyr Júlíusson Freyja Þorvaldardóttir Guðmundur H. Úlfarsson Heiðrún Hafsteinsdóttir Íris Arnardóttir Karol Komosinski Ragnar Sigurðarson Taib Boulefra Tryggvi Höskuldsson Valgeir Hrafn Snorrason Til hamingju með daginn 40 ára Jóna María er Mosfellingur og er vöru- stjóri hjá Hagkaupum. Maki: Óli Pétur Möller, f. 1969, kerfisfræðingur og eigandi Netvals. Börn: Ásmundur Ingi, f. 2000, og Birta Möller, f. 2010. Stjúpdætur eru Andrea, f. 1989, og Rósa Margrét,. f. 1993. Foreldrar: Ásmundur Jónatansson, f. 1953, d. 1995, og Sína Þorleif Þórðardóttir, f. 1953. Jóna María Ásmundsdóttir 40 ára Lína er Akur- eyringur og býr þar.. Börn: Helena Dögg, f. 1999, og Hildur Jana, f. 2005. Systkini: Lárus Orri, f. 1973, Kristján Örn, f. 1980, og Aldís Marta f. 1993. Foreldrar: Sigurður Krist- ján Lárusson, f. 1954, d. 2018, skipasmiður, knatt- spyrnumaður og -þjálfari, og Valdís Ármann Þorvalds- dóttir, f 1955, hárgreiðslu- meistari á Akureyri. Sigurlína Dögg Sigurðardóttir 30 ára Íris er Reykvík- ingur og er birtinga- ráðgjafi hjá Birtingahús- inu. Hún er þjóðfræðingur að mennt. Maki: Hjörtur Helgi Þor- geirsson, f. 1986, raf- virkjameistari og eigandi HHÞ raflagna. Börn: Birkir Máni, f. 2009, og Björgvin Örn, f. 2013. Foreldrar: Örn Gunnars- son, f. 1955, og Bryndís Guðjónsdóttir, f. 1957 Íris Arnardóttir Nýr stór humar Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.