Morgunblaðið - 07.08.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018
Sigurður Björnsson krabba-meinslæknir ritaði fróðlega
grein um heilbrigðismál hér í blað-
ið á laugardag. Þar bendir hann á
að Ísland standi fremst í flokki á
ýmsa mælikvarða
þegar kemur að
gæðum heilbrigðis-
þjónustunnar en sé
engu að síður í
meðallagi þegar
kemur að kostnaði.
Þetta er eftirtekt-
arverður árangur.
En Sigurður hefur áhyggjur afþróuninni. Einn þáttur í kerf-
inu hér á landi er sjálfstætt starf-
andi sérfræðilæknar og hefur
kostnaður við þann þátt verið hóf-
legur þannig að hver króna hefur
skilað tiltölulega miklu.
Hann segir nýjustu ráðstöfunheilbrigðisyfirvalda vera að
„bregða fæti fyrir unga lækna sem
lokið hafa sérnámi og hyggjast
koma til starfa á Íslandi með nýj-
ustu þekkingu og hefja störf innan
heilbrigðisþjónustunnar með sama
hætti og forverar þeirra hafa gert
til þessa. Þeir fá ekki að starfa eftir
samningi við Sjúkratryggingar Ís-
lands eins og þeir sem fyrir eru,
þannig að sjúklingar sem til þeirra
leita þurfa að bera allan kostnaðinn
af læknisheimsókninni sjálfir og
eru þannig sviptir sjúkratrygg-
ingum, sem þeir hafa greitt iðgjöld
fyrir frá unglingsaldri. Með þessu
eru yfirvöld að innleiða mismunun
þar eð tryggingarnar taka þátt í
greiðslu fyrir þjónustu hjá sumum
læknum en ekki fyrir sömu þjón-
ustu hjá öðrum læknum. Þetta eru
nýmæli, sem ganga þvert á vinnu-
reglur trygginganna og yfirlýsta
stefnu yfirvalda til þessa.“
Full ástæða er til að taka undiráhyggjur Sigurðar um þá við-
horfsbreytingu sem virðist vera að
eiga sér stað hjá heilbrigðisyfir-
völdum.
Sigurður
Björnsson
Fæti brugðið
fyrir unga lækna
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 11 léttskýjað
Þórshöfn 11 rigning
Ósló 18 rigning
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 8 heiðskírt
Lúxemborg 33 heiðskírt
Brussel 30 heiðskírt
Dublin 21 skýjað
Glasgow 19 alskýjað
London 30 heiðskírt
París 33 heiðskírt
Amsterdam 27 heiðskírt
Hamborg 30 heiðskírt
Berlín 28 heiðskírt
Vín 30 skýjað
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 30 heiðskírt
Madríd 34 heiðskírt
Barcelona 30 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 30 þrumuveður
Aþena 31 léttskýjað
Winnipeg 17 skýjað
Montreal 27 léttskýjað
New York 32 heiðskírt
Chicago 23 rigning
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:55 22:13
ÍSAFJÖRÐUR 4:42 22:36
SIGLUFJÖRÐUR 4:24 22:20
DJÚPIVOGUR 4:20 21:47
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Rétta
þjálfunin
sem veitir vellíðan!
Haustkortið komið í sölu!
Besta verð 49.900 kr.
gildir til 29. desember
„Það er alveg mögulegt að þetta sé hluti af ein-
hverri upplifun,“ segir Magnús Eyjólfsson, einn
eigenda Retro Guesthouse á Blönduósi, um tvær
timburtunnur sem útbúnar hafa verið sem gisti-
rými fyrir gesti gistihússins. Tunnurnar, sem upp-
runalega komu frá Eistlandi, hafa notið mikilla vin-
sælda meðal erlendra ferðamanna hér á landi.
Magnús segir að þegar hann festi ásamt öðrum
kaup á rekstri Retro Guesthouse árið 2016 hafi
ýmsu verið ábótavant innan tunnanna. „Ég kynnt-
ist konunni minni ekki fyrir svo löngu og fékk um
svipað leyti spurnir af því að maðurinn sem átti
Retro Guesthouse væri í söluhugleiðingum. Þetta
var ekki auglýst eða neitt þannig heldur hringdum
við bara í hann og hann seldi okkur þetta. Í fyrra
fórum við síðan í það að innrétta þetta betur,“ segir
Magnús og bætir við að auk timburtunnanna sé
gistihúsið með aðra gistimöguleika á sínum snær-
um. Það séu hins vegar timburtunnurnar sem njóti
mestra vinsælda meðal erlendra ferðamanna.
„Þetta lítur auðvitað smá út eins og hobbitahús,
sem gerir þetta að upplifun sem er ólík flestu öðru,“
segir Magnús. aronthordur@mbl.is
Bjóða gistingu í timburtunnum
Hefur notið mikilla vin-
sælda meðal ferðamanna
Ljósmynd/Booking.com
Timburtunna Gistirýmin eru á Blönduósi en þau
voru innréttuð að nýju fyrir um ári.
Veðurstofa Íslands tilkynnti um gas-
mengun í gær nærri ánni Múlakvísl
austan við Vík í Mýrdal. Að sögn
Huldu Rósar Helgadóttur, náttúru-
vársérfræðings hjá Veðurstofunni,
eiga katlar í Mýrdalsjökli það til að
leka jarðhitavatni og fylgir þeim
brennisteinslykt. „Þetta er ekki
eiginlegt hlaup heldur er betra að
kalla þetta leka. Slíkir lekar eiga sér
stundum stað á þessu svæði.“ Hún
hvetur fólk til að staldra ekki lengi
við í kringum upptök árinnar í
lengri tíma því það geti valdið óþæg-
indum. Lekinn úr katlinum tengist
ekki hlaupinu í Skaftá. „Þetta er al-
gjör tilviljun, að okkur séu að berast
tilkynningar vegna brennisteins-
lyktar á þessum tveimur svæðum, en
katlarnir eru alveg aðskildir og ekki
hluti af sama kerfi,“ útskýrir Hulda.
ninag@mbl.is
Mengun við
Múlakvísl
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mengun Jarðhitavatn sem barst í
ána hefur orsakað gasmengun.