Morgunblaðið - 07.08.2018, Síða 9

Morgunblaðið - 07.08.2018, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Trilene XL nylon línur til lax- silungs- og sjóveiða í fjölbreyttu úrvali einnig taumaefni. Fjölbreyt úrval af hjólum og stöngum, til sportveiða fyrirliggjandi. Vöðluskór með skiptanlegum sóla, filt, gúmmí og negldir sólar. Tvennir sólar fylgja. Þessir skór voru valdir bestu Vöðlu skórnir á Efftex veiðisýningunni 2016. Ugly Stik kaststang- irnar eru sterku stangir á mark- aðnum. Gott úrval af kast- stöngum og hjólum, strandveiðstangir, Combo strand- veiðistöng og hjól, sjóstangir. Stærsta úrval stanga og hjóla til sjóveiði. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Veiðisport Selfossi Þjónustustöðvar N1 um allt land. Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Við viðgerðir á gólfi Hvalsneskirkju hefur komið í ljós að burðarbitar í undirstöðum kirkjunnar eru úr rauð- viði, væntanlega úr timburflutn- ingaskipinu Jamestown sem strand- aði við Hvalsnes árið 1881. Undirlag burðarbitanna hefur sigið sums stað- ar þannig að gólfið hallar. Reynir Sveinsson, formaður sóknarnefndar Hvalsneskirkju, sem er sóknarkirkja Sandgerðinga, segir að byrjað hafi verið á því að skipta um glugga kirkjunnar. Smiðirnir fóru síðan að huga að gólfinu. Missig er í því. Til dæmis hallar prédikunarstóll- inn. Reynir segir að það stafi af því að grjót og jarðvegur undir burðarbitum hafi sigið. Þegar smiðirnir koma aftur úr fríi verða undirstöðurnar lagaðar þannig að hægt verði að koma gólfinu í rétta hæð. Draugaskip fullt af timbri Burðarbitarnir eru úr harðviði og er talið að hann sé úr bandaríska timburflutningaskipinu Jamestown sem strandaði við Hvalsnes um Hvítasunnu árið 1881. Þetta var stórt seglskip og átti að flytja timbur frá Boston til Liverpool, alls um 100 þús- und planka. Eitthvað varð til þess að skipverjarnir þurftu að yfirgefa skip- ið og var bjargað í annað skip en Jamestown rak mannlaust á hafinu í fjóra mánuði uns það strandaði við Hvalsnes. Fljótlega brotnaði það í spón og timbrið dreifðist um fjörur. Rekinn var boðinn upp og var timbrið notað í fjölda bygginga á Suð- vestur- og Suðurlandi. Bitarnir í Hvalsneskirkju standa fyrir sínu en skipta þarf um gólffjalirnar sem einn- ig eru upprunalegar en hafa skemmst undir teppum og öðrum gólfefnum. Ferðamenn forvitnir Kirkjan er lokuð á meðan á fram- kvæmdum stendur. Kirkjubekkir, ofnar og fleiri munir eru geymdir á meðan í gámi fyrir utan. Reynir segir að fjöldi ferðamanna komi að kirkj- unni á hverjum degi. Margir séu áhugasamir um framkvæmdirnar og reyni hann að upplýsa fólk eftir því sem hægt er. Mikilvægt er að ljúka viðgerðinni fyrir 6. nóvember, að sögn Reynis, því þá er kirkjan bókuð fyrir brúð- kaup. Það var gert áður en byrjað var á framkvæmdum. Svo vill til að væntanlegur brúðgumi er sonur yfir- smiðsins, Páls Gíslasonar hjá Staftré í Sandgerði, og segir Reynir að það ætti að styrkja áætlun um verklok. Ketill Ketilsson, stórbóndi í Kot- vogi, kostaði byggingu kirkjunnar. Hún er hlaðin úr tilhöggnum steinum sem sóttir voru í klappir í nágrenn- inu. Hún var vígð á jólum árið 1887. Rauðviður úr Jamestown heldur kirkjugestum uppi  Kappkostar að ljúka verkinu fyrir brúðkaup sonarins Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Gólfið opnað Páll Gíslason yfirsmiður opnaði gólfið til að huga að undirstöðum. Góðir viðir úr Jamestown halda gólfinu uppi. Þungt Smiðirnir þurftu að bera leg- stein Steinunnar dóttur Hallgríms Péturssonar út úr kirkjunni. Á forsíðu blaðs Fiskidagsins mikla sem dreift er með Morgunblaðinu í dag stendur að Fiskidagurinn mikli sé 12. ágúst. Hið rétta er að Fiski- dagurinn mikli er á laugardegi eins og síðastliðin 17 ár og ber nú upp á 11. ágúst. Fiskidagurinn mikli er 11. ágúst Börkur Vígþórsson hefur verið ráðinn skólastjóri Smáraskóla í Kópavogi. Börkur hefur langa reynslu af skólastjórnun. Þannig hefur hann frá árinu 2012 verið skólastjóri Ölduselsskóla. Þar áð- ur, á árunum 2006-2012, veitti hann Grandaskóla forstöðu og á árunum 2000-2006 var hann skólastjóri grunnskólans á Egils- stöðum. Börkur er með B.Ed-gráðu í grunnskólakennarafræðum ásamt 30 eininga viðbótarvalgrein í myndmennt frá KHÍ. Þá hefur hann einnig lokið diplómaprófi í stjórnun menntastofnana. Börkur verður skóla- stjóri í Smáraskóla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.