Morgunblaðið - 07.08.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.08.2018, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 Theodóra Þorsteinsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Borgar-fjarðar, söngkona og söngkennari, á 60 ára afmæli í dag.170 nemendur eru skráðir í skólann næsta haust, en ellefu kennarar munu starfa við hann í vetur. Höfuðstöðvarnar eru í Borgarnesi, en skólinn er síðan með útibú á Hvanneyri, Kleppjárns- reykjum og Varmalandi. Theodóra hefur verið skólastjóri tónlistarskólans frá 1991. „Ég var ráðin til að leysa af skólastjórann sem fór í ársleyfi, en svo ákvað hann að hætta alveg og þá tók ég við og hef verið hér síðan.“ Hún hefur þó alltaf verið að syngja meðfram starfinu. „Svo syngjum við fjölskyldan mikið saman og komum fram á tónleikum. Ég verð með afmælisveislu í kvöld í Hjálmakletti fyrir vini og vandamenn og hún byrjar á tónleikum okkar fjölskyldunnar.“ Eiginmaður Theodóru er Olgeir Helgi Ragnarsson, sem er með prentþjónustu í Borgarnesi, en hann kláraði söngnám frá Tónlistar- skóla Borgarfjarðar í fyrra. Dætur þeirra eru Sigríður Ásta, sem er í leiklistarnámi í Kaupmannahöfn, og Hanna Ágústa, sem er í söngnámi í Leipzig, en þær eru báðar söngmenntaðar frá Söngskól- anum í Reykjavík eins og mamma þeirra. „Við munum öll syngja í afmælinu og góð vinkona og frænka, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, leikur undir á píanó.“ Auk klassískrar tónlistar hlustar Theodóra einnig á Elly Vil- hjálms og ABBA og tónlist af þeim toga og hún hefur gaman af því að ferðast og horfa á góðar bíómyndir. „Við höfum aðeins verið að ferðast um hálendið í sumar. Við reynum frekar að vera heima á Íslandi á sumrin en skreppum til útlanda á veturna og heimsækjum stelpurnar.“ Fjölskyldan Theodóra, Hanna Ágústa, Sigríður Ásta og Olgeir stödd í Vínarborg vorið 2014, en þar stundaði Theodóra söngnám. Fjölskyldutónleikar í afmælisveislunni Theodóra Þorsteinsdóttir er sextug í dag A rna Kristín Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 6.8. 1968 og ólst þar upp að mestu. Foreldrar henn- ar voru við nám í Sví- þjóð 1969-1972 og fjölskyldan flutti aftur út og bjó í Stokkhólmi á árunum 1985-1990. Arna Kristín lauk stúdentsprófi af tónlistar- og nýmálabraut MH árið 1988, einleikaraprófi í flautuleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1990, útskrifaðist með láði með Profess- ional Performance í flautuleik frá In- diana-háskóla í Bloomington í Banda- ríkjunum 1992, stundaði síðan nám við Konunglega tónlistarháskólann í Manchester og lauk þaðan postgra- duate-gráðu árið 1997. Arna Kristín bjó í Manchester og starfaði við flautuleik og kennslu þar til ársins 2000 þegar hún vann prufu- spil um afleysingastöðu annars flautuleikara hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem hún gegndi í fjögur ár. Arna Kristín hóf meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst 2004 og útskrifaðist 2007. Eft- ir farsælan feril sem flautuleikari og kennari á Englandi og Íslandi í tvo áratugi snéri hún sér að menningar- stjórnun. Hún var dagskrárstjóri Norræna hússins, síðan verkefna- stjóri á skrifstofu Menningar- og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ, tón- leikastjóri Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands frá 2007 og var ráðin fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2013. Árið 2017 var hún Arna Kristín Einarsdóttir, framkv.stj. Sinfóníunnar – 50 ára Í leikhúsi í London Styrmir Örn, Arna Kristín, Hilmar Starri og Steinunn Halla að horfa á leikritið The Lion King. Vill vanda sig við lífið Hjónin Arna Kristín og Hilmar giftu sig á afmælisdegi hennar árið 2005. Keflavík Sara Björk fædd- ist 30. september 2017 í Reykjavik. Hún vó 3.795 g og var 50 cm löng. For- eldrar hennar eru Roberto Malatesta og Pilar Diaz. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Ármúla 24 - s. 585 2800 Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift aðMorgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.