Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 17
AFP Bílar Stefan Löfven í viðtali fyrir framan brennda bíla. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Grímuklæddir skemmdarvargar kveiktu í allt að áttatíu bílum í vest- urhluta Svíþjóðar í gærnótt. Grunur leikur á um að um sé að ræða skipu- lega árás í aðdraganda þingkosning- anna sem haldnar verða í september. „Ég er öskureiður,“ sagði Stef- an Löfven, forsætisráðherra Svíþjóð- ar, um árásirnar. „Mín spurning er: Hvað í andskotanum eruð þið að gera? Þið eruð að eyðileggja fyrir sjálfum ykkur, fyrir foreldrum ykkar og nágrönnum!“ Kveikt var í flestum bílunum í og í kringum Gautaborg seint á mánudagskvöldi. Sænska lögreglan telur að íkveikjurnar hafi verið skipulagðar með fyrirvara á sam- félagsmiðlum. Löfven sagði um skemmdarverkin að þau hefðu verið mjög samhæfð, nánast eins og hern- aðaraðgerð. Tveir í varðhaldi Að sögn sænska ríkismiðilsins SVT hafa tveir ungir menn verið hnepptir í varðhald, grunaðir um aðild að íkveikjunum. Lýst hefur verið eftir einum manni til viðbótar. Lögreglan telur þó ekki að neinn annar en ungmennin sjálf hafi skipulagt íkveikjurnar. Kveikt var í alls 1.457 bílum í Svíþjóð í fyrra. Glæpir af þessu tagi, yfirleitt af völdum ungmenna, eru algengir í sænskum úthverfum. Hans Lippens, talsmaður lögregl- unnar í vesturhluta landsins, sagði þó við AFP að hann hefði aldrei séð kveikt í svo mörgum bílum áður. „Svíþjóð hefur liðið þetta of lengi,“ sagði Ulf Kristersson, for- maður Hægriflokksins, um íkveikj- urnar. „Þessu verður að ljúka núna.“ Kveikt í áttatíu bílum í Gautaborg  „Þið eruð að eyðileggja fyrir sjálfum ykkur, fyrir foreldrum ykkar og nágrönn- um!“ segir Löfven við skemmdarvargana  Talið skipulagt á samfélagsmiðlum FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRAKvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Vinnupallar margar stærðir og gerðir VIÐ leigjum út palla og kerrur Óhætt er að segja að fáir hafi harm- að það þegar François Hollande, fyrrverandi forseti Frakklands, hvarf úr Élysée-höllinni í maí árið 2017. Óvinsæl efnahagsstefna, at- vinnuleysi og tíðar hryðjuverka- árásir höfðu gert hann að einum óvinsælasta forseta í lýðveldissögu Frakklands og stuðningur við hann mældist reglulega undir tíu pró- sentum undir lok stjórnartíðar hans. Aðeins rúmu ári eftir brotthvarf Hollande úr embætti virðast þó ein- hverjir vera farnir að líta stjórnartíð hans jákvæðari augum. Samkvæmt frétt Huffington Post hefur bækl- ingi verið dreift meðal Frakka síð- ustu mánuði með titlinum „Hollande 2022“. Í honum stendur: „Hver stóð gegn árásunum? Hver bjargaði fjár- hag ríkisins? Hver barðist gegn at- vinnuleysi? Það var François Hol- lande. Sögunni er ekki lokið.“ Næstu forsetakosningar Frakk- lands verða haldnar árið 2022. Svo virðist sem hópur ungra framfara- sinna undir nafninu Inventons Demain („Hönnum morgundaginn“) standi að baki bæklingnum og vilji kanna vinsældir Hollande. Hollande 2022 – „Sögunni ekki lokið“  Kanna stuðning við fyrrverandi forseta AFP Í framboð? François Hollande, fyrr- verandi forseti, á fótboltaleik. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Hópur vegfarenda slasaðist nærri þinghúsi Bretlands í Westminster þegar bíll ók í gegnum mannfjöldann og rakst á súlurnar fyrir framan þinghúsið. Samkvæmt umfjöllun AFP um atkvikið hefur lögreglan handtekið bílstjórann og heldur hon- um grunuðum fyrir hryðjuverk. Neil Basu, formaður hryðjuverka- forvarna hjá Scotland Yard, sagði í tilkynningu á vef bresku lögreglunn- ar að þar sem bílstjórinn virtist hafa ekið á fólkið af ásettu ráði væri áreksturinn rannsakaður sem hryðjuverk. Vitnum að árekstrinum kom saman um að ekið virtist hafa verið viljandi á vegfarendurna. Í tilkynningunni kemur fram að bíllinn hafi verið af Ford Fiesta- gerð. Honum var ekið á hjólreiða- menn og gangandi vegfarendur áður en hann fór á hraðahindrunarsúlur fyrir framan þinghúsið og nam stað- ar. Tveir menn, karl og kona, hafa verið flutt á sjúkrahús vegna alvar- legra áverka. Einn til viðbótar slas- aðist en þurfti ekki að fara á sjúkra- hús. Önnur árásin á tveimur árum Aðeins rúmt ár er liðið frá því að svipuð árás var gerð fyrir utan West- minster-höll. Í þeirri árás keyrði maður að nafni Khalid Masood á hóp vegfarenda á Westminster-brúnni og stakk lögreglumann til bana áður en hann var sjálfur skotinn. Fimm manns létust í árásinni og um 50 særðust. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, ráðlagði borgarbúum að vera á varðbergi en láta árásina þó ekki raska ró sinni. Hún sagði að í annað sinn á jafnmörgum árum hefði hörmulegur atburður orðið nokkrum metrum frá „húsi lýðræðisins, sem er máttugt tákn um dýrmæt gildi okkar um umburðarlyndi og frelsi.“ Ekið á fólk við Westminster  Árásin rannsökuð sem hryðjuverk Æði kalt er orðið á milli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og fyrr- verandi aðstoðarkonu hans, Om- arusu Manigault Newman. Newman var keppandi í The Apprentice, veruleikaþætti Trumps. Hún fylgdi Trump sem starfsmaður í Hvíta hús- ið en John Kelly skrifstofustjóri vék henni frá störfum í fyrra. Eftir að Newman birti upptöku af eigin brottrekstri í vikunni kallaði Trump hana „skítseiði“. Í gær birti Trump twitterfærslu þar sem hann gekk lengra: „Þegar maður gefur klikkuðu vælandi skítseiði tækifæri og ræður hana í Hvíta húsið gengur það víst bara ekki. Gott hjá Kelly hershöfðingja að reka þennan hund fljótt!“ Trump kallar Omarosa „hund“ BANDARÍKIN „Allir Lundúnabúar, eins og ég, fordæma öll hryðjuverk í borg- inni okkar,“ sagði Sadiq Khan borgarstjóri um árásina. „Við- brögð Lundúnabúa í dag sýna að okkur verður aldrei ógnað né sundrað af nokkurri hryðju- verkaárás.“ Samkvæmt frétt BBC er sá grunaði frá Birmingham. Árásin fordæmd „VERÐUR ALDREI ÓGNAГ Um 30 manns létu lífið þegar Morandi-brúin við Genúa á Ítalíu hrundi í gær. Eldingu laust niður í brúna rétt áður en hún hrundi og bílar hröpuðu heila hundrað metra niður á lestarteina fyrir neðan. Sá hluti brúar- innar sem brotnaði var um 200 metra langur. Matteo Salvini, innanríkisráðherra Ítalíu, segist ætla að kom- ast að því hver „beri ábyrgð“ á hruninu. Um 200 slökkviliðsmenn tóku þátt í björgunaraðgerðum. AFP Tugir fórust þegar brú hrundi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.