Morgunblaðið - 15.08.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á lambið
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
Glæsilegt fullbúið 342 m3
einbýlishús á einni hæð með
tvöföldum bílskúr innst í botn-
langa. Eignin er skráð 342 m2,
einbýli 282 m2 og bílskúr 60 m2.
Glæsilegar innréttingar og gólfefni.
Eignin skiptist í stofu, borðstofu,
sjónvarpshol, eldhús, fjögur svefn-
herbergi, þrjú baðherbergi, geymslu,
þvottahús og bílskúr. V. 119,7 m.
Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080
fastmos@fastmos.is // fastmos.is
Opið hús fimmtudaginn 16. ágúst
frá kl. 17.30 til 18.00
Laxatunga 169 - Nýtt einbýlishús
Á síðastliðnum árum
höfum við farið í gegn-
um gríðarlegar áskor-
anir. Meðal annars
gjaldeyriskreppu og
háð baráttu fyrir efna-
hagslegu sjálfstæði.
Leitt endurreisn hag-
sældar á Íslandi og um
leið tryggt eftir
fremsta megni rétt
landsmanna til sjálf-
stæðrar búsetu. En um leið höfum
við sem þjóð þurft að eiga við sögu-
leg átök í landsmálum, átök sem
skilið hafa eftir sárindi sem aðeins
tíminn getur grætt.
Sem Íslendingar þekkjum við
átök og eigum ekki að vera hrædd
við þau. Því jú, fyrir um öld síðan
var landið talið með þeim allra fá-
tækustu í gjörvallri
Evrópu. Þá tókum við
höndum saman um
samvinnustefnu. Ekki
með ofbeldi, yfirgangi
eða ótta heldur hug-
sjón. Að framtíð full-
veldis færi saman við
getu okkar sem þjóðar
til að starfa saman að
ákveðnum og sameig-
inlegum markmiðum.
Okkar persónulegu
markmiðum væri best
náð með samvinnu
allra. Hvort sem þau væru afkomu-
eða starfsöryggi, hagsæld, mennt-
un, sköpun og eða að fá að tilheyra
samfélagi mannúðar og mann-
gæsku.
Okkar kraftur lá og liggur í sam-
vinnu og samtali. Ekki er hægt að
segja að Íslendingar séu að eðlisfari
svokallað já-fólk. Þvert á móti bygg-
ist hugsjón okkar á notkun rök-
hyggju. Þannig byggist framþróun
landsins ekki aðeins á einni hug-
mynd, heldur þúsund. Þar tekur
gríðarlegur fjöldi landsmanna þátt í
samræðum, greinum og komment-
um á ári hverju og rökræðir hug-
myndir og stefnur. Það er byggt á
þeirri trú að ekki ein hugmynd væri
hið endanlega svar við öllu vanda-
málum dagsins. Heldur þarfnaðist
hið mannlega samfélag skoðunar
hvers einstaklings og þess sem hann
hefur fram að færa. Þannig hefur
forystufólk þjóðarinnar á ólíkum
tímum oft lítið lagt sig fram við að
taka hrósi um það sem vel gengur,
heldur hlustað meira á gagnrýni um
það sem betur má fara.
Um árin hafa landsmenn þorað að
koma með róttækar stefnubreyt-
ingar. Þannig var stefna þjóð-
arinnar um aldamótin að setja tals-
verðar fjárhæðir í forvarnastarf
talin róttæk. Stefna sem skilaði
fyrst árangri rúmum áratug seinna
svo að hér fór að draga úr neyslu
ungmenna á vímuefnum. Að sama
skapi var stefna um að setja feðra-
orlof umdeild en róttæk breyting.
Slík þor í róttækum jafnréttis-
málum hafði mögulega hvað mest að
segja í baráttu jafnréttis hin síðari
ár. Að sama skapi þurfti þjóðin öll –
nánast með manni og mús – að taka
hér aftur upp fullveldisbaráttu eftir
efnahagshrunið. Skilyrði Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins um skyldu ís-
lenska ríkisins til greiðslu á skuld-
um einkabanka var litlu minni
barátta en sjálft Þorskastríðið. Í
þeim málum treystu forystumenn
að lokum þjóðinni fyrir valdinu og
um leið að hver einstaklingur ætti
að hafa rödd þegar kæmi að sameig-
inlegum ákvörðunum.
Svo undarlegt sem mörgum kann
að virðast var róttækni þjóðarinnar
litlu minni eftir síðustu þingkosn-
ingar. Þannig var að þjóðin kaus sér
nýja forystu. Forystu sem samein-
aði um leið ábyrgð, staðfestu og
hugsjón. Hugsjónir sem voru
byggðar á því að koma hér á stöð-
ugu stjórnarfari um leið og farið var
í mikla og fjárfreka styrkingu inn-
viða og verndun náttúrunnar. Hug-
sjónir sem byggðust ekki bara á
stefnu fyrir kosningar, heldur virð-
ingu fyrir niðurstöðum hennar.
Virðingu fyrir að hér þurfti að leiða
saman vinstri og hægri flokka í átt
að almennu frjálslyndi og öflugri
velferð og náttúruvernd.
Fullveldi þjóðarinnar er sem fyrr
byggt á að við vinnum saman og
séum vakandi fyrir áskorunum
framtíðarinnar. Fjórða iðnbyltingin
er sem dæmi nú þegar byrjuð. Ný-
sköpun, framþróun og öflug
menntastefna hlýtur að vera í for-
grunni okkar skipulagningar. Um
leið og á rúmri öld höfum við farið
úr mikilli örbrigð til meiri efnahags-
legrar velgengni. Þurfum við að
bera ábyrgð á þeim sem minna
mega sín. Ábyrgð okkar á skyn-
samlegri nýtingu auðlinda til að
taka þátt í þeim áskorunum sem
loftlagsbreytingar munu hafa í för
með sér verður að halda áfram. Fyr-
ir öld síðan tókum við hér höndum
saman um betri lífgæði. Sú vinna er
langt komin. Næsta öld verður að
sögn okkar færustu vísindamanna
jafnvel ekki minni áskorun en sú
sem er liðin vegna loftslagsbreyt-
inga. Saman höfum við aflað þekk-
ingar á viðbrögðum við landslags-
hræringum og vályndu veðri. Á
komandi öld verður okkar áskorun
að koma áfram þeirri þekkingu og
auka, allri heimsbyggðinni til heilla.
Eftir Alex B.
Stefánsson »Næsta öld verður, að
sögn okkar færustu
vísindamanna, jafnvel
ekki minni áskorun en
sú sem er liðin vegna
loftslagsbreytinga.
Alex B. Stefánsson
Höfundur er varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins og formaður SIG-
RÚNAR (Félags ungra Framsókn-
armanna í Reykjavík).
Samvinnuhugsjónin og loftslagsbreytingar
Þættir í RÚV um
Intersex hafa verið
fræðandi jafnvel fyrir
mig en geta aldrei
verið tæmandi varð-
andi fjölbreytni né
úrræði sem nú eru
orðin umdeilanleg.
Þekktasti ein-
staklingur seinni ára
með þetta ástand er
óefað Caster Seme-
nya frá Suður-Afríku sem vann
800 metra hlaup kvenna á Heims-
meistaramótinu í frjálsíþróttum í
Berlín árið 2009. Aðrir
keppendur í hlaupinu
létu hafa eftir sér í
blöðum að hún gæti
ekki verið kona og
upphófst langvarandi
fjölmiðlaumfjöllun.
Hún var látin hætta
keppni um tíma og
undirgangast ná-
kvæma rannsókn. Ég
var áhorfandi á
mótinu eftir setu á
þingi Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins (IAAF) en tólf
ára setu minni í læknanefndinni
var nýlokið. Ég fylgdist því með
upplýsingum, oft fræðandi, og
kynnti í grein í Morgunblaðinu í
september 2009 með titlinum
„Kynferði íþróttamanna“ um frá-
vik á þróun kynferðis einstaklinga
og kom að orðinu Inter-sex. Ég
hef síðan ekki verið beðinn né því
getað hafnað að miðla af minni af-
mörkuðu þekkingu eins og ætla
mátti af þætti RÚV.
Caster Semenya var leyft að
snúa aftur til keppni og viður-
kennd sem „kvenkeppandi“. Ég
veit ekkert persónulega um lækn-
isfræðilega niðurstöðu í máli
hennar, aðeins það sem hver og
einn getur kynnt sér á netinu sem
og ítarlegar upplýsingar um int-
ersex. Umfjöllun á máli Caster
Semenya sem naut alltaf stuðn-
ings í sínu samfélagi hefur senni-
lega orðið hvað mest til að auka
skilning almennings á intersex,
andstætt reynslu Indverjans
Santhi Soundarajan sem lengi var
litin(n) hornauga í sínu samfélagi
eftir að frávik greindust við kyn-
greiningu á íþróttamóti. Orðið int-
ersex er tiltölulega nýtt orð sem
safnheiti um frávik frá þróun kyn-
ferðis hvað snertir litninga, horm-
óna og breytileika innri sem ytri
kynfæra. Orðið intersex finn ég
t.d. ekki í nýlegri sérfræðibók um
lyflæknisfræði en 14 skilgreind
frávik má nú finna á netinu og
hvert um sig má kynna sér ítar-
lega í fræðibókum. Þetta er því
mjög fjölbreyttur hópur og breyti-
leiki getur komið fyrir innan hvers
hóps.
Mörg en ekki öll þessara frávika
leiða til útlitsbreytinga og grein-
ingar strax við fæðingu en sum
aðeins við kyngreiningu sem áður
var gerð í íþróttum þar sem litn-
ingar karlmanns gátu fundist í
sýni einstaklingsins var að útliti
kona, þ.e. „androgen insensitivity
syndrome“.
Við útlitsfrávik var lengi al-
mennt talið rétt að grípa inn í til
„leiðréttingar“, hvort sem er með
hormónagjöf eða skurðaðgerð,
einkum þegar ytri kynfæri væru
með mikil frávik, á fræðimáli
„ambigious genitalia“. Á þetta er
nú deilt einkum hvað snertir
skurðaðgerðir á kynfærum. Ég tel
að þar sé farið nokkuð geyst hvað
sem fundasamþykktum viðkemur.
Stundum getur t.d. verið
þvagrásarmisþróun hjá drengjum
sem þarf að reyna að laga. Ég tel
að mörgu barninu geti reynst
bernskuár erfið í nútímasamfélagi
að vaxa upp með ytri kynfæri
mjög frábrugðum jafnöldrum.
Ég minnist þess frá bernsku
minni að eldri strákar sögðu frá
því að fullorðin(n) einstaklingur í
samfélaginu væri með kynfæri
beggja kynja og á klámfenginn
hátt var talað um mögulegt kynlíf.
Þennan einstakling þekkti ég ekki
og vissi aldrei nafn en held að
honum hefði farnast betur við
læknisfræðilegt inngrip í bernsku.
Þessi mál eiga örugglega eftir
að skýrast en ég vona að foreldrar
sem eignast barn með miklum frá-
vikum á ytri kynfærum eigi kost á
bestu mögulegri læknisfræðilegri
og félagslegri ráðgjöf.
Eftir Birgi
Guðjónsson
Birgir Guðjónsson
»Ég vona að foreldrar
sem eignast barn
með miklum frávikum á
ytri kynfærum eigi kost
á bestu mögulegri lækn-
isfræðilegri og félags-
legri ráðgjöf.
Höfundur er sérfræðingur í lyflækn-
ingum. MACP, FRCP, AGAF,
FASGE.
Intersex
Atvinna