Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 7ATVINNULÍF
Það er óhætt að segja að hollustu-
veitingastaðurinn Gló sé að verða
einn af sýnilegri veitingastöðum
Kaupmannahafnarborgar. Fyrsti
staðurinn var opnaður fyrir um ári
síðan í kjallar-
anum á versl-
unarhúsinu Ma-
gasin du Nord, á
einum fjölfarnasta
stað borgarinnar
sem einnig hefur
að geyma neðan-
jarðarlestarstöð.
Á þessu ári opnaði
Gló svo í nýrri
mathöll í Tivoli sem er samtengd
skemmtigarðinum fræga. Birgir Þór
Bieltvedt, aðaleigandi Gló, segir
rekstur staðarins ganga vel um þess-
ar mundir í Danmörku og að mikil
sóknarfæri séu til staðar þar í landi
þegar kemur að hollustuveit-
ingastöðum. Markmiðið sé að opna
tvo staði til viðbótar á næstu sex mán-
uðum í borginni og að helsti styrkleiki
Gló í Danmörku liggi í þeirri stað-
reynd að staðurinn selur nánast alfar-
ið lífrænan mat.
Vildu ólm Gló í Magasin
Staðirnir í Magasin og í Tivoli eru
talsvert frábrugðnir hvor öðrum. Gló
í Magasin er um 200 fermetrar að
stærð en Gló í Tivoli er ekki nema 25
fermetrar en það sem þeir eiga sam-
eiginlegt er sýnileikinn. Vörumerkinu
Gló er vel haldið á lofti í Kaupmanna-
höfn en eigendur Magasin sýndu Gló
mikinn áhuga og þekktu Birgi frá
fyrri tíð og vildu ólmir fá Gló í húsið,
að hans sögn.
„Í raun og veru má segja að ef eitt-
hvað er, þá er veitingastaðurinn að-
eins of stór. Það var nú eiginlega bara
fyrir tilstilli Magasin, að láta meira
pláss undir okkur,“ segir Birgir.
„Þegar þeir fréttu af því að við vær-
um að reka heilsustaði á Íslandi þá
höfðu þeir áhuga á að skoða þá. Það
kom fjöldinn allur frá Magasin til Ís-
lands í tvö, þrjú skipti og leist vel á
Gló. Þeir buðu okkur að koma í kjall-
arann á kannski betri kjörum en ef
við hefðum leitað fyrst til þeirra,“
segir Birgir.
„Við sáum aldrei Magasin sem ein-
hvern svona kjörinn stað fyrir Gló.
Þetta var meiri hugsun um markaðs-
ígildi að vera þarna niðri í Magasin
þar sem flestir Danir koma reglulega
við. Þar af leiðandi lítum við á þetta
sem tækifæri á að koma okkar vöru-
merki og hugmynd á framfæri frekar
heldur en að þetta hafi verið kjörinn
staður til að reka Gló. Þetta er fyrsti
staðurinn okkar í Danmörku og fyrsti
staðurinn fyrir utan Ísland,“ segir
Birgir.
Lífrænn styrkleiki
Sumarið í Danmörku er eitt það
heitasta í manna minnum og því er
eðlilegt að rólegra hafi verið í kjall-
aranum á Magasin. Aukin umferð
hefur hins vegar verið á staðinn í
Tivoli og þessa dagana skila báðir
staðirnir rekstrarhagnaði.
„Ef við aðgreinum frá yfirbygg-
ingu, þróunar- og fjárfestingarkostn-
aði þá eru báðir staðirnir komnir í já-
kvæðar tölur. Ef við tökum laun,
hráefni, leigu og annað slíkt sem fell-
ur á hvorn stað um sig erum við í plús
sem er náttúrlega mjög jákvætt og
framar vonum. En við þurfum að
opna fleiri staði og vissum að við
myndum aldrei geta sett þetta upp og
látið skila okkur einhverjum arði með
tveimur einingum,“ segir Birgir og
tekur fram að þess vegna standi til að
opna fleiri staði.
Frederiksberg eða Vesterbro
„Við erum að leita að staðsetningu
fyrir staði númer þrjú og fjögur. Ég
vonast til þess að við verðum allavega
með stað númer þrjú kláran fyrir ára-
mót. Við vorum komnir mjög nálægt
lokastaðsetningu á Istedgade sem
gekk ekki alveg eftir,“ segir Birgir
sem segist helst horfa á staðsetningar
í Frederiksberg og Vesterbro en
einnig komi til greina að opna stað í
Österbro.
Birgir segir Dani langt komna í
þeirri þróun að vilja borða lífræna
vöru. Gló í Danmörku hefur fengið líf-
ræna vottun en þá vottun fá fyrirtæki
sem bjóða upp á vöruúrval sem er 90-
100% lífrænt. Gló er í dag 97% líf-
rænn staður og þar liggur tækifæri,
að sögn Birgis. „Við tókum þann pól í
hæðina að vera lífræn frá upphafi.
Danir kunna að meta lífræna vöru.
Enginn af þessum samkeppnisaðilum
okkar er að einblína á það,“ segir
Birgir. „Við lögðum hins vegar mikla
vinnu í að verða lífræn. Þar erum við
með tækifæri til sóknar. Okkur
fannst það mjög mikilvægt til að að-
greina okkur frá samkeppninni,“
heldur Birgir áfram.
Vilja skapa umhverfið
Birgir segir þó mikilvægt að fara
sér ekki of hratt í þessum málum.
Markaðurinn fari ört stækkandi en sé
enn í þróun, auk þess sem endanleg
lending á því hvernig hann sér Gló
fyrir sér í Danmörku sé ekki alveg til
staðar. „Þess vegna viljum við ekki
hlaupa of hratt á meðan markaðurinn
hefur ekki þróast meira en þetta. Við
viljum þróa okkur með markaðnum
og þegar okkur finnst við vera komin
nákvæmlega með „konseptið“ og
vöruframboðið þá munum við blása til
sóknar. Þangað til munum við vaxa
hægt og rólega og aðlaga okkur að
umhverfinu. En við viljum að ein-
hverju leyti líka skapa umhverfið. Við
þurfum að vera leiðandi í Danmörku
eins og við erum á Íslandi,“ segir
Birgir.
Birgir segist stefna að því að létta
útlitið á stöðunum í Kaupmannahöfn í
takti við útlitið í Fákafeninu sem hef-
ur léttara yfirbragð. „Okkur finnst
þetta vera aðeins of þungt úti. Þetta
er léttur og hollur matur sem við er-
um að bjóða og selja fólki og þá þarf
útlitið aðeins að endurspegla það,“
segir Birgir og nefnir einnig breyt-
ingar á matseðli. Þar leikur Sólveig
Eiríksdóttir, Solla í Gló, stofnandi
staðarins, lykilhlutverk. „Hún er
ábyrg fyrir vörugæðum og sér um
þróun á matseðli,“ segir Birgir en
ásamt því að vinna með öðrum kokki
þá kemur Sólveig reglulega til Kaup-
mannahafnar og fer yfir vöru-
framboðið.
„En aðalmálið hjá okkur er að við
erum ekkert í neinu kapphlaupi. Við
erum að gera þetta hægt og rólega.
Við erum að taka eitt skref í einu og
ef við getum komist í þrjá til fjóra
staði í Köben á næstu sex mánuðum
og bætt við kannski tveimur til þrem-
ur á næsta ári, og jafnvel komist til
Svíþjóðar, þá erum við algjörlega að
vinna þetta í takt við það sem við ætl-
uðum okkur,“ segir Birgir.
Veitingastaðurinn Gló í verslunarhúsinu Magasin du Nord er 200 fermetrar
að stærð á einum fjölfarnasta stað Kaupmannahafnarborgar.
Vörumerkinu vel flaggað í Höfn
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Hollustuveitingastaðurinn
Gló stefnir á opnun tveggja
nýrra staða í Kaupmanna-
höfn á næstu sex mán-
uðum og Svíþjóð er jafnvel
næsti áfangastaður.
Birgir Þór
Bieltvedt
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Gló opnaði 25 fermetra stað í nýrri mathöll sem er samtengd skemmtigarðinum Tivoli í miðborg Kaupmannahafnar.