Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Það vill gerast að viðskipti með
hlutabréf fara að snúast um alls
kyns rekstrarmælikvarða og
skammstafanir sem fáir kunna skil
á. Í hótelgeiranum er „RevPAR“
lausnarorðið, og stendur fyrir
tekjur á hvert laust herbergi. Það
kom fjárfestum í opna skjöldu í
síðustu viku þegar bandaríska hót-
elkeðjan Caesars kynnti afkomu
félagsins á öðrum ársfjórðungi og
upplýsti að reiknað væri með því
að revpar á þriðja og fjórða ársfjórðungi myndi ekki aukast nema um
0-2%, sem er mun minna en búist hafði verið við.
Stöðva þurfti viðskipti með Caesars í þrígang þann daginn og þeg-
ar upp var staðið hafði hlutabréfaverð keðjunnar lækkað um 15% við
lokun markaða. Þróunin var svipuð hjá keppinautum eins og MGM
og Wynn.
Caesars sagði að sumarið yrði mun rólegra en gert hafði verið ráð
fyrir því óvenju lítið væri um ráðstefnuhald. Þá verða færri stór-
viðburðir í borginni þetta sumarið, en síðasta sumar hýsti borgin t.d.
bardaga þeirra Conor McGregor og Floyd Mayweather. Spilavítin
hafa lagt mikið kapp á að koma því til skila að sumarlægðin myndi
vara stutt og Ceasars hefur meira að segja haldið metnaðarfullri spá
sinni fyrir rekstur þessa árs óbreyttri. En rekstur spilavítanna kann
að vera vísbending um að eitthvað slæmt sé í aðsigi í bandaríska hag-
kerfinu.
Forstjóri MGM varð ergilegur þegar markaðsgreinendur inntu
hann hver á fætur öðrum eftir nánari upplýsingum um hvers vegna
fyrirtækið spáði því að revpar drægist saman um 5-7% á þriðja árs-
fjórðungi. Hann sagðist reka fyrirtækið með gott sjóðstreymi og arð-
bærni að leiðarljósi frekar en að velta sér upp úr gagnslitlum mæli-
kvörðum. En revpar sýnir samt hversu mikið fyrirtæki getur hagnast
af þeim fjárfestingum sem það hefur þegar lagt út fyrir – hvert
hótelherbergi er sokkinn kostnaður og stór hluti af þeim hagnaði sem
fylgir hverjum nýjum gesti skilar sér beint í niðurstöðu rekstrar-
reikningsins.
Þegar seinni hluti þessa árs er skoðaður virðist að ástandið í
Lastaborginni fari skánandi eftir að sumri lýkur, og eins gefur feg-
urri mynd að bera reksturinn á þriðja og fjórða ársfjórðungi saman
við seinni hluta árs 2017. En bensínverð í Bandaríkjunum hefur
hækkað töluvert og útlit er fyrir að verðbólga fari vaxandi. Ef hag-
kerfið er í alvörunni byrjað að ofhitna gæti torskilinn rekstrar-
mælikvarði frá Vegas verið eitt af fyrstu einkennunum.
LEX
AFP
Spilavítin í Vegas:
lesið í spilin
Líflegt kvikmyndasumar dugði Disn-
ey ekki til að skila hagnaði umfram
spár. Útgjöld félagsins hafa aukist
mikið vegna nýrrar streymisþjónustu
sem fer senn í loftið og verður í beinni
samkeppni við Netflix.
Bæði hagnaðar- og tekjutölur
Disney á síðasta ársfjórðungi reynd-
ust undir væntingum markaðs-
greinenda og varð það til þess að
hlutabréfaverð félagsins lækkaði um
allt að 3% í viðskiptum eftir lokun
markaða á þriðjudag.
Bob Iger, forstjóri félagsins, var
allur hinn brattasti á fundi með mark-
aðsgreinendum og talaði í löngu máli
um þær vonir sem Disney bindur við
nýju streymisveituna en félagið
keypti nýlega afþreyingarefni 21st
Century Fox fyrir metverð.
Iger sagði að nú væri að renna í
garð „skeið þar sem neytendur munu
hafa úr meiru að velja en nokkru
sinni áður,“ og hann reyndi að full-
vissa fjárfesta um að Disney myndi
„dafna vel í samkeppni við Netflix,
Amazon og alla aðra á þessum mark-
aði.“
Streymið mótar landslagið
Samþjöppun hefur verið að eiga
sér stað á fjölmiðlamarkaði og reyna
fyrirtækin þar að verja sig gegn bæði
Netflix og Amazon sem hefur tekist
að laða fólk frá hefðbundnu sjón-
varpsglápi yfir í að streyma efni yfir
netið.
Iger segir að það sé „stærsta for-
gangsmál fyrirtækisins“ að opna nýju
streymisveituna – sem markaðs-
greinendur hafa gefið nafnið „Disn-
eyflix“ – seint á næsta ári.
Afkomutölurnar frá því fyrr í vik-
unni eru þær fyrstu sem Disney birtir
eftir að fyrirtækið hafði Comcast
undir í baráttu um að eignast afþrey-
ingarsvið 21st Century Fox. Hagn-
aður Disney eftir skatt nam 2,9 millj-
örðum dala á fjórðungnum eða 1,87
dölum á hlut. Er það 23% meiri hagn-
aður en á sama tímabili í fyrra, en
engu að síður undir væntingum Wall
Street sem hafði búist við 1,95 dala
hagnaði á hlut.
Kvikmyndasumarið vestanhafs
hefur verið betra en margur vænti,
og hagur kvikmyndaveranna vænk-
ast af þeim sökum. Tekjur Disney af
kvikmyndum jukust um 20% og
námu 2,9 milljörðum dala en það má
ekki síst þakka vinsælum stórmynd-
um á borð við Avengers: Infinity War
sem rakaði inn 2 milljörðum dala á
heimsvísu. Kvikmyndin er sú tekju-
hæsta á þessu ári, og sú fjórða tekju-
hæsta í sögunni.
Á móti þessum fréttum úr rekstr-
inum kemur aukinn kostnaður. Út-
gjöld Disney námu 11,3 milljörðum
dala á fjórðungnum og er það 8%
aukning miðað við sama tímabil í
fyrra. Hagnaður dróst saman hjá
sjónvarpsstöðvum Disney, sem eru
stærsta rekstrareining félagsins, en
þar á meðal eru stöðvarnar ESPN og
ABC. Tekjur sjónvarpsstöðvanna
hækkuðu um 5% upp í 6,2 milljarða
dala en rekstrarhagnaður dróst sam-
an um 1% og fór niður í 1,8 milljarða.
Disney skellir skuldinni á hækkandi
„kostnað við framleiðslu efnis og
markaðssetningu“ vegna streymis
frá íþróttaviðburðum. Tekjur Disney
heilt yfir hækkuðu um 7% og námu
15,2 milljörðum dala á tímabilnu apríl
til júní en spár markaðsgreinenda
hljóðuðu upp á 15,3 milljarða.
Á fundi með fjárfestum útskýrði
Iger hvert hann vill stefna með nýju
streymisveitunni. Hann sagði að
fyrirtækið myndi „þurfa að læra að
ganga áður en það lærir að hlaupa,“
þegar kæmi að því hve mörgum þátt-
um verður streymt. Hann bætti við
að verðskráin mundi endurspegla það
að „minna efni verður í boði“ en hjá
Netflix.
Þær eignir sem Disney keypti af
Fox skipta sköpum í samkeppninni
við Netflix. Með kaupunum bætast
kvikmyndir Fox og efni frá kapal-
sjónvarpsstöðum á borð við National
Geographic við það efni sem Disney
framleiðir, t.d. undir merkjum Mar-
vel og Pixar.
Hluthafar Disney og Fox, og
bandaríska dómsmálaráðuneytið,
hafa þegar lagt blessun sína yfir sam-
runann sem mun kosta Disney 71
milljarð dala. Disney bíður þó enn
eftir því að fá græna ljósið hjá stjórn-
völdum í nokkrum löndum, þar á
meðal í Kína.
Iger segir að Disney muni geta
boðið upp á þrjár streymisþjónustur í
einum pakka: Hulu, sem Disney er
meirihlutaeigandi að eftir samning-
inn við Fox, ESPN og nýja Disney-
streymið.
Með kaupunum á eignum Fox mun
Disney stýra 39% hlut í evrópsku
áskriftarsjónvarpsstöðinni Sky. Fox
hefur boðið 14 pund á hlut fyrir af-
ganginn af stöðinni og gæti hækkað
tilboðið enn frekar en Comcast hefur
boðið 14,75 pund. Á þriðjudag vildi
Iger ekki tjá sig um þróun mála
í kringum Sky.
Mikill kostnaður vegna
streymisveitu Disney
Eftir Önnu Nicolaou
í New York
Það verður ekki ódýrt að
fara í samkeppni við Net-
flix og Amazon en kaupin
á afþreyingarefni Fox
munu hjálpa skemmtana-
risanum Disney að fara
vel af stað.
AFP
Gestur í skemmtigarði Disney setur upp regnbogaeyrun. Fyrirtækið á mikið
magn afþreyingarefnis af ýmsu tagi til að bjóða í gegnum streymisveitu sína.
Til í mörgum
stærðum og ge
Nuddpottar
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
rðum
Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177