Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018SJÓNARHÓLL ÓMAR Ímarkaðsmálum skiptir öllu máli að strategían sé skyn-samleg og til þess fallin að skapa fyrirtæki verjanlegasamkeppnisstöðu. Að fyrirtækið átti sig á þáttum sem leiða til samkeppnisforskots, að markhópar séu skýrir, og taktískar leiðir markaðsaðgerða skilvirkar og áhrifaríkar. Í því sambandi er mikilvægt að skilaboðum út á markaðinn sé pakkað inn á þann hátt að markhópurinn taki eftir þeim, og þörf, áhugi og löngun leiði til viðskipta. Það viðfangsefni byggist á því sem á íslensku hefur verið nefnt mörkun (e. branding) og beinist fyrst og síðast að því að marka fyrirtæki eða vörum þess skýran stað (e. position) á markaði, og ímynd sem dregur fram það sem fyrirtækið vill tengjast. Og þar koma slagorð (e. slogans) – sem oftast eru nokkur orð – til sögunnar. Það er þó alls ekki algilt að fyrirtæki notist við slagorð fyrir sig eða einstakar vörur. Ný mörkun TM tryggingafélagsins virðist ekki notast við sérstakt slagorð, þó einstök herferð kunni að styðjast við tiltekið þema. Það er þó ljóst að ávinningur felst í að nota sterkt og vel heppnað slag- orð sem dregur fram kjarnann í því sem skiptir máli fyrir fyrir- tæki og ímynd þess. En til að slagorð sé vel heppnað og sterkt, er gott að hafa í huga hvort það uppfylli nokkra þætti. Í fyrsta lagi hvort slagorðið sé minnisstætt og merking þess auðskilin (Nike; Just do it). Í öðru hvort slagorðið fangi kjarnann í þeim ávinningi sem í boði er (De Beers; A dia- mond is forever). Í þriðja lagi hvort slagorð dragi fram að- greiningu og sérstöðu á markaði (BMW; The Ultimate Dri- ving Machine) Og í fjórða lagi hvort slagorðið veki jákvæðar tilfinningar (McDonald‘s; I‘m loving it). Með þessi atriði í huga er áhugavert að skoða hina fjölbreyttu flóru slagorða og rýna aðeins í hversu vel þau mæta þessum þáttum. Þar sem viðfangsefnið er víðfeðmt og dæmin mörg verða þrír stuttir pistlar helgaðir þessum vangaveltum. Mjög sterkt slagorð má finna hjá Bónus sem kom með lát- um inn á íslenskan markað. Bónus hefur sýnt stöðugleika í sinni strategíu með að bjóða lægsta verðið á markaðnum, og stutt þá stefnu með slagorðinu „Bónus býður betur“. Hljóm- þýtt, jákvætt og sterkt slagorð, sem sýnir bæði áherslu fyr- irtækisins og ávinning fyrir viðskiptavini. Á sama markaði hefur Krónan keyrt lengi á slagorðinu „Aðeins ódýrari“, sem heggur í svipaðan knérunn og Bónus. Hefur ekki alveg sama kraft og slagorð Bónuss, og má velta fyrir sér hvort það nái vel fram strategíu Krónunnar, sem hefur ekki bara lagt áherslu á hagstætt verð, heldur líka gott aðgengi að vöruvali í verslunum og ferskt úrval í kjötborði. Gæti slagorðið „Meira fyrir minna“, náð því betur sem Krón- an er að vinna eftir? Dregur bæði fram úrval og verð. Hagkaup notaði frá árinu 2001 slagorðið „Þar sem Íslend- ingum finnst skemmtilegast að versla“. Hugsunin hefur ef- laust verið að leggja áherslu á að skipulag og vöruval verslana Hagkaupa gerðu verslunarferð ánægjulega. Og þá um leið væri ekki eins skemmtilegt að fara í verslanir keppinauta. Notkun þessa slagorðs var reyndar kært af sam- keppnisaðilum, en Hagkaup fékk að nota það áfram þar sem kannanir höfðu sýnt fram á að meirihluta aðspurðra fannst í raun skemmtilegast að versla í Hagkaupum. Þrátt fyrir mörg orð, dró slagorðið ágætlega fram þá sérstöðu sem Hagkaup taldi sig hafa. Seinna breytti Hagkaup sínu slagorði í „Ein ferð, betra verð“, sem vann áfram með fjölbreytt vöruval, en dró líka fram að gott verðlag. Nýverið kynnti Hagkaup slagorðið „Meira svona alla daga“. Líklega verið að vinna áfram með fjölbreytt vöruval og ólíkar að- stæður þar sem vörur Hagkaupa geta verið hluti af. Spurn- ing hvort slagorðið sé sterkara. Keppinautur Hagkaupa á þessum markaði er hin rótgróna verslun Fjarðarkaupa í Hafnarfirði. Slagorð þeirra er „Ein- stök verslun“, þar sem undirstrikuð er tvíþætt merking þ.e. Fjarðarkaup rekur aðeins þessa eina verslun í Hafnarfirði, og verslunin er einstök í samkeppnisflórunni. Neytendur verða síðan að upplifa sjálfir þá sérstöðu. Að síðustu má nefna að íslensk slagorð sem hafa beina skírskotun til keppinautar eru sjaldgæf enda vandrataður sá vegur. Fyrir mörgum árum þegar kreditkortabaráttan var í algleymingi kom Eurocard með slagorðið „Láttu ekki vísa þér á dyr“. Virtist einungis vekja athygli á að Eurocard væri tekið í öllum verslunum, en var um leið nett tilvísun í vöru- merki aðalkeppinautarins, Visa. STJÓRNUN Þórður Sverrisson sérfræðingur hjá Capacent Er slagorðið að slá í gegn? Fyrsti hluti... ” Það er þó ljóst að ávinn- ingur felst í að nota sterkt og vel heppnað slagorð sem dregur fram kjarnann í því sem skiptir máli fyrir fyrirtæki og ímynd þess. FORRITIÐ Enginn hörgull er á forritum sem reyna að hjálpa fólki að nýta daginn betur og láta sem minnstan tíma fara til spillis. ViðskiptaMogginn hefur t.d. sagt frá forriti sem leyfir notandanum að skipuleggja daginn með sömu að- ferð og Benjamín Franklín notaði með góðum árangri. Þá fjallaði blaðið ný- lega um þjónustu sem heldur fólki við efnið með því að minna reglulega á hve stutt það á eftir ólifað. Höfundar vefsíðunnar 144 Blocks (www.144blocks.com) hafa fundið aðra leið að sama marki: að skipta sólar- hringnum niður í 10 mínútna lotur og halda nákvæmt bókhald yfir hvernig hverri einustu lotu er varið. Nafn síð- unnar kemur til af því að í sólar- hringnum eru 144 slíkar lotur. Síðan reynir að gera mínútu- bókhaldið sem auðveldast en notand- inn skyggir einfaldlega reiti í þar til gerðri töflu, einn reit fyrir hvert 10 mínútna bil, og velur síðan úr löngum lista hvernig tímanum var varið. Þegar búið er að gera grein fyrir hverri einustu vöku- og svefnstund má sjá myndræna framsetningu á deg- inum og byrja að greina hvernig tím- inn er notaður yfir vikuna. Kannski kemur þá í ljós að of mörgum stundum hefur verið varið í leti og afþreyingu, á meðan lærdómur og líkamsrækt sitja á hakanum, ellegar að vinnunni er of mikið sinnt á kostnað sælustunda með vinum og ættingjum. ai@mbl.is Ítarlegt bókhald fyrir allan sólarhringinn TIL LEIGU Skipholt 31 – 105 Reykjavík Skrifstofuhúsnæði 2. og 3. hæð hússins Stærð samtals 1.200 fm. Virðisaukaskattslaust. Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í síma 824-6703. Laust strax. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Til sölu skrifstofuhúsnæði á 3. hæð að Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík, alls 170,5 fm. Laust við kaupsamning. Opið vinnusvæði með gluggum í norður, eldhús og tvær stórar skrifstofur í suðurhluta. Lyfta er í húsinu. Tveir inngangar eru á skrifstofuhæðinni og því auðvelt að breyta fyrirkomulagi á hæðinni. Linoleum dúkur er á gólfum. Sameign er snyrtileg. Tvö flí alögð salerni. Húsnæðið getur hentað undir ýmsa starfsemi. Verð 69m. 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 TIL SÖLU Hverfisgata 76 – 101 Rvk Gerð: Skrifstofuhúsnæði Stærð: 170,5 m2 Allar nánari upplýsingar veitir: Magnús Kristinsson Löggiltur fasteignasali 861-0511 magnus@jofur.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.