Morgunblaðið - 21.08.2018, Page 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
É
g er örugglega ekki einn
um að velta því stundum
fyrir mér hvaða eina bíl
ég myndi kaupa ef ég ætti
marga milljónatugi inni á banka-
bók. Í huganum fer ég yfir langan
lista af öndvegisbílum og strika þá
út hvern á fætur öðrum þar til að
eftir standa tvö tryllitæki: Annars
vegar nýi Bentley Continental GT
og hins vegar Lamborghini Hurac-
án Performante.
Ég laðast að þessum tveimur bíl-
um því þeir eru báðir nálægt því að
vera í efsta stigi, hvor á sinn hátt
og hvor í sínum flokki, en samt án
þess að fara allt of langt yfir strik-
ið. Nýi Continentalinn er sportleg-
ur, hraðskreiður, afskaplega mikið í
hann lagt og tiltölulega hentugur
fyrir bæði hversdagsstúss og langa
bíltúra. Huracán er eldsnöggur
ítalskur töffari, fær vegfarendur til
að snarstoppa á punktinum, en er
ekki svo yfirdrifinn að dugi ekki til
daglegs brúks. Í fantasíunum sé ég
fyrir mér að ég gæti farið á hvor-
um þessara bíla sem er út í búð að
kaupa í matinn eða í ferðalag þvert
yfir Evrópu.
En vandinn er sá að Continental
GT og Huracán hafa hvor fyrir sig
eiginleika sem hinn skortir: Hurac-
áninn er ekki alveg nógu prakt-
ískur, með sáralítið skott, sæti sem
henta ekki vel fyrir langferðir, og
annars fallegt farþegarýmið er ekki
alveg nógu glerfínt. Continentallinn
er að sama skapi aðeins of yfirveg-
aður, aðeins of stór, og hefur ekki
sama brjálæðislega vélarhljóðið.
Fyrr í sumar skaust ég til Singa-
púr og fann þar lausn á valkvíð-
anum: Aston Martin DB 11 V8.
Það sem Aston Martin gerir er
að sameina bestu kosti ítalsks
sportbíls og bresks eðalvagns. DB
11 er alvöru drossía, sem umvefur
ökumann og farþega í lúxus og með
sætum sem fara vel með rass og
bak; en um leið með vél sem fnæsir
og urrar, og með aksturseignleika
sem hæfa spani á kappakst-
ursbraut.
Ef Meryl Streep væri með vél
Ætli það skrifist ekki á reynslu-
leysi og skort á þroska að sportbíl-
arnir frá Aston Martin rötuðu varla
inn í sjónsviðið hjá mér fyrr en nú.
Kannski er það vegna þess að útlit
Aston Martin-bíla er tiltölulega lág-
stemmt í samanburði við t.d. Lam-
borghini, Ferrari og Bentley. Núna
fyrst sé ég almennilega hvað hóf-
stilltur glæsileikinn er ómót-
stæðilegur.
Hlutföllin eru óviðjafnanleg, út-
línurnar eins og á byssukúlu, en
samt er eins og Aston Martin-bílar
hafi ekki sömu sýniþörf og aðrir
sportbílar. DB 11 hefur á sér yf-
irbragð sem minnir á tignarlega
leikkonu á besta aldri, einhvern á
borð við Meryl Streep eða Julianne
Moore: hann reynir ekkert að
vekja á sér athygli með glingri og
stælum því hann veit hvað hann er
að gera, veit fyrir hvað hann stend-
ur, og þarf ekki að sýnast eða met-
ast við aðra.
Og hver myndi ekki miklu frekar
vilja fara í bíltúr með Meryl Streep
en Cardi B.?
Það var einmitt eitthvað í þessa
veru sem fulltrúi Aston Martin
sagði mér á meðan við ókum um
Singapúr: Þeir ungu og nýríku sem
vilja láta á sér bera kaupa Ferrari,
Lamborghini eða McLaren en ver-
aldarvanir unnendur hraðskreiðra
Ljósmynd/Ásgeir Ingvarsson
Blanda af öllu því besta
Á rándýrum Aston Martin DB11 í skatta-
paradísinni Singapúr uppgötvaði blaðamaður
undrabíl sem sameinar eiginleika ítalsks sport-
bíls og breskrar langferðadrossíu.
Ljósmynd / Thinkstock
Í Singapúr renna ólíkir menningarheimar saman í litríkum graut. Þar er
nóg af efnuðu bíladellufólki og hvergi í Asíu selst Aston Martin betur.
Útlit DB 11 er í senn íhaldssamt og
framúrstefnulegt, yfirdrifið og lág-
stemmt. Andstæðurnar mætast í
ómótstæðilegum pakka.