Morgunblaðið - 21.08.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 21.08.2018, Síða 13
kvæma aðgerðir, eins og hækka og lækka hitann í bílnum og bíllinn svarar á móti: „Hvaða hitastig má bjóða þér?“ Kveinki maður sér upphátt und- an kaffiþorsta upplýsir bíllinn mann um næstu vegasjoppu þar sem hægt er að kaupa sér rjúk- andi kaffibolla. Í aftursæti er einnig boðið upp á flott viðmót í snertiskjá þar sem aftursætisfarþegar geta stjórnað hitastigi meðal annars. Þar er aft- ur á móti ekki raddstýring í boði. Afturhallandi lögun Audi A7 er með svokölluðu coupé-lagi, sem þýðir að hann er afturhallandi. Þetta er strauml- ínulagaður bíll, gerður til að kljúfa vindinn og ögra náttúrulögmál- unum, enda á hann að ná úr kyrr- stöðu upp í 100 km hraða á klukkustund á aðeins 5,7 sek- úndum. Sá sem þetta ritar var duglegur að gefa honum inn, og getur staðfest að bíllinn var fljótur upp í hundraðið þrátt fyrir að vera rúm tvö tonn að þyngd. Vissulega þarf maður að bíða ögn eftir að finna bakið þrykkjast aftur í leð- ursætið, en þegar það gerist er það afar fullnægjandi tilfinning að finna fyrir hestöflunum 286 sem TDI-dísilvélin skilar manni. Er ég ók um borg og bý á bíln- um á reynslutímanum varð mér hugsað til þess fyrir hvern svona bíll væri. Vísað er til hans í lýs- ingum sem „executive“ sem mætti þá útleggjast sem forstjórabíll, en ég velti fyrir mér hvort hann hent- aði kannski líka hópum eins og röppurum, íþróttastjörnum eða fagurkerum. Allir þessir hópar og mun fleiri til myndu sóma sér vel fyrir aftan stýrið á þessum bíl, og kunna að meta flauelsmjúka akst- urseiginleikana og frábæra fjöðr- unina. Það eitt get ég þó fullyrt, að bíllinn er ekki „fyrir alla“ enda er verðmiðinn hár, nálægt 15 milljónum með þeim aukabúnaði sem þessi prufubíll var hlaðinn. Fleiri hafa þó ráð á bílnum sé aukabúnaði sleppt, en grunn- útgáfan losar rétt tæpar 10 millj- ónir króna. Þráðlaust net í boði bílsins Ef vikið er aðeins að innviðum A7 ber þess fyrst að geta að auð- velt er að komast inn og út úr honum og veghljóð er lítið. Gott athafnarými er fyrir bílstjóra og farþega, sem geta lagt frá sér hefðbundnar gosflöskur í hurðir og í miðju hinnar smekklegu inn- réttingar bílsins. Sömuleiðis, eins og virðist vera í æ fleiri bílum í dag, er hægt að leggja þá síma sem bjóða upp á snertilausa hleðslu frá sér á þar til gert svæði í hólfi milli sætanna, en þar er einnig boðið upp á USB-tengi. Gaman er að segja frá því að með- al aukabúnaðar í bílnum er að hægt er að setja í hann SIM-kort og þar með hafa hann sítengdan við netið, aukinheldur sem allir farþegar geta þá verið á þráðlausu neti í boði bílsins og bílstjórans. Stundum kæta litlu hlutirnir mann, og takkar í bílstjórahurð- inni, þar sem hægt var að kveikja og slökkva á barnalæsingu, þóttu mér afar handhægir. Hvað aftursætin varðar þá er þar ágætis plass fyrir fætur, en sökum afturhallandi lögunar bíls- ins mæli ég ekki með því að fólk yfir meðalhæð sitji þar of lengi. Hönnun bílsins höfðaði til mín. Ytra byrði tónar við innra byrði í hönnuninni, langar línur í bland við skálínur gefa manni sterka gæðatilfinningu. Skottið opnast og lokast raf- rænt, og þar inn má setja þónokk- urn farangur, enda er rýmið tals- vert mikið, 535 lítrar. Með aftursætisbökin niðri komast þarna fyrir einir 1.390 lítrar. Það er eins og sæmileg IKEA-ferð, Costco-vörur og jafnvel nokkrir Bónuspokar til viðbótar. Þá er fremur auðvelt að koma hjóli í skottið til dæmis, sem er yfirleitt hausverkur í flestum bílum. Boðið er upp á varadekk undir gólfinu í skottinu, en ekki bara kvoðu og pumpu, eins og stundum er látið nægja nú til dags. Notendavænir skjáir Þá er það afþreyingarkrefið og mælaborðið, sem ég minntist stuttlega á hér á undan. Boðið er upp á þrjá skjái; einn beint aftan við stýrið, mælaborðið, og svo tvo skjái í miðjunni. Þarna er um snertiskjái að ræða og ættu flestir snjallsímaeigendur að eiga auðvelt með að rata um viðmótið. Auk fyrrnefndrar raddstýringar og handskriftarmöguleika er kerfið allt hið þægilegasta í umgengni og notkun og afar notendavænt. Ekki er þó mælt með því að ökumaður sé mikið að bjástra við skjáina meðan á akstri stendur, enda af- tengist ákveðin virkni þar meðan bíllinn er á ferð. Með því að halda putta lengi á aðgerðum á snerti- skjánum er hægt að bókamerkja aðgerðir og sníða bílinn þannig að hverjum og einum. Efri skjárinn inniheldur allt upplýsinga- og af- þreyingarkerfið, en neðri skjárinn er einkum ætlaður fyrir miðstöð- ina. Auðvelt er að stækka og minnka viðmót mælaborðsins og skruna með þumlunum í gegnum þá möguleika sem boðið er upp á á meðan haldið er um stýrið. Þannig má kalla fram úrval útvarpsstöðva, gíraupplýsingar, klukkuna, snún- ingshraðamælinn, hraðamælinn o.s.frv. Bíllinn er með nema og mynda- vélar allt um kring og meðal ann- ars getur hann hjálpað til við að leggja í stæði. Eftir að hafa til- einkað sér það kerfi kemur það vafalaust mörgum að góðum not- um. Innra minni bílsins man hvernig ökumaður skildi við hann og setur sætin í þá stillingu sem hann skildi þau síðast eftir í. Þrátt fyrir alla tæknina er líka boðið upp á gamaldags skrúfu- takka til að hækka og lækka í út- varpi, en þarna segjast framleið- endur vera að „brúa kynslóðabilið“. Gírskiptingin er hefðbundin P N R ásamt D/S sem stendur fyrir sport, en þannig skiptir bíllinn sér hraðar upp. Skiptingin, sem er á sínum stað í miðjunni, er falleg, og einungis nauðsynlegt að hnika henni fram og til baka með frekar lausri snertinu. Sé „stönginni“ ýtt til hægri fer bíllinn í handstýrða gírskiptingu, og þá er einnig hægt að grípa í blöðkurnar sem liggja við fingurgómana í stýrinu til að skipta bílnum handvirkt upp og niður. Hurðir eru með „ljúflokun“ og „ljúfopnun“, svo gripið sé til IKEA-hugtaka, og sætin eru frá- bær í einu orði sagt. Þegar bílnum er læst og tekinn úr lás verður mikið ljósasjó úti fyrir, sem kætir eigandann í hvert skipti. Almennt getur eigandinn unað sér glaður við akstur þessa bíls, og þegar hann er ekki við stýrið getur hann látið sig hlakka til næstu öku- ferðar. Í skottið komast til dæmis þrjár ferðatöskur og meira til. Undir húddinu er sex strokka 287 hestafla dísilvél, og togið er 620 NM. Er því hægur vandi að aka hratt af stað þegar hugurinn girnist. Þrátt fyrir alla tæknina er líka boðið upp á gamaldags skrúfutakka til að hækka og lækka í út- varpi, en þarna segj- ast framleiðendur vera að „brúa kyn- slóðabilið“ Langar línur í bland við skálínur einkenna hönnun að innan sem utan og gefa Audi A7 góðan heildarsvip. Auðvelt er stækka og minnka viðmót mælaborðsins og velja á milli mismunandi aðgerða. Frábærir aksturseiginleikar og fjöðrun gera ökuferðina ánægjulega. Útlitið skemmir heldur ekki fyrir. MORGUNBLAÐIÐ | 13

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.