Morgunblaðið - 21.08.2018, Page 14

Morgunblaðið - 21.08.2018, Page 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ Ómissandi ökutæki Það er kominn tími til að endurnýja Ford-pallbílinn okkar, sem er orðinn fjölskylduvinur og við tölum aldrei illa um hann, enda hefur hann í gegnum árin þjónað okkur í ævintýralegum ferðum. Ég væri til í nýj- an Ford pickup 250 með stórum palli svo að komist a.m.k. þrjú mótorhjól á pallinn, og með leðursætum því í þessum bíl er í lagi að borða nestið sitt og drekka heitt súkkulaði. Litli borgarbíllinn er gamall en nýuppgerður Fiat 500 (Cin- quecento). Hann er að sjálf- sögðu rauður, og það passar að skjótast á bílnum í búðina þegar vantar ólífuolíu og salt. (það kemst varla meira í aftursætið!). Það er auðvelt að leggja honum og svo er hann svo róm- antískur. Í afturglugg- anum geymi ég svo regnhlífina. Hinn fullkomni íslenski hversdagsbíll er bíllinn sem ég á í dag. Land Rover Discovery sport, árgerð 2017. Hefði ekki trúað því en mér þykir í alvöru sérlega vænt um þennan bíl og það sem er gaman að keyra t.d. norður til Akureyrar eingöngu til að fá sér pönnukökur hjá Hjördísi systur minni. Fíni bíllinn er ný- uppgerður Ford Mustang Copue 1967, hann er rauður og ég tala við hann þegar ég sest upp í hann, og í spilaranum er Tony Or- lando að syngja Tie a yel- low ribbon. Mótorhjólið er Ducati Mulitstrada DS 1000 sem ég á reyndar, sem og gamalt endúróhjól Honda XR 250, og þar sem ég er nú frekar íhaldssöm þá hef ég engan áhuga á öðrum hjólum en þeim sem ég á nú þegar. Ég er örugg á þeim og er ekkert fyrir að prófa eitthvað annað – tek ekki sénsa enda er ég orð- in amma. Sunnudagsbíllinn Í bíl- skúrnum er hann í einu horninu og ég hef breitt yfir hann teppi. Þetta er Saab 96, árgerð 1976, hann er ljósbrúnn og hann glansar eins og sólin. Þennan fína bíl keyri ég bara á sunnu- dögum, auðvitað, og við eiginmaður minn pikkum upp gamla vini okkar úr menntaskóla, förum að rúnta og svo skiptast kærustupörin á að sitja aftur í og kela, og endum svo kannski í ísbúðinni. Það má að sjálfsögðu ekki borða ísinn inni í bílnum. Í viltustu draumum á ég Rolls Royce Dawn 2015; 4 sæta, túrkisblár, lúxusdásemd. Fyrir lottóvinninginn Jagúar XJ en svo vil ég endilega geta sett bílinn minn í hleðslu og notað bensínpeninginn í nýja skó svo ég fæ mér líka nýjustu Tesluna. Ekki má gleyma Bentley Continetal GT – veit í raun ekki af hverju en hann virðist næstum því svífa áfram. með mér að ekki yrði við það unað að mitt hlutskipti væri að sitja ein eftir heima.“ Voldugt Ducati Multistrada- mótorhjól er í uppáhaldi hjá Sig- urlaugu en skemmtilegast af öllu þykir henni þó að setjast upp á þægilegt endúró-mótorhjól og halda á vit ævintýranna úti í sveitinni. „Fátt er ánægjulegra en að halda upp í Laxárdal í Suður-Þingeyj- arsýslu og keyra gamla kindaslóða, stoppa svo hér og þar á leiðinni til að fylgjast með fuglalífinu eða tína sveppi til að þurrka.“ Á heimilinu eru þrír bílar og þykir Sigurlaugu fjarska vænt um þá alla. Til daglegra nota hefur hún Land Rover Discovery og segist bálskotin í þessum breska eðaljeppa. „Hann er bara svo þægilegur á alla vegu, og svo öflugur að maður þarf að gæta sín á að fara ekki langt yfir leyfileg- an hámarkshraða.“ Einn bíl bráðvantar í skúrinn: gamlan Saab. Sigurlaug og Torfi eiga margar góðar minningar tengd- ar þessum sænsku bílum. „Torfi átti Saab þegar við kynntumst fyrst og stunduðum við það til að fara á rúnt- inn með öðrum kærustupörum. Skiptumst við þá á við hin pörin að aka, svo að annað parið gæti látið fara vel um sig í aftursætinu á með- an, knúsast þar og kysst.“ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is D raumabílskúrinn er nýr fastur liður í Bílablaði Morgunblaðsins þar sem ætlunin er að varpa ljósi á hvernig falleg, hraðskreið og gagn- leg farartæki af öllum mögulegum toga gefa lífinu lit. Sigurlaug Mar- grét Jónasdóttir, útvarpskona hjá RÚV, ríður á vaðið og velur ökutæki á bæði fjórum og tveimur hjólum í bílskúr drauma sinna. Sigurlaug er nefnilega ekki öll þar sem hún er séð. Á bak við hljóðnem- ann er hún ósköp yfirveguð, hlýleg og jarðbundin, og á í innilegum sam- ræðum við gesti sína, en eftir vinnu umbreytist Sigurlaug í óttalausa mótorhjólahetju og spennufíkil. Hún smitaðist af mótorhjóla- áhuganum í gegnum fjölskylduna: „Maðurinn minn Torfi er helsjúkur mótorhjólamaður sem dundar sér við að gera upp gömul bresk mót- orhjól, og sonur okkar keppti í mótorkross,“ upplýsir Sigurlaug og minnist þess hvernig hún áttaði sig einn daginn á því að tímabært væri að hún tæki þátt í áhugamáli fjöl- skyldunnar. „Ég var inni í eldhúsi að bisa við matseld og allir aðrir á heimilinu að fara eitthvað á mót- orhjólunum sínum. Ég hugsaði þá Draumabílskúr Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur Morgunblaði/Arnþór Birkisson Sigurlaug á vespunni sinni. Hún á m.a. stórt og mikið Ducati mótorhjól og er mjög lukkuleg með Land Rover Discovery jeppann sinn. Unir sér best á endúróhjóli Draumabílskúrinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.