Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018FRÉTTIR Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) ICEAIR -5,06% 8,81 SKEL +9,38% 7,0 S&P 500 NASDAQ +0,86% 7.883,187 +0,49% 2.864,12 +0,21% 7.574,24 FTSE 100 NIKKEI 225 23.2.‘18 23.2.‘1822.8.‘18 22.8.‘18 1.800 802.400 2.139,85 2.065,00 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 74,62+0,41% 22.362,55 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 67,31 60 Hreinorkubílar þurfa að vera orðnir um 100 þúsund talsins fyrir árið 2030 svo að Íslendingar muni ná að upp- fylla kröfur Parísarsamkomulagsins sem undirritað var af íslenskum stjórnvöldum árið 2015. Íslendingar hafa þrengra svið að vinna með til þess að draga úr notkun jarðefnaelds- neytis heldur en aðrar þjóðir enda öll raforkuframleiðsla og húshitun hér með kolefnislausum orkugjöfum. Því þarf að vinna með samgöngur og þar skiptir bílafloti landsmanna sköpum. Í dag er fjöldi hreinorkubíla um 9 þús- und og mikið verk því enn óunnið. Þetta segir Sigurður Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs. Hreinorkubílar 3,9% af flota Íslendingar eru framarlega á sviði rafbílavæðingar og í öðru sæti á heimsvísu á eftir Norðmönnum. Sem stendur eru hreinorkubílar um 3,9% af fólksbílafjölda í heild sinni hér á landi sem telur um 227 þúsund bíla. Af hreinorkubílum eru tengiltvinn- bílar, rúmlega 5 þúsund eða um 2%, rafbílar, 2295 eða um 1% og metan- bílar 1508 eða um 0,7%. Bensínbílar eru aftur á móti 142 þúsund, um 63% af fólksbílaflotanum og dísilbílar 76 þúsund, um 34%. „Það eru um 8 þús- und bílar sem hægt er að stinga í sam- band. 2500 hreinir rafbílar og restin tengiltvinnbílar. Þetta þarf að fara að snúast meira rafbílum í hag og þeir þurfa að vera orðnir afgerandi hluti af nýskráningum undir lok þessa tíma- bils, 2030. Sem er alveg gerlegt, mið- að við hvað er að gerast í bílamark- aðnum, bæði í verði, fjölbreytileika og tegundum,“ segir Sigurður við Við- skiptaMoggann. Sigurður segir að rafbílar séu nú yfir 40% af öllum nýskráningum í Noregi og á það þurfi Íslendingar einnig að stefna. Segir hann að 95% þeirra fólksbíla sem eru á götunni í dag verði horfnir eftir 12 ár. Þeir bílar sem verða nýskráðir í dag séu aftur á móti líklegir til þess að vera enn úti á götu árið 2030. Hlutfall nýskráðra hreinorkubíla af heildarfjölda ný- skráninga þurfi því að hækka sem fyrst. „Þeir bílar sem skráðir eru frá og með deginum í dag eru býsna lík- legir til að vera enn í bókhaldinu 2030 þegar „skuldadagar“ koma. Núna fer að skipta verulegu máli hvaða bílar fara að koma nýir inn. En þetta þarf að gerast hraðar,“ segir Sigurður. Ár- ið 2017 nam hlutfall hreinorkubíla af nýskráningum bifreiða um 13% sam- kvæmt gögnum Orkuseturs. Að sögn Sigurðar stefnir í að hlutfallið verði svipað fyrir árið 2018. Samkvæmt þingsályktunartillögu ríkisstjórnar frá því í maí 2017 kemur fram að stefnt sé að því að hlutfall endurnýjanlegrar orku í samgöngum verði um 40% árið 2030 en það hlutfall nam 6% í fyrra af samgöngum á landi. Almenningur lengra kominn Stór hlutdeild bílaleigubíla í fólks- bílaflota landsins er aftur á móti ákveðinn flöskuháls og lækkar hlutfall nýskráðra hreinorkubíla töluvert en hlutfall nýskráðra hreinorkubíla er um 15-20% hjá almenningi að sögn Sigurðar. „Á Íslandi er helmingur ný- skráninga á fólksbílum bílaleigubílar. Almenningur er kominn lengra á veg en bílaleigurnar og það er vont fyrir fólksbílaflotann,“ segir Sigurður og bendir á að bílaleigubílarnir fari svo á eftirmarkað. Spurður um stöðu inn- viða í landinu þegar kemur að rafbíla- notkun segir Sigurður þá vel á veg komna en auðvitað þurfi að gera bet- ur. „Það er hægt að fara hringinn um landið og á flesta staði á hrað- hleðslum,“ segir Sigurður. Bendir hann á að drægniviðmið rafbíla sé nú um 200-500 km og að næstu viðfangs- efni séu meðal annars að gera að- stæður fyrir rafbíla aðgengilegri við fjölbýlishús. Hreinorkubílar verði 100 þúsund árið 2030 Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Hreinorkubílar þyrftu að vera orðnir um hundrað þúsund talsins árið 2030 að öllu óbreyttu svo Íslend- ingar uppfylli kröfur París- arsamkomulagsins. Raf- bílavæðing fólksbílaflotans þarf að ganga hraðar svo það megi takast að sögn sérfræðings. Morgunblaðið/Valli Rafbílar á borð við Nissan Leaf þurfa að vera orðnir algengari sjón á götun- um á næstunni eigi Íslendingar að uppfylla kröfur Parísarsamkomulagsins. VEITINGAMARKAÐUR Hagnaður Foodco hf., sem rekur veitingastaðina Roadhouse, Saffran, American Style, Eldsmiðjuna, Aktu taktu og Pítuna, var tæpar 105 millj- ónir króna árið 2017. Dróst hann saman um 54% á milli ára en hagn- aður félagsins nam 230 milljónum króna árið 2016. Hagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnsliði var 232 milljónir króna miðað við 420 millj- ónir árið 2016. Rekstrartekjur ársins 2017 voru 3,5 milljarðar króna miðað við 3,9 milljarða árið áður. Rekstrargjöld ársins 2017 námu 3,3 milljörðum miðað við 3,5 milljarða árið 2016. Eignir félagsins námu tæpum 2,2 milljörðum króna í lok árs 2017 en þær námu 1,9 milljörðum árið 2016. Eigið fé Foodco nam tæpum 716 milljónum miðað við 798 milljónir ár- ið 2016. Eiginfjárhlutfall félagsins var tæp 33% í árslok 2017. Arð- greiðslur til eigenda námu 187,5 milljónum króna. Þórarinn Ragn- arsson á 40% hlut í Foodco hf., Jöklaborg ehf. á 42,5% hlut, Eld- heimar ehf. eiga 15% hlut og ÞR ehf. á 2,5% hlut. peturhreins@mbl.is Tekjur Foodco drógust saman um 400 milljónir Morgunblaðið/Golli Roadhouse er í eigu Foodco hf. TRYGGINGAR Tryggingafélagið VÍS tapaði 291 milljón króna á öðrum fjórðungi árs- ins, samanborið við 917 milljóna króna hagnað yfir sama tímabil árið 2017. Samsett hlutfall var 109,1% samanborið við 84,2% á tímabilinu 2017. Í tilkynningu segir Helgi Bjarna- son, forstjóri félagsins, að tvö stór brunatjón hafi orðið með skömmu millibili sem liti afkomuna. „En á sama tíma er gott að sjá hversu sterkur grunnreksturinn okkar er því bæði samsett hlutfall síðustu 12 mánaða og áætlað sam- sett hlutfall ársins 2018 eru undir 100% þrátt fyrir umrædd stórtjón.“ Eignir VÍS í lok fjórðungsins námu 50,2 milljörðum, en voru 46,4 á sama tímabili í fyrra. Eigið fé félags- ins nam 15,7 milljörðum í lok tíma- bilsins samanborið við 16,8 milljarða á sama tíma á síðasta ári. Helgi segir í tilkynningunni að afkomuspá félagsins hafi verið upp- færð, en hún gerir nú ráð fyrir 2,2 milljarða króna árshagnaði fyrir skatta. tobj@mbl.is VÍS tapaði 291 milljón á öðrum ársfjórðungi Morgunblaðið/Eggert Samsett hlutfall VÍS var 109,1% á öðrum ársfjórðungi. SKATTAMÁL Regluleg upplýsingaskipti um eignir einstaklinga og lögaðila í fjár- málafyrirtækjum hefjast í annað skipti í september næstkomandi. Byggjast skiptin á sameiginlegum OECD-staðli (e. Common Reporting Standard) og eru það skattyfirvöld ríkja sem annast framkvæmdina. Er markmiðið með staðlinum að koma í veg fyrir skattundanskot. Fyrstu upplýsingaskiptin fóru fram í fyrra hjá 52 ríkjum en í ár verða yfir hundrað skattyfirvöld sem taka þátt í skiptunum. Til upp- lýsingaskyldra stofnana teljast sam- kvæmt staðlinum vörslustofnanir, innlánsstofnanir, sérstakir fjárfest- ingaraðilar sem fást við að stjórna rekstri fyrir viðskiptavini eða fyrir hönd þeirra í ákveðnum fjármála- gerningum, og tilgreind vátrygg- ingafélög sem gefa út eða eru skuld- bundin til að inna af hendi greiðslur vegna vátryggingarsamninga eða lífeyrissamninga. Er þessum aðilum skylt að veita upplýsingar um fjár- eignir sem erlendir skattaðilar hafa í vörslu hjá þeim. Þannig geti þessar upplýsingar flætt til skattyfirvalda í því ríki þar sem skattaðilinn er heimilisfastur. Enn gagnlegri upplýsingar Helga Valborg Steinarsdóttir hjá ríkisskattstjóra segir embættið vænta þess að fá enn gagnlegri upp- lýsingar í ljósi fleiri ríkja sem taka þátt í upplýsingaskiptunum í ár. „Væntingarnar eru þær að við fáum enn meiri og enn gagnlegri upplýs- ingar þar sem það eru að bætast í hópinn ríki sem við erum að skiptast á upplýsingum við. Það er að sjálf- sögðu mjög af hinu góða að það fjölgi í þessum hópi sem er tilbúinn að undirgangast þessar skuldbind- ingar,“ segir Helga. peturhreins- @mbl.is Skiptast á upplýsingum Morgunblaðið/Júlíus Skattyfirvöld skiptast á upplýsingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.