Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 11FRÉTTIR
Íslenskt einangrunargler
í nýbygginguna, sumarbústaðinn
eða stofugluggann.
Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is
Af síðum
„Tískan er hverful en góður smekkur varir að eilífu.“ Spakmæli Yves
Saint Laurent var til marks um þann ímugust sem hann hafði á sölu-
brellum tískugeirans. Pierre Bergé, sem stýrir YSL-vörumerkinu, hefði
bætt því við að það þætti ekki góð viðskiptaáætlun að ætla að reiða sig á
eitthvað sem er hverfult. Farfetch, sem hefur byrjað ferlið við að fá
skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum, hefur kannski leyst
þennan vanda fyrir fjárfesta. Tískumerkin koma jú og fara, en verslun á
netinu sem safnar saman því besta hverju sinni ætti alltaf að eiga eitt-
hvað til sem höfðar til þeirra sem vilja tolla í tískunni.
Lúxusvörur eiga að vera dýrar. En það eitt að vera tengt Gucci og
Balenciaga nægir ekki til að réttlæta mjög hátt álag á hlutabréfaverð
Farfetch. Þegar fulltrúar netverslunarinnar byrja að þreifa fyrir sér hjá
fjárfestum þurfa þeir að gefa þeim sannfærandi rök fyrir því að vænta
megi góðrar ávöxtunar.
Farfetch, sem er með höfuðstöðvar sínar í Bretlandi, tengir saman
kaupendur og seljendur og heldur ekki úti eigin lager. Það þýðir að
fyrirtækið getur hagnýtt sér netáhrif (e. network effect) til að vaxa hratt
án mikils tilkostnaðar. En það er full langsótt að ætlast til að fá fimm
milljarða evra fyrir reksturinn, eins og var viðrað fyrr á þessu ári. Verð-
miðinn var sá sami á YOOX Net-a-Porter þegar lúxusvörusamsteypan
Richemont keypti til sín þau hlutabréf í félaginu sem hún átti ekki fyrir.
Yoox var selt á verði sem nam 2,5-földum sölutekjum. Ef Farfetch
færi á markað metið á 5,7 milljarða myndi það þýða að verðið væri á við
15-faldar sölutekjur, sem er svimandi há tala. Það er aðeins hjá fyrir-
tækjum á borð við Rightmove, sem er með ráðandi stöðu á fasteigna-
auglýsingamarkaði í Bretlandi, þar sem reksturinn er algjörlega skot-
heldur, sem margfaldarar af þessu tagi sjást.
Kínverska netverslunin Alibaba er í dag metin á jafnvirði 11-faldra
sölutekna, sem er þolanlegri tala. Farfetch væri 4,2 milljarða dala virði ef
sama margfeldi væri beitt. Nema hvað Farfetch er rekið með tapi. Á
móti kemur að ef fyrirtækið vex hratt gæti það reynst fjárfestum mjög
arðbært þegar fram í sækir.
En fjárfestar hafa allan rétt á að malda í móinn. Fyrir það fyrsta
bendir útboðslýsing Farfetch til þess að mikið af vörum félagsins komi
frá dreifingaraðilum. Ef sumar vörurnar sem þeir skaffa eru af ódýru
gerðinni – úreltur varningur sem selst hægt – gæti það skaðað sam-
böndin við tískuhúsin. Í öðru lagi virðist José Neeves, stofnandi fyrir-
tækisins, ætla að halda allri ákvarðanatöku á eigin hendi í skjóli þess að
hlutaféð verður gefið út í tveimur flokkum sem tryggja hluthöfum mis-
mikil réttindi.
Sölufólk sem starfar í lúxusvöruverslunum temur sér ákveðna stífni
sem kemur í veg fyrir að viðskiptavinirnir reyni að prútta. Fjárfestar
ættu ekki að leyfa talsmönnum Farfetch að beita sig sömu brögð-
um.
LEX
Farfetch: langsótt verð
fyrir hátískuverslun
Síðar í vikunni mun skipafélagið Ma-
ersk Line í fyrsta skipti láta eitt af
gámaflutningaskipum sínum sigla
um Norður-Íshaf, norður fyrir Rúss-
land. Maersk, sem er stærsta sjó-
flutningafyrirtæki heims, vill með
þessu prófa siglingaleið sem keppt
gæti við leiðina sem liggur um Súez-
skurðinn.
Í þessari ferð mun danska skipa-
flutningafélagið nota nýtt fley, Venta
Maersk, sem rúmar 3.600 gáma og
hefur verið styrkt til að geta farið um
ísilagt haf. Skipið mun á næstu dög-
um halda af stað frá Vladivostok og
koma í höfn í Sánkti-Pétursborg í lok
september.
Þökk sé minnkandi hafís á norður-
slóðum gæti leiðin um Norður-Íshaf,
sem teygir sig allt frá Beringssundi á
milli Bandaríkjanna og Rússlands,
eftir endilangri norðurströnd Rúss-
lands og yfir til Noregs, að mati
sumra keppt við siglingaleiðina í
gegnum Súez-skurðinn sem skipa-
flutningaleið á milli Asíu og Evrópu.
Heitt sumar hefur hjálpað til
Í ár hefur sumarið við norður-
heimskautsbaug reynst óvenjuheitt
og hitastigið sumstaðar farið yfir
30°C.
Norður-Íshafsleiðin gæti stytt
siglingatímann frá Asíu til Evrópu
um eina til tvær vikur, eftir því hvert
ferðinni er heitið, en að sigla norð-
urleiðina er samt sem áður kostn-
aðarsamara því kjarnorkuknúinn ís-
brjótur þarf að fylgja
flutningaskipunum og þau skip sem
ráða við þessa siglingaleið eru
smærri en þau sem fara um Súez-
skurðinn.
Í tilkynningu sem Maersk sendi
Financial Times staðfesti fyrirtækið
efni fréttar sem fyrst var birt í High
North News: „Tilraunaferðin mun
hjálpa okkur að meta hvort rekstrar-
forsendur séu fyrir siglingum gáma-
flutningaskipa eftir Norður-
Íshafsleiðinni og afla um leið frekari
gagna.“
Rekstrarforsendur
skortir enn
Maersk segir jafnframt: „Í augna-
blikinu virðist okkur að ekki séu
rekstrarlegar forsendur fyrir að
bæta Norður-Íshafsleiðinni við leiða-
kerfi félagsins, sem mótast af eftir-
spurn viðskiptavina, þróun alþjóða-
viðskipta hverju sinni og
staðsetningu helstu borga.“
Félagið reyndi að láta fréttir af
siglingunni ekki berast út til að rugla
ekki viðskiptavini sína í ríminu.
Venta Maersk mun flytja frosinn fisk
og almennan varning og að auki eitt-
hvert magn frystrar matvöru en ný
skip Maersk sem gerð eru fyrir sigl-
ingar á hafíssvæðum eru ætluð til
notkunar í Eystrasalti.
Í viðtali við FT fyrir fimm árum
sagði fyrrverandi forstjóri Maersk að
það væru að minnsta kosti tveir ára-
tugir þar til skipaflutningar um
Norður-Íshaf gætu keppt við aðrar
siglingaleiðir.
Arild Moe, rannsakandi hjá Fridt-
jof Nansen-stofnuninni í Osló segir:
„Gámaflutningasiglingar í miklum
mæli um Norður-Íshaf eru ýmsum
takmörkunum háðar. Fá markaðs-
svæði eru á þessari siglingaleið og
ekki hægt að nota hana allt árið, og
þá eru takmörk á stærð þeirra skipa
sem geta siglt þessa leið sem skiptir
miklu fyrir stærðarhagræði flutn-
inga.“
Rússland lítur í vaxandi mæli á
Norður-Íshafsleiðina sem þýðingar-
mikla flutningaleið sem gæti styrkt
stöðu landsins á alþjóðavettvangi. Í
því sambandi hafa Rússar aukið út-
gjöld til varnarmála á norðurslóðum
til að opna að nýju herstöðvar sem
áður hafði verið lokað og endurnýja
þær stöðvar sem þegar eru í notkun.“
Í síðasta mánuði lét Novatek,
stærsti einkarekni gasframleiðandi
Rússlands, sérsmíðað gasflutninga-
skip sigla í fyrsta skipti eftir Norður-
Íshafsleiðinni til Kína. Leonid Mik-
helson, eigandi félagsins, segir að
þessi fyrsta ferið sé upphafið að
„nýju tímabili“ í sögu vöruflutninga.
Novatek telur að innan tíðar verði
hægt að stunda skipaflutninga
óhindrað á Norður-Íshafsleiðinni
með flota nýrra gasflutningaskipa
sem fyrirtækið er að þróa. Þessi skip
virka um leið sem ísbrjótar og þurfa
því ekki að ferðast í lest með öðrum
ísbrjótum.
Kínverska flutningafyrirtækið
Cosco hefur fjölgað ferðum um Norð-
ur-Íshafsleiðina á undanförnum ár-
um og notar til þess fjölnotaskip sem
flytja varning á borð við íhluti í vind-
túrbínur og annan þungan farm og
kann það að hafa kveikt áhuga
Maersk.
Moe segir að Norður-Íshafsleiðin
geti hentað fyrir beinar siglingar
með farm á borð við olíu og gas frá
norðurslóðum en að skipaflutningar á
milli Asíu og Evrópu eftir þess-
ari leið eigi ennþá langt í land.
Maersk lætur reyna á sigl-
ingar um Norður-Íshaf
Eftir Richard Milne í Osló og
Henry Foy í Tobolsk
Flutningaleiðin norður
fyrir Rússland virðist sí-
fellt álitlegri kostur fyrir
stærstu skipafélög heims.
Enn reynist þó afar kostn-
aðarsamt að fara um ísi-
lagt hafið. Tilraunasigl-
ingar Maersk munu varpa
frekara ljósi á tækifærin
sem í leiðinni felast.
Ljósmynd/Maersk Line
Maersk beitir sérstyrktum skipum á leiðinni norður fyrir Rússland sem þola árekstra við jökulkaldan ísinn.