Morgunblaðið - 23.08.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 23.08.2018, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018SJÓNARHÓLL HARI Tveir fyrri pistlar mínir um slagorð fyrirtækja, gáfuinnsýn í glímuna við að meitla sterk slagorð, semleitast við að draga fram kjarnann í því sem skiptir máli fyrir fyrirtæki eða ímynd þeirra. Dæmin eru mörg og hér koma nokkur í viðbót. Brimborg hefur sýnt staðfestu í slagorði sínu um að þar sé „Öruggur staður til að vera á“. Kannski ekki mjög kraft- mikið og nokkuð mörg orð, en undirstrikar að viðskipta- vinir séu í öruggum höndum með viðskipti við Brimborg. Keppinautur Brimborgar, Toyota, styðst ekki við neitt slagorð í dag, en notaði lengi vel slagorðið „Tákn um gæði“, sem lifir líklega víða enn. Alþjóðlega hefur Toyota iðulega skipt um slagorð. Frá 2004 notaði fyrirtækið „Moving For- ward“, og 2012 skipti fyrirtækið yfir í „Let’s Go Places“. Bæði fela í sér jákvæða hreyfingu en eru annars hlutlaus. BYKO hefur eins og mörg önnur fyrirtæki skipt nokkr- um sinnum um slagorð. Lengi vel notaði BYKO slagorðið „Þar sem fagmennirnir versla, er þér óhætt“. Það dró ágætlega fram faglega áherslu BYKO og þá tryggingu sem það veitti venju- legum viðskiptavinum. Síðan varð til „Byggjum á breiddinni“, sem hafði tvöfalda merkingu. Skírskotun til breiðs vöru- vals, og staðsetningar aðalverslunar BYKO í Breiddinni í Kópavogi. Nýjasta slagorðið er „Gerum þetta saman“, sem er vinalegt, en um leið mjög almennt. SS hefur í mörg ár notað slagorðið „Fremstir fyrir bragðið“, sem bæði er jákvætt og hjómsterkt, og felur í sér tvöföld skilaboð um að fyrirtækið sé í fararbroddi og á mat- vælamarkaði. Það er mjög gott slagorð, sem SS hefur ekki hrært í. Þegar Apple kom á markaðinn bar fyrirtækið með sér nýja strauma og ferska nálgun við þróun, hönnun og fram- setningu á vörum. Sem lið í að undirstrika þá stöðu kynnti Apple slagorðið „Think different“. Bæði fól slagorðið i sér öðruvísi nálgun við hlutina, og dró fram muninn á Apple og risanum IBM, sem hafði notað hugtakið „Think“ í sínum skilaboðum frá stofnun félagsins í byrjun tuttugustu aldar. Fyrirtæki sem hefur sýnt mikinn stöðugleika í notkun slagorðs er danski drykkjavöruframleiðandinn Carlsberg. Í mörg ár hefur fyrirtækið notað slagorðið „Probably best beer in the world“ fyrir sinn bjór, þar sem ekki má nota efsta stigið í auglýsingum. Nýverið höfum við séð slagorðið notað í skemmtilegum auglýsingum með danska stórleik- aranum geðþekka Mads Mikkelsen. Sýnir árangur af stað- festu fremur en að vera alltaf að reyna að poppa slagorðin upp. Bankarnir hafa ýmist stuðst við slagorð eða ekki. Þegar Íslandsbanki varð til við sameiningu fjögurra banka 1990 kynnti hann slagorðið „Í takt við nýja tíma“. Gaf með því fyrirheit og loforð til samfélagsins um nútímalega nálgun við fjármálaþjónustu. Síðar kom slagorðið „Engir tveir eru eins“, sem undirstrikaði áherslu bankans um að taka tillit til aðstæðna og þarfa hvers og eins. Hin síðari ári hefur Ís- landsbanki ekki notað fast slagorð heldur tengt skilaboð frekar einstökum markaðsherferðum. Landsbankinn var lengi vel með „Banki allra landsmanna“ eða frá miðjum ní- unda áratuginum, en hefur farið svipaða leið og Íslands- banki þ.e. tengt slagorð fremur við einstakar markaðs- herferðir. Arion banki virðist síðustu misseri einbeita sér að því að nota slagorðið „Fyrir framtíð- ina“, sem er dauft bergmál af fyrsta slagorði Íslandsbanka, með að vera í takti við nýja tíma. Slagorðið er stutt, hljómar vel, og er jákvætt. Í því er hreyfing og uppbyggileg skila- boð, ekki síst fyrir yngri við- skiptavini. Tvö skemmtileg dæmi um hversu sterk slagorð geta orð- ið, má nefna annars vegar Arnold Schwarzenegger í mynd- inni Terminator frá árinu 1984. Þar mælti Arnold hin fleygu orð „I’ll be back“, sem upp frá því tengdust leik- aranum órjúfanlegum böndum. Hefur Arnold reyndar mælt þau í 15 kvikmyndum alls. Og hins vegar ekki ósvipuð orð sem Jóhanna Sigurðardóttir mælti á flokksþingi Al- þýðuflokksins 1994: „Minn tími mun koma“, þegar hún hafði tapað í formannskjöri. Hafa þau tengst Jóhönnu alla tíð síðan. Sem nokkur gömul minnisstæð dæmi um slagorð má nefna að um miðjan áttunda áratuginn fór Kaffibrennsla Akureyrar að nota slagorðið „Það hressir Braga kaffið“, sem festist í þjóðarvitundinni. Jákvætt og lýsandi slagorð, sem ekki er reyndar notað lengur. Annað minnisstætt er „Allt frá hatti oní skó, herradeild PÓ“. Það dró skemmti- lega fram fjölbreytt vöruval og festi nafn verslunarinnar í minni um leið. Vel gert. Kjarni málsins er sá að vel ígrundað og sterkt slagorð getur hjálpað mjög til við að festa stefnu og fókus fyr- irtækis á markaði, og þar með styrkt vörumerkið og sam- keppnisstöðu þess. STJÓRNUN Þórður Sverrisson, sérfræðingur hjá Capacent Er slagorðið að slá í gegn? ” Kjarni málsins er sá að vel ígrundað og sterkt slagorð getur hjálpað mjög til.... FORRITIÐ Góð tungumálakunnátta getur kom- ið fólki langt í atvinnulífinu. Svo er það líka skemmtileg áskorun að reyna að kynnast nýju máli og öðlast um leið betri sýn á menningu og samfélag annarra landa. Þetta veit t.d. Mark Zuckerberg sem tók sig til, eins og frægt er orð- ið, og lærði kínversku samhliða því að stjórna stærsta samfélagsmiðli heims. Þeir sem vilja ekki vera eftirbátar Zuckerbergs á neinu sviði ættu að skoða forritið Mandarin Hero, sem hannað hefur verið til að aðstoða þá sem vilja vera samræðuhæfir á máli Xi Jinping, Jack Ma og Konfúsíusar. Kínverskan er ekki létt mál að læra. Bæði þarf að skilja framandi ritmálið og líka læra rétt hljómfall auk þess sem orðaforðinn er eins ólíkur íslensku og hugsast getur. Mandarion Hero reynir að létta þetta mikla verk eins og frekast er unnt, með spjöldum og æfingum sem hjálpa til við að bæta jafnt og þétt í þekkingarforðann. Þeir sem halda sig við efnið ættu að öðlast ágætis grunn í málinu, og munu geta látið ljós sitt skína í næstu viðskiptaferð til Kína, eða þegar þeir eiga leið inn á veitinga- stað í kínahverfi einhverrar stór- borgarinnar. ai@mbl.is Með ágætis tök á kínverskunni í hvelli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.