Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 14

Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018FÓLK Sumarið 2016 átti Heimir Her- mannsson í mestu vandræðum með að finna pípara. „Eftir að hafa eytt mörgum klukkutímum í símanum við að reyna að finna einhvern sem gæti tekið minniháttar verk að sér rann upp fyrir mér að það hlyti að vera til léttari leið til að hafa uppi á iðnaðarmanni.“ Heimir er stofnandi sprotans MittVerk (www.mittverk.is) sem al- menningur getur notað til að finna fagmenn til að vinna hvers kyns verkefni, bæði stór og smá. „Ég byrjaði á að stofna Facebook-síðu til þess eins að athuga hvort einhver eftirspurn væri til staðar. Ég hélt það myndi taka mig nokkrar vikur að fá svarið, en á aðeins örfáum dögum var síðan orðin mjög vinsæl og ljóst að töluverð vöntun væri á þjónustu af þessu tagi. Í framhald- inu lokaði ég Facebook-síðunni og hófst handa við að þróa MittVerk.“ Heimir ákvað strax í upphafi að gera MittVerk að snjallsímaforriti, þó þjónustan sé í dag einnig fáanleg í gegnum snjallsímavæna vefsíðu. „Með snjallsímaforriti auðveldum við notendum að senda inn myndir og teikningar sem hjálpa iðnaðar- mönnum að átta sig á eðli og um- fangi hvers verkefnis. Verkkaupar gefa upp hvar á landinu þeir eru staddir og hvaða sérhæfingu iðn- aðarmaðurinn þarf að hafa, og teng- ir forritið þá við fagmenn sem geta tekið verkefnið að sér.“ Auk þess að létta leitina að iðn- aðarmönnum vill Heimir að Mitt- Verk virki eins og n.k. smurbók heimilisins. „Það getur komið í góð- ar þarfir, t.d. þegar selja á fasteign, að hafa nákvæmar upplýsingar um viðhaldssöguna, sjá hvað var gert og hvenær og jafnvel hvaða efni voru notuð.“ Einnig getur MittVerk boðið upp á það sem Heimir kallar viðhald í áskrift. „Talað er um það sem þumalputtareglu að ár hvert þurfi að ráðstafa sem nemur 1-2% af virði fasteignar í viðhald og viðgerðir. Með viðhaldi í áskrift fær við- skiptavinurinn til sín fagmenn, með gæðakerfið vottað af Mannvirkja- stofnun, til að gera ástandsskoðun á húsnæðinu. Þeir gera síðan við- haldsáætlun og þjónustusamning, s.s. til 12 eða jafnvel 60 mánaða, og greiðir viðskiptavinurinn fyrir við- haldsverkefnin með því að greiða mánaðarlegt gjald.“ Jafnvægi framboðs og eftirspurnar Heimir segir MittVerk skapa töluvert hagræði fyrir bæði iðn- aðarmennina og þá sem þurfa á þjónustu þeirra að halda. Fagmenn- irnir geti oft sparað sér ferð á stað- inn til að gera tilboð í verk enda hafi þeir betri lýsingu til að styðjast við, og kaupandinn eigi mun auð- veldara með að finna mann í verkið. MittVerk tekur ekki gjald fyrir að vera milliliður í viðskiptunum heldur fær tekjur með því að tengja saman seljendur byggingavöru og fólk í framkvæmdahugleiðingum. „Þegar notendur setja inn beiðni um verk geta þeir hakað við að fá símtal frá verslun sem gerir þeim tilboð í það efni sem þarf í verk- efnið.“ Stærsti vandinn sem MittVerk stendur frammi fyrir snýr að því að hafa jafnvægi á framboði og eftir- spurn. „Við höfum verið að bæta hugbúnaðinn og þess vegna ekki auglýst mikið undanfarna mánuði, en þegar við auglýsum á stöðum eins og Google fáum við strax fjölda beiðna. Ef of fáir iðnaðarmenn nota kerfið verða notendur fyrir von- brigðum og þurfa að bíða lengi eftir að komast að. Á meðan við hægðum á í sumar söfnuðum við inn rösklega 200 iðnaðarmönnum og förum núna af stað á ný með loforði um að not- endur geti fengið fagmann til sín innan tíu daga.“ Lofa iðnaðarmanni innan tíu daga Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sprotinn MittVerk hefur þróað þjónustu í appi og á netinu sem léttir leitina að iðnaðarmanni. Gæta þarf að því, eftir því sem umfangið eykst, að gott jafnvægi sé á fjölda verkefnabeiðna og fjölda fagmanna sem nota kerfið. Heimir byrjaði á að stofna Facebook-síðu til að sjá hvort eftirspurn væri eftir þjónustunni sem MittVerk veitir. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is fyrir heimilið VifturHitarar LofthreinsitækiRakatæki Í undirbúningi er stofnun félags um einn af hæst dæmdu og efnilegustu ungu stóðhestum landsins. Ætlunin er að safna saman einstaklingum (eða fyrirtækjum) úr viðskipta- og atvinnulífi til að taka þátt í nýstárlegu verkefni, sem getur bæði orðið skemmtilegt, óvenjulegt og arðbært. Ekki er verið að leita að fólki með sérstakan áhuga eða þekkingu á hefðbundinni hestamennsku. Hesturinn er verðlagður á 25 milljónir króna, og ætla ræktendur að eiga áfram hlut í hestinum, en hlutir fyrir 20–24 milljónir króna verði seldir núna, að lágmarki 500 þúsund hver hlutur. Hesturinn er sem fyrr segir einn glæsilegasti og hæst dæmdi graðhestur landsins úr röðum yngri stóðhesta. Hann hefur þegar sannað sig í kynbótasýningum og í keppni. Ætlunin er hesturinn verði á Íslandi næstu 3 árin og keppi og komi fram á ýmsum viðburðum svo sem Landsmóti 2020 og á Íslandsmótum í hestaíþróttum og víðar. Hann mun einnig sinna hryssum og er áformað að tekjur af því geri meira en að greiða kostnað við þjálfun hans og fóður. Síðan er stefnt að því að fara með hestinn á Heimsmeistaramót íslenska hestsins sumarið 2021, en endanleg ákvörðun þar um verður þó í höndum meirihluta eigenda. Áætlað söluverð hestsins eftir Heimsmeistaramótið er 45 til 50 milljónir króna. Efnt verður til viðburða og veisluhalda í kringum hestinn nokkrum sinnum á ári, þar sem eigendum og gestum þeirra verður boðið. Þetta á til dæmis við um það þegar hesturinn kemur inn til þjálf- unar á haustin, þegar hann tekur þátt í sýningum og keppni og þegar hann fer í sumarhaga að sinna hryssum. Eigendur geta nýtt sér hestinn til að bjóða viðskiptavinum að fylgjast með og taka þátt í óvenjulegu starfi, og þegar eru áætlanir um að hesturinn geti nýst við markaðskynningar fyrir íslensk fyrirtæki í Bandaríkjunum og Evrópu, þar á meðal í Rússlandi, þar sem íslenski hesturinn hefur enn ekki numið land. Rússneskir auðkýfingar hafa sýnt áhuga á þessu verkefni. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í ævintýrinu sendi tölvupóst á netfangið gradhestur1079@gmail.com. Öllum verður svarað og öllum er heitið trúnaði, og farið fram á að slíkt gildi um alla aðila verkefnisins þar til annað verður ákveðið. Graðhestur Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.