Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 1
NÝTÆKIFÆRIMEÐÓDÝRARITÆKNI
Bugatti gengur enn lengra með nýjum Divo. 4
Unnið í samvinnu við
Controlant framleiðir hitaskynjara
sem geta sent upplýsingar í rauntíma
nánast hvaðan í heiminum sem er. 14
VIÐSKIPTA
Vala Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Framtíðarinn-
ar, segir mikil tækifæri skapast á fjármálamarkaði
með breyttum þörfum og ódýrari tækn
VAKTARMATOGLYF
i.
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
1.3.‘18
1.3.‘18
29.8.‘18
29.8.‘18
1.783,59
1.594,79
130
125
120
115
110
123,55
124,75
Edinborg hyggst skattleggja
ferðamenn fyrst borga á Bret-
landseyjum vegna hömlu-
lausrar fjölgunar
þeirra í borginni.
Leggja skatt á
ferðamenn
10
Erlendir knattspyrnumenn í
ensku úrvalsdeildinni leita nú
leiða til að verja sig gegn
mögulegum afleið-
ingum Brexit.
Leikmenn í vörn
gegn veiku pundi
11
Hafnar mögulegri
bótaábyrgð stjórnenda
Í fordæmalausri tilkynningu sem Ice-
landair Group sendi frá sér á mánu-
dag er greint frá því að skipulags-
breytingar sem ráðist var í á fyrri
hluta árs 2017 á vettvangi fyrir-
tækisins hafi valdið „félaginu fjár-
hagslegu tjóni á þessu ári“. Segir
Björgólfur Jóhannsson í tilkynning-
unni að þær séu teknar á sinni vakt
og að hann beri ábyrgð gagnvart
stjórn og hluthöfum á þeim.
„Þó að vissulega sé búið að taka á
fyrrnefndum vandamálum þá er það
ábyrgðarhluti að hafa ekki fylgt
breytingunum eftir með fullnægjandi
hætti og brugðist fyrr við. Þá ábyrgð
tel ég rétt að axla og læt því að störf-
um sem forstjóri félagsins,“ segir
Björgólfur í tilkynningunni.
Lögfræðingar sem Viðskipta-
Mogginn hefur rætt við frá því að til-
kynningin var send út segja fáheyrt
að forsvarsmenn fyrirtækja gangi
fram fyrir skjöldu og lýsi sig ábyrga
fyrir fjárhagstjóni sem fyrirtæki
þeirra hafi orðið fyrir. Bent hefur
verið á að í hlutafélagalögum nr. 2/
1995 segi: „stofnendur, stjórnar-
menn, framkvæmdastjórar og endur-
skoðendur og skoðunarmenn hluta-
félags, svo og matsmenn og
rannsóknarmenn, eru skyldir að
bæta hlutafélagi það tjón, er þeir hafa
valdið félaginu í störfum sínum, hvort
sem er af ásetningi eða gáleysi.“
Spurður út í hvort mögulega hafi
stofnast til bótaábyrgðar hans eða
annarra stjórnenda félagsins segir
Björgólfur að fráleitt sé að halda því
fram að hún sé til staðar.
„Það er einfaldlega þannig að
stjórnendur taka ákvarðanir og hafa
það hlutverk. Sumar þeirra ganga
upp, aðrar ekki. Ef menn væru bóta-
skyldir vegna ákvarðana sem ekki
skila tilætluðum árangri þá væri það
mjög undarlegt.“
Leggja sjálfir mat á tjónið
Það sem einnig vekur athygli í
fyrrnefndri afkomuviðvörun Ice-
landair frá því á mánudag er að þar
leggur fráfarandi forstjóri beint mat
á það fjárhagslega tjón sem ákvarð-
anir stjórnenda félagsins leiddu til.
„Það er mat okkar að lækkun far-
þegatekna Icelandair sem rekja
megi til fyrrgreindra breytinga séu
á bilinu 5-8% (50-80 milljónir USD)
á ársgrundvelli.“ Það jafngildir 5,3-
8,5 milljörðum íslenskra
króna.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Björgólfur Jóhannsson,
fráfarandi forstjóri Ice-
landair Group, hafnar því
að stjórnendur félagsins
hafi bakað sér bótaábyrgð
með ákvörðunum sem
leiddu til fjárhagstjóns fyrir-
tækisins.
Morgunblaðið/Hari
Björgólfur Jóhannsson, fráfarandi forstjóri, og Bogi Nils Bogason, fjár-
málastjóri félagsins, kynna uppgjör fyrri árshelmings 1. ágúst síðastliðinn.
8
Það gæti dregið úr sjálfstæði Seðla-
bankans að útvíkka starfssvið hans,
meðal annars með því að færa verk-
efni úr Fjármálaeftirlitinu til hans.
Þetta er mat Jóns Daníelssonar,
prófessors í hagfræði og fjármálum
við London School of Economics.
Jón segir að í Seðlabankanum eigi
peningastefnan að ráða. Ef verk-
efnum fjölgi, til dæmis ef banka-
eftirlit færi líka inn í bankann, þá
geti peningastefnan farið að hafa
áhrif á mikilvæga ákvarðanatöku um
eftirlitið, sem gæti verið skaðleg
fyrir samfélagið.
Jón segir að ein ástæðan fyrir því
að ekki sé gott að fjölga verkefnum
Seðlabankans sé að bæði bankaeft-
irlit og þjóðhagsvarúðarstefna sé
miklu pólitískari í eðli sínu en pen-
ingastefnan. „Með því að flytja
svona hluti inn í Seðlabankann er
dregið úr sjálfstæði hans og mögu-
leika hans á að framfylgja
virkri peningastefnu.“
Drægi úr
sjálfstæði
bankans
Morgunblaðið/Ómar
Nefnd lagði fyrr í sumar til flutning
verkefna frá FME til Seðlabankans.
Peningastefnan á að ráða
í Seðlabankanum að mati
Jóns Daníelssonar.
7