Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018FRÉTTIR HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R o o ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Svæðið í kringum Grassmarket í Edinborg var hér áður fyrr alræmt fyrir ómenningu og hnignun, en Sean Bradley, sem hefur búið í hverfinu um langt skeið, segir að ná- grannar þessa sögufræga torgs standi núna frammi fyrir enn stærra vandamáli: ferðamennsku. Vaxandi straumur ferðamanna og mikil aukning í framboði hótela, far- fuglaheimila og gistingar í heima- húsum hafa valdið því að lífið í þessu millistéttarhverfi er orðið „óbæri- legt“ að sögn Bradley, sem þar hef- ur búið í meira en fjóra áratugi. „Grassmarket hafði vissulega á sér ákveðið orðspor, en það var meiri glaðværð yfir samfélaginu í þá daga,“ segir hann. „Núna er þetta samfélag nærri horfið“. Urgur fólks eins og Bradley er núna orðinn að pólitísku hitamáli í höfuðborg Skotlands. Á undan- förnum mánuðum hafa borgar- yfirvöld lagt til að innleiddar verði strangari reglur en áður hafa tíðkast um skammtímaleigu íbúðar- húsnæðis og þau vilja að „ferða- mannaskattur“ verði lagður á, í fyrsta skipti í sögu Bretlands. Verði tillögurnar að veruleika gæti Edin- borg orðið fyrirmynd annarra breskra borga sem eiga í vandræð- um með að bregðast við fjölgun ferðamanna. Strangari leyfisveiting Fyrr í mánuðinum samþykktu borgarfulltrúar tillögu þess efnis að skylda húseigendur til að sækja um leyfi ef þeir vilja leigja út íbúðar- húsnæði til skamms tíma, svo sem í gegnum vefsíður eins og Airbnb. Fasteign sem leigð er út í meira en 45 daga á ári þarf að vera með leyfi, sem gefur borgaryfirvöldum heimild til þess að framkvæma öryggis- úttektir, ákvarða hvers konar eignir má leigja út og setja hámark á fjölda þeirra. Þessar reglur ganga lengra en til- lögur Airbnb um að takmarka út- leigu á íbúðarhúsnæði í Edinborg við 90 daga á ári, til viðbótar við há- annatímann að sumri þegar hátíðir eru haldnar í borginni. Fyrirtækið setti á sams konar takmarkanir í London í fyrra. Leigusalar eru í uppnámi vegna fyrirætlana stjórnvalda og halda því fram að borgaryfirvöld noti þegar núgildandi reglur til þess að gera þeim erfitt fyrir. Samtökin Association of Scot- land‘s Self Caterers segja að ekkert sýni fram á þörf fyrir „harkalegt og hamlandi leyfisveitingakerfi.“ En stuðningsmenn tillagnanna segja að ör vöxtur skammtímaleigu, sér í lagi í hinu sögufræga Old Town-svæði og í 18. og 19. aldar byggðinni New Town sem er skammt þar frá, valdi því að grípa þurfi til aðgerða tafarlaust. Eins og að eiga heima á hóteli Tölur frá fasteignaráðgjafar- fyrirtækinu Colliers International sýna að á Airbnb vefsíðunni einni fjölgaði bókunum íbúða og her- bergja í Edinborg um 70% árið 2017 og töldu þær samtals 1,1 milljón gistinætur, 20% af gistimarkaði borgarinnar. Fasteignafélagið Rettie hefur áætlað að á undanförnum fjórum ár- um hafi um það bil 10% af hefð- bundnum leiguíbúðum í einkaeigu færst frá langtímaleigu yfir í skammtímaleigu til ferðamanna. Margir vilja tengja þessa þróun við þá skörpu hækkun sem orðið hefur á fasteignaverði, sem bolað hefur í burtu íbúum með langtíma búsetu. „Við getum einfaldlega ekki leyft samfélögum okkar að verða holuð að innan með þessum hætti,“ sagði Kate Campbell, borgarfulltrúi SNP, Skoska þjóðernisflokksins, í Edin- borg fyrr í mánuðinum. Margir borgarbúar segja að út- leiga til ferðamanna sé líka að grafa undan lífsgæðum þeirra, sér í lagi í hefðbundnum fjölbýlishúsum borg- arinnar þar sem stigagangur er sameiginlegur, og veggir og gólf eru aldagömul. Samuel Piacentini, einn af stjórn- endum íbúasamtaka Old Town, segir að af tólf íbúðum á stigangi hans séu aðeins tvær eftir þar sem fólk hefur fasta búsetu. „Þetta er eins og að vera var- anlega búsettur á hóteli,“ segir hann. „Það kom upp atvik þar sem í tveggja manna íbúð reyndust vera sex manns, standandi fyrir gleðskap og gubbandi á stigaganginum.“ Piacentini segir að Edinborg þurfi að endurskoða hvernig borgin hefur leyft ferðaþjónustunni að vaxa hömlulaust til þessa, í nafni þess að örva hagkerfið. Borgin áætlar að hótelherbergjum muni fjölga um 1.960 á tímabilinu frá 2017 til 2020. Þarf blessun þingsins Adam McVey, borgarfulltrúi Skoska þjóðernisfloksins og forseti borgarstjórnar, staðhæfir að borgin „ráði vel“ við innstreymi ferða- manna og að ímynd borgarinnar sem „óreiðukennd og listræn þunga- miðja heimsins“ að sumri til beri að fagna. En McVey styður áætlanir um að borgin verði sú fyrsta í Bretlandi til að leggja sérstakan skatt á ferða- menn, og verður hann í formi gjalda á hótel, farfuglaheimili og skamm- tímaleigur til ferðamanna. Samkvæmt útreikningum sem gerðir hafa verið fyrir borgarstjórn- ina myndi gjald upp á eitt pund á hverja gistinótt afla borgarsjóði 11 milljóna punda á ári, en það fjár- magn mætti m.a. nota til að bæta innviði og draga úr vandamálum tengdum sorphirðu og mannsöfnuði. Meirihlutinn í borgarstjórn, sem myndaður er af fulltrúum SNP og Verkamannaflokksins, hefur skellt skollaeyrum við kvörtunum hótel- geirans, sem þarf nú þegar að borga hlutfallslega háan virðisaukaskatt og ýmis önnur opinber gjöld. „Í Edinborg er bæði verð og nýt- ing gistirýmis með því hæsta sem gerist í Bretlandi ... [hótelstarfsemi] hefur heldur betur notið góðs af ferðamannahagkerfinu,“ segir McVey. Og Airbnb segir: „Við viljum að reglur gildi um starfsemi okkar ... og við munum með glöðu geði styðja þá hugmynd að taka upp ferðamannaskatt.“ En ef hugmyndir McVey eiga að verða að veruleika þarf skoska þing- ið að veita blessun sína, og að svo stöddu virðast ráðherrar SNP ekki sérlega áhugasamir. Fiona Hyslop, ferðamálaráðherra, segir að það sé „ekkert vit“ í ferða- mannaskatti, og hún hefur opin- berlega lýst efasemdum sínum um að McVey takist að leggja nýja skattinn á á næsta ári. Fleiri bæir líta til Edinborgar En bæjar- og borgarstjórnir ann- ars staðar í Skotlandi hafa stutt kröfur Edinborgar um að fá að skattleggja ferðamenn. Ef SNP stendur í vegi fyrir þessari kröfu gæti það orðið til þess að ýta frekar undir það orðspor sem fer af flokkn- um, að hann vilji þjappa valdi á einn stað frekar en að dreifa því á sveit- arstjórnir. Adam Wilkinson, sem stýrir varð- veislusamtökunum Edinburgh World Heritage, segir að það sé brýnt að bregðast við áhyggjum íbúa svo að takast megi að varðveita einkenni og aðdráttarafl höfuð- borgar Skotlands til frambúðar. „Það sem er gott fyrir heimamenn er líka gott fyrir gesti, en það sem kemur gestum vel er ekki endilega að gagnast heimamönnum,“ segir Wilkinson. „Án fólksins sem býr í borginni verður Edinborg bara leikmynd.“ Ferðamenn þrengja að Edinborgarbúum Eftir Mure Dicke í Edinborg Edinborg hyggst skatt- leggja ferðamenn, fyrst borga á Bretlandseyjum, en margir íbúar eru orðnir þreyttir á hömlulausum vexti í fjölda ferðamanna sem þeir segja að skaði samfélagið og ýti fast- eignaverði í hæstu hæðir. AFP Bókunum íbúða í Edinborg á Airbnb fjölgaði um 70% á síðasta ári og námu þær 20% af gistimarkaði borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.