Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 9FRÉTTASKÝRING
Icelandair Group“ voru taldar góðar.
Þessi tíðindi ollu mikilli verðlækkun á bréfum
félagsins og þurrkaðist nærri fjórðungur mark-
aðsverðmætis þess upp eins og hendi væri veif-
að í kjölfar tilkynningarinnar. Ólíkt því sem oft
gerist eftir mikið fall af þessu tagi hækkuðu
bréfin ekki í kjölfarið heldur gáfu enn frekar
eftir.
Sjónir beinast einnig að stöðu WOW air
Árið 2017 leið að mestu tíðindalítið þegar litið
er yfir hlutabréfaverð Icelandair. Það var þó
talið jákvætt merki á markaðnum þegar fyrir-
tækið sendi frá sér jákvæða afkomuviðvörun í
lok október. Þá var EBITDA-spá félagsins
hækkuð úr 150-160 milljónum dollara í 165-175
milljónir dollara. Náðu bréfin þá hæsta gildi
sínu frá fallinu í byrjun febrúar.
Spáin reyndist nærri lagi. Félagið skilaði ríf-
reyndin er sú að við endurskoðun rekstrarspár
okkar samhliða uppgjöri júlímánaðar var staðan
þessi,“ segir Björgólfur.
Næstu skref á vettvangi félagsins
Nú hefur Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri
Icelandair, tekið tímabundið við stöðu forstjóra.
Eitt af hans fyrstu verkefnum hlýtur að vera að
yfirfara og betrumbæta þau spálíkön sem félag-
ið notast við í áætlanagerð sinni. Það liggur
reyndar fyrir samkvæmt afkomuviðvöruninni á
mánudag. Þar er einfaldlega viðurkennt að
spálíkön „sem meðal annars byggja á sögulegri
þróun“ hafi ekki „virkað sem skyldi“.
En stjórn félagsins hefur einnig það vanda-
sama verkefni fyrir höndum að velja félaginu
nýjan forstjóra. Hvert andrými stjórnarinnar til
þess verks verður mun koma fljótt í ljós. Bréf
félagsins hækkuðu hins vegar um 1,43% í við-
skiptum gærdagsins og stóðu í genginu 7,1 við
lok dags.
Lánaskilmálar og fleiri mál til skoðunar
Í gær flutti Morgunblaðið frétt af því að skil-
málar í stóru skuldabréfaútboði Icelandair frá
árinu 2016, sem upphaflega hljóðaði upp á 150
milljónir dollara, en var síðar stækkað, kynnu
að komast í uppnám ef ný EBITDA spá félags-
ins gengi eftir. Þannig er í skilmálum útgáf-
unnar tiltekið að vaxtaberandi skuldir félagsins
megi á engu reikningstímabili fara yfir hlut-
fallið 3,5. Gangi spár eftir og verði við neðri
mörk útgefinnar EBITDA-áætlunar, þ.e. upp á
80 milljónir dollara, verður hlutfallið hins vegar
4,29 við lok árs, nema skuldir félagsins lækki
talsvert. Í samtali við Morgunblaðið benti Bogi
Nils á að félagið geti gert breytingar á efnahag
sínum, ekki síst vegna sterkrar lausafjárstöðu
en þá eigi félagið einnig mikið magn óveðsettra
eigna. Á sama tíma gerir markaðurinn sér
grein fyrir að miklar fjárfestingar eru fram-
undan á vettvangi félagsins, ekki síst í
tengslum við kaup þess á 16 nýjum Boeing
737MAX vélum sem teknar verða í notkun í
skrefum á komandi árum. Á sama tíma er
félagið með afar verðmætar eignir í sölu-
meðferð, það á við um hótelreksturinn sem
teygir sig um land allt. Með haustinu er búist
við að það ferli fari í gang með formlegum
hætti en undirbúningur að því hefur staðið um
alllangt skeið. Hvernig brugðist verður við stöð-
unni sem upp getur komið í tengslum við
skuldabréfaflokkinn, verði EBITDA félagsins á
fyrrnefndum slóðum, bíður hins vegar vænt-
anlega nýs forstjóra og þess teymis sem hann
mun raða í kringum sig.
voru komin á svipaðar slóðir og árið 2013. Til
samanburðar flutti Icelandair tæplega 2,3 millj-
ónir farþega árið 2013 en í ár er búist við að
fjöldinn verði vel yfir 4 milljónir.
Fjárfestar höfðu lítinn tíma til að jafna sig.
Sléttum 50 dögum eftir hina neikvæðu afkomu-
spá reið annað högg yfir markaðinn. Nýjustu
áætlanir Icelandair sýndu að EBITDA-
horfurnar fyrir árið voru í raun mun verri en
tilkynnt var um í fyrri hluta júlímánaðar. Þegar
tölurnar voru dregnar saman og bornar fyrir
stjórn Icelandair tilkynnti Björgólfur Jóhanns-
son einnig um uppsögn sína. Hans væri ábyrgð-
in á því „fjárhaglega tjóni“ sem ákvarðanir sem
teknar voru á hans vakt leiddu til. Í tilkynningu
frá félaginu sem send var út í formi afkomu-
viðvörunar var bent á að tekjutap félagsins sem
rekja mætti beint til þeirra breytinga sem
stjórnendur félagsins ákváðu að ráðast í myndu
kosta félagið 5-8% á ársgrundvelli, jafnvirði 5,3-
8,5 milljarða króna.
Nú var semsagt komið annað hljóð í strokk-
inn. Vissulega var bent á að vonir stjórnenda,
sem endurómuðu afkomutilkynninguna frá 7.
júlí um hækkandi meðalfargjöld virtust ekki
ætla að ganga eftir. Þá er án undanbragða bent
á að fyrrnefndar breytingar sem ráðist var í á
skipulagi félagsins, bæði hvað varðar leiða-
kerfisskipulagið og söluskrifstofur á erlendri
grundu, séu nú orsökin fyrir milljarða tekju-
samdrætti hjá félaginu. Það sem haldið var
fram 50 dögum fyrr, þess efnis að skipulags-
breytingarnar „hefðu að mestu gengið vel“,
stóðst ekki skoðun. En það vekur einnig athygli
að þrátt fyrir þær áhyggjur sem forstjóri fé-
lagsins hafði af þeim ákvörðunum sem þarna
um ræðir, allt frá maímánuði, komu þær ekki
fram í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 7.
júlí. Þær urðu ekki opinberar fyrr en nú í byrj-
un vikunnar
Afar skammur tími reyndist milli afkomu-
viðvarananna tveggja sem sendu bréf félagsins
í nær lóðréttu falli niður á það gengi sem fjár-
festar höfðu síðast átt að venjast árið 2012 í til-
felli Icelandair. Spurður út í af hverju félagið
hafi ekki fært afkomuspána enn frekar niður í
júlí segir Björgólfur að þetta sé til marks um
hversu kvikur markaðurinn sé.
„Hlutirnir gerast einfaldlega mjög hratt. Við
skulum líka gera okkur grein fyrir því að við
erum ekki að draga upp þessar tölur eftir til-
finningunni einni saman heldur byggir þetta
líka á reiknilíkönum sem skoða söguleg gögn,
horfur og þróun til skamms tíma en einnig til
lengri tíma litið. Við verðum að styðjast við
þessar tölur í áætlanagerð okkar og stað-
lega 170 milljónum dollara EBITDA yfir árið.
En um leið og uppgjör Icelandair lá fyrir beind-
ust sjónir markaðarins að hinu skjótt vaxandi
WOW air sem sífellt gerði sig sýnilegra á flug-
hlöðum Keflavíkurflugvallar. Félagið er ekki
skráð á markað en hefur þó á síðustu árum birt
ársfjórðungslega tilkynningar um afkomu sína.
Þegar líða tók á árið 2018 tók markaðinn og
ekki síður fjölmiðla að lengja eftir uppgjöri fé-
lagsins, bæði fyrir fyrra ár og einnig fyrsta og
annan ársfjórðung. Þá varð ljóst að forsvars-
menn WOW air hygðust ekki birta þessar upp-
lýsingar fyrr en í fulla hnefana og þegar það
var gert, var um fremur takmarkaðar upplýs-
ingar að ræða. Þau vinnubrögð gáfu tilefni til að
draga þá ályktun að reksturinn hefði ekki geng-
ið jafn vel og þegar uppgjörstölum var haldið
stíft að fjölmiðlum. Ljóst var að vandi Ice-
landair var síst einangraður. Sömu sögu var að
segja frá útlöndum. Um langt skeið hefur staða
Norwegian verið talin veik og það vakti einnig
mikla athygli þegar Air Berlin liðaðist í sundur
í árslok 2017.
Skammt stórra högga í milli
Þegar ferðaþjónustan er á yfirsnúningi í
júlí berast að nýju fréttir frá Icelandair.
Félagið tilkynnir í formi afkomuviðvörunar
að EBITDA spáin fyrir árið sé lækkuð úr
170-190 milljónum dollara í 120-140 milljónir.
Líkt og í ársbyrjun 2017 er bent á að margar
samverkandi ástæður séu fyrir lækkuninni.
Meðalfargjöld séu ekki að hækka, flugáætlun
hafi raskast vikurnar á undan vegna seink-
unar á innleiðingu nýrra flugvéla, veðurfar
og fleira. Þá er bent á að tekjur hafi „tap-
ast.“ Einnig er ítrekað að olíuverð hafi hækk-
að gríðarlega, töluverðar afbókanir hafi verið
hjá hópum í gegnum Iceland Travel, eitt af
dótturfélögum Icelandair Group, og þá hafi
mikil framboðsaukning á „nokkrum lyk-
ilmörkuðum félagsins haft áhrif á verðþróun
yfir háönn“. Þá hafi verið „fjárfesting í nýj-
um áfangastöðum“ en „bókanir fara hægar af
stað á þessum stöðum en gert var ráð fyrir“.
Í sömu tilkynningu ítrekar forstjóri félagsins
þó að „þær miklu skipulagsbreytingar sem
félagið hefur gengið í gegnum undanfarið ár
hafa að mestu gengið vel og gripið hefur ver-
ið til fjölmargra aðgerða í rekstrinum til að
styrkja það til framtíðar“.
Fimmtíu dagar milli válegra tíðinda
Enn á ný virtist markaðurinn ekki búinn
undir vond tíðindi af stærsta ferðaþjónustufyr-
irtæki landsins. Bréf félagsins féllu um 25% og
2013 2014 2015 2016 2017 2018
2.225
1.792
1.289
999
807
40
30
Í árslok 2015
Félagið fl ytur tæplega 3,1
milljón farþega og fjölgaði
þeim um 18% milli ára.
15. nóvember 2017
Stjórn Icelandair Group ákveður að segja upp
Birki Hólm Guðnasyni framkvæmdastjóra
Icelandair. Skipulagsbreytingar eru gerðar á fé-
laginu og Björgólfur Jóhannsson tekur við þeim
verkefnum sem áður voru á herðum Birkis.
27. ágúst 2018
50 dögum eftir afkomuviðvörunina í
júlí er tilkynnt um að horfurnar séu enn
dekkri en áður var talið. Félagið tekur
enn aðra dýfuna í Kauphöll í kjölfarið.
Björgólfur segir starfi sínu lausu og leit
að eftirmanni hans hefst um leið.
g ganga frá samningi um kaup á
X fl ugvélum ásamt kauprétti á átta
bótar. Heildarverðmæti viðskipt-
am 1,6 milljörðum Bandaríkjadala.
Maí 2015
Icelandair tekur í notkun
tvær breiðþotur af gerðinni
Boeing 767-300. Samhliða
því er tilkynnt að félagið
hafi keypt tvær slíkar
vélar til viðbótar. Eru það
langstærstu farþegavélar
sem félagið hefur notast
við í áætlunarfl ugi sínu.
Vorið 2018
Fjármálafyrirtæk-
ið Arctica Fin-
ance dregur upp
mynd af verð-
mæti Icelandair
sem ekki fellur í
kramið hjá stjórn-
endum fl ugfé-
lagsins. Þremur
mánuðum síðar
rætist sú sviðs-
mynd sem dregin
var upp af hálfu
Arctica Finance.
Í árslok 2014
Icelandair skilar hagnaði
upp á 68 milljónir dollara,
jafnvirði 7,2 milljarða króna.
Ári síðar jókst hagnaðurinn
hins vegar um 67% og nam
111,2 milljónum dollara,
jafnvirði 11,8 milljarða króna.
1. febrúar 2017
Félagið sendir frá sér svarta
afkomuviðvörun og færir niður
EBITDA spá ársins. Markað-
urinn bregst illa við fréttunum
og lækkunarhrina hefst sem
enn virðist standa yfi r.
8. júlí 2018
Icelandair sendir frá sér
nýja afkomuviðvörun þar
sem enn virðist syrta í
álinn hjá félaginu. Enn
bregst markaðurinn illa
við og gríðarleg verðmæti
þurrkast upp í Kauphöll.
Morgunblaðið/Eggert
úm tíu ár. Hann tók við félaginu við krefjandi að-
sem nú bíða nýs forstjóra félagsins að kljást við.