Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 12

Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018SJÓNARHÓLL Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður, eins og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki, fæst í miklu úrvali í Vélum og verkfærum. Öryggi í sumarbústaðnum Blaupunkt SA2700 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Fullkominn GSM hringibúnaður • Hægt að stjórna með Connect2Home-appi • Boð send með sms eða tali • Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir Verð: 39.990 kr. OLYMPIA 9030 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Mjög einfalt í uppsetningu/notkun • Fyrir farsímakort (GSM) • Hringir í allt að 10 símanúmer • Allt að 32 stk. skynjarar • 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir • Fáanlegir aukahlutir: viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar, svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar. Verð: 13.330 kr. KRISTINN MAGNÚSSON Það er vel þekkt úr heimi fjármála að rekstur far-þegaflugs er áhættusamur. Kemur þar margt til,svo sem eins og óvæntar breytingar á ferða- mynstri fólks, óviðráðanlegar ytri aðstæður líkt og flug- slys, hryðjuverk og náttúruhamfarir og síðast en ekki síst eldsneytisverð sem erfitt er að sjá fyrir. Þegar vel gengur er hagnaður oft á tíðum mikill, en þegar harðnar á daln- um breytast hlutirnir hratt, líkt og langur listi gjaldþrota flugfélaga ber vitni um. Samkvæmt IATA verður eldsneytiskostnaður flug- félaga að jafnaði um einn fjórði af heildarútgjöldum þeirra á þessu ári. Þetta hlutfall hefur farið hækkandi síðustu árin, sem skýrist af því að flugvélaelds- neyti hefur nokkurn veginn tvö- faldast í verði frá 2016. Flug- félög eru misvel í stakk búin til að mæta hækkandi eldsneytis- verði, en í einfaldaðri mynd ræðst það fyrst og fremst af eldsneytisnýtingu, svigrúmi til hækkunar fargjalda og fjárhags- legum vörnum gegn hækkandi eldsneytisverði. Þannig eru flug- félög með nýjan og sparneytinn flugvélaflota, svigrúm til að hækkunar fargjalda og virkar varnir gegn eldsneytishækk- unum í bestu stöðunni sem stendur. Þótt eldsneytisverð hafi hækkað mikið að undanförnu er það ennþá töluvert undir verði árin 2011 til 2014, en þá var það um 40% hærra en nú. Verðið er því fjarri nokkru sögulegu hámarki og jafn líklegt að það eigi eftir að hækka eins og að lækka. Eldsneytisverð féll hratt í verði árin 2014 til 2015 sem varð til þess að mörg flugfélög töp- uðu á eldsneytisvörnum. Í kjölfarið drógu sum félög úr vörnum, sérstaklega flugfélög vestanhafs, en önnur héldu ótrauð áfram. Þannig eru til dæmis Ryanair og EasyJet með mikið af virkum vörnum og hafa læst inn verð sem er um 15-20% undir núverandi verði fyrir næstu eitt til tvö árin á meðan til dæmis Norwegian Air og WOW Air hafa sáralítið af virkum vörnum. Þetta þýðir að ef eldsneytisverð lækkar ekki næsta árið munu til dæmis Ryanair og EasyJet í raun búa við 15-20% lægra eldsneytisverð en Norwegian Air og WOW Air og munu auk þess ekki vera undir neinni pressu að hækka fargjöld til að mæta hækkunum á elds- neytisverði til skamms tíma. Og þar sem samkeppni er mikil á milli flugfélaga þýðir þetta að önnur félög geta þá ekki heldur hækkað verð og þar með að það taki lík- lega eitt til tvö ár fyrir hækkun eldsneytisverðs að seytla út í flugfargjöld, sem mun reyna á þolrifin í þeim flugfélögum sem engar varnir hafa. Bent hefur verið á að lágfar- gjaldafélög séu mögulega í betri stöðu til að glíma við hækkandi olíuverð en hefð- bundin flugfélög, þar sem tekjur af flugmiðum séu tak- markaður hluti heildartekna þeirra og að þau séu í stöðu til að auka tekjur af viðbótar- þjónustu, bæði með hækk- unum á verði og auknu úrvali. Það er þó líklegt að slíkt taki einhvern tíma og skiptir þá öllu máli að lausafjárstaðan gefi svigrúm til þess. Ásamt eldsneyti þá eru laun stærsti útgjaldaliður flugfélaga, en samkvæmt IATA verða laun að jafnaði jafn stór útgjaldaliður og eldsneyti á þessu ári eða um fjórðungur heildarútgjalda þeirra. Ólíkt eldsneytis- kostnaði er launakostnaður flugfélaga að öllu jöfnu nokkuð fyrirsjáanlegur og lítið hægt að gera til að verj- ast honum annað en að hagræða. Hér búa íslensk flug- félög þó við aðra og verri stöðu en mörg erlend félög, þar sem launakostnaður íslensku félaganna er að mestu í íslenskum krónum, með tilheyrandi gengisflökti, á meðan flugfargjöld eru í raun verðlögð í erlendri mynt sökum erlendrar samkeppni. MARKAÐIR Hjörtur H. Jónsson forstöðumaður áhætturáðgjafar hjá ALM verðbréfum Flogið á móti vindi ” Ef eldsneytisverð lækkar ekki næsta árið munu til dæmis Ryanair og Easy- Jet í raun búa við 15-20% lægra eldsneytisverð en Norwegian Air og WOW Air og munu auk þess ekki vera undir neinni pressu að hækka fargjöld til að mæta hækkunum á elds- neytisverði til skamms tíma. FORRITIÐ Stjórnendur hafa í mörg horn að líta og það léttir ekki störf þeirra að þurfa líka að halda utan um flókið frídaga- og fjarvistabókhald. Eftir því sem vinnustaðurinn verður stærri, því erfiðara verður utan- umhaldið og getur kallað á fjarska- mikla fyrirhöfn að henda reiður á því hver er fjarverandi og hvenær, eða hve marga frí- og veikindadaga starfsmenn eiga inni. Forritið Absentia (www.absent- ia.io) á að laga þennan vanda. Um er að ræða notendavænan fjarvista- skráningarhugbúnað sem veitir bæði stjórnendum og almennum starfsmönnum góða yfirsýn. Starfs- fólkið getur sent inn beiðni í gegnum kerfið um að fá að taka stutt eða löng frí frá vinnu og stjórnendur geta samþykkt eða synjað og um leið séð samantekt yfir fjölda nýttra og ónýttra frídaga ásamt upplýsingum um ástæðu fjarvistanna. Kerfið býður líka upp á að gera greinarmun á launuðum og ólaun- uðum fjarvistum og skrásetur jafnt smæstu sem stærstu frí, hvort sem þau vara í eina klukkustund eða heil- an mánuð. Absentia er ókeypis fyrir fyrstu 5 starfsmennina en kostar annars 2 dali á mánuði fyrir hvern notanda. ai@mbl.is Til að hafa betri yfir- sýn yfir frídagana

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.