Þróttur - 01.01.1918, Qupperneq 10

Þróttur - 01.01.1918, Qupperneq 10
8 ÞRÓTTtíÉ fanga sinna á s;jónmn. En um slíkt gagnar ekki að fást. Hitt liggur nær, að bæta úr því eftir föngum. En til þess þarf félag, fjölment félag með áhugasömum mönnum og konum. Slikt félag ætti að kenna mönnum allskonar sund og björgunaraðferðir, dýfingar og aðrar sundíþróttir. Slíkt félag ætti að sjá um vegleg og fjölmenn sundmót og sundsýningar. Ef slíkt félag væri til hér í Reykjavík, þyrfti varla aðal-sund- mót ársins að vera svo þunnskipað sem það er nú Hér skal ekki frekar rætt um þetta að sinni. Þessar línur eiga að eins að verða til þess, að vekja menn til athugunar um þetta mál. Fiutningur Sundskálans. Það er langt síðan að kveðið var upp með þá tillögu, að flytja Sundskáiann frá Skerjafirði og út í örfirisey. Nú er skálinn ekkert notaður og er all-illa út- leikinn. Sést ekki fram á annað, en hann muni þannig smám saman ónýt- ast og verða háðungarmerki sundíþrótt- arinnar svo lengi sem hann stendur þar sem hann er nú. Væri slíkt all-ilt, því að það er hverjum ljóst, að ekki þarf offjár til þess að fá hann fluttan, svo að not verði að honum. Eina kapp- sundið, sem nú er háð hér á hverju ári, er Nýárssundið. Verður það að fara fram hér við bæjarbryggjuna í óhrein- um sjó vegna þess, að engir áhorfend- ur mundu koma suður að Skerjafirði þar sem Sundskálinn er. Að ári verð- ur Nyárssundið háð í 10. sinn. Þáætti að vera búið að flytja Sundskálann, svo að sundið gæti farið vel fram og í breinum sjó. En þótt ekki kosti mikið að flytja skálann, þá vantar samt fé til þess. Félag það, sem á hann, hefir ekki efni á því. Margir menn, er áhuga hafa fyrir gengi sundíþróttarinnar hér, mundu fúslega hafa látið eitthvað af mörkum, ef þeir hefðu vitað á hverju stóð. Þeir menn vinna því að eflingu sundíþróttar- innar, er leggja fram fé til flutnings Sundskálans. Sundskálinn á að verða til þess að glæða áhuga fyrir sundi og það gerir hann því að eins, að hann verði fluttur af þeim stað, sem hann er nú, á annan hentugri stað. ,Þetta skal eg gera oftar4. Sjúklingur var lagður á spítala. Hann var sextugur og hafði aldrei, svo hann myndi, verið laugaður. Daginn sem hann kom á spítalann var honum gerð laug. Þegar hann steig úr lauginni varð honum að orði: »Þetta skal eg gera oftar«. Iþróttafélag Reykjavíkur hefir fimleikaæfingar í leikfimishúsi Mentaskólans fyrir konur og karlmenn. Þær konur, sem vilja fá inntöku í kvenflokk félagsins, gefi sig fram nú strax eftir nýár við kennarann, ungfrú Þórunni Thorsteinsson. Þeir karlmenn, sem ætla sér að taka þátt í leikfimi, gefi sig fram við einhvern úr stjórn fé- lágsins ekki seinna en 15. janúar. Ábyrgðarmaður: Björn.Ólafsson. Isafoldarprentsmiðja 1917.

x

Þróttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.