Breiðfirðingur - 01.04.1951, Qupperneq 26
16
BREIÐFIRÐIN GUR
í milli Grísaholts og seljalands Helgfellinga, ræður Steinn hinn
mikli. Og þaðan sjónhending til ánna á tveggja vega.
I millum Helgafells og Bakkalands, ræður Laxá allt út á sjo,
og upp þar til, er Grímsá fellur í Laxá. Þá Grímsá þaðan fra,
til lækjaróss þess, er fellur úr Moldgili því er marksins gætir.
Ur gilinu í Höfða þann, er stendur næstur Grímsskarði.
I millum Helgafells og Hofsstaða, ræður sjónhending úr Prest-
falli í norðan á Skörðuhólum. Og í annan stað ræður reiðgata
frá Prestfalli ofan til Hofsstaða gagnvart fjarðarbotni. Vaðill 1
Hofstaðavogi ræður merkjum millum Helgafells og Hofsstaða,
allt sem fjarar lengst út.
I millum Helgafells og Ögurslands ræður Kelda sú er fellur 1
Mjóafjarðarbotn, fyrir austan. Úr Keldubotni sjónhending í vörðu
þá, er stendur á Skörðuhólum. Úr vörðu í Saurhóla.
í millum Ögurs og Grunnasundsness, ræður hagagarður norð-
an frá sæ, upp til Mjóafjarðar. En Mjófifjörður ræður millum
Helgafells og Grunnasundsness. í fjarðarósinum út, ræður það
djúp, er mest er, út til Skers þess, er þar liggur fyrir., en það a
hálft hver.
Máldaginn er hér orðréttur tekinn upp úr fornbréfasafninu,
en stafsetningu breytt að mestu til nútíðar stafsetningu.
II. Skýringar á örnefnum máldagans
Hér verður sagt frá örnefnum þeim, sem máldaginn fvrir
Helgafelli nefnir, og þau skýrð, svo sem föng eru til.
Desjagarður: Hann er alþekktur, og heldur nafni sínu. Hann
er á Sauraengjum, vestan frá Saurum, en austan við hinn forna
farveg Laxár.
Fuglstapi: í sumum afritum máldagans er hann nefndur Fugla-
þúfa, og er það vafalítið upphaflega nafnið. Tvær fuglaþúfur
blasa við sjónum frá Desjagarði. Önnur er beint í austur, en hin
í norður. Báðar lítinn spöl frá garðinum. Líklegra er að átt se
við norðari þúfuna, því hún er meiri fyrirferðar.
Taklækur: Hann er tvímælalaust það, sem nú er kallað Saura-