Fréttablaðið - 06.11.2018, Side 6
6 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D A G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð
RENAULT Kadjar Zen 4wd
Nýskr. 05/17, ekinn 45 þ.km
Dísil, beinskiptur.
Nýr bíll kostar 4.750 þús. kr.
VERÐ:
2.990 þús. kr.
RENAULT Megane Zen
Nýskr. 05/18, ekinn 24 þ.km
Dísil, sjálfskiptur.
Nýr bíll kostar 3.590 þús. kr.
VERÐ:
2.890 þús. kr.
RENAULT Clio Zen
Nýskr. 06/18, ekinn 25 þ.km
Dísil, sjálfskiptur.
Nýr bíll kostar 2.890 þús. kr.
VERÐ:
2.290 þús. kr.
RENAULT Kadjar Zen 4wd
Nýskr. 05/17, ekinn 30 þ.km
Dísil, beinskiptur.
Nýr bíll kostar 4.750 þús. kr.
VERÐ:
2.990 þús. kr.
RENAULT Megane Zen
Nýskr. 06/18, ekinn 21 þ.km
Dísil, sjálfskiptur.
Nýr bíll kostar 3.590 þús. kr.
VERÐ:
2.890 þús. kr.
RENAULT Clio Zen
Nýskr. 06/18, ekinn 24 þ.km
Dísil, sjálfskiptur.
Nýr bíll kostar 2.890 þús. kr.
VERÐ:
2.290 þús. kr.
Rnr. 144795
Rnr. 153480
Rnr. 153559
Rnr. 370828
Rnr. 145502
Rnr. 145511
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
7
0
6
B
íl
a
la
n
d
N
ý
t
t
l
a
y
o
u
t
2
x
3
8
n
ó
v
KYNNTU ÞÉR ÚRVALIÐ
Á WWW.BILALAND.IS
GERÐU GÓÐ KAUP
Á NÝLEGUM
RENAULT Í
NÓVEMBER
Hjá okkur finnur þú ástandsskoðaðan RENAULT
með aðstoð traustra, löggildra bílasala. Komdu til
okkar kynntu þér úrvalið á planinu.
NÝ VETRARDEKK FYLGJA
EFTIRTÖLDUM BÍLUM
2017
Árgerð
2018
Árgerð
2018
Árgerð
2017
Árgerð
2018
Árgerð
2018
Árgerð
LAnDbÚnAÐUr „Þetta er algerlega
fráleit tillaga. Við höfum talað
fyrir því að samkeppnisundan-
þágur mjólkuriðnaðarins verði
afnumdar. Þarna er verið að taka
algerlega skakkan pól í hæðina að
okkar mati. Reynsla undanfarinna
ára hefur sýnt okkur að verðlags-
þróunin hefur til dæmis verið hag-
stæðari þegar kemur að kjöt- en
mjólkurvörum einmitt vegna þess
að þar er meiri samkeppni og neyt-
endur hafa notið þess,“ segir Ólafur
Stephensen, framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda, um frum-
varp tveggja þingkvenna Fram-
sóknarflokksins.
Í frumvarpinu leggja þær Halla
Signý Kristjánsdóttir og Líneik
Anna Sævarsdóttir til að afurða-
stöðvar í kjötiðnaði verði undan-
þegnar ákvæðum samkeppnislaga
en sambærilegar undanþágur gilda
um mjólkuriðnaðinn.
Ólafur bendir á að íslenskur land-
búnaður sé verndaður fyrir erlendri
samkeppni með gríðarháum tollum.
„Þegar tollkvótarnir sem samið var
um við ESB eru að fullu komnir til
framkvæmda er umfangið um átta
til tíu prósent af innanlandsmark-
aðnum eins og hann var á síðasta
ári. Innlendri kjötframleiðslu er nú
eiginlega engin vorkunn að standa
af sér samkeppni sem er kannski um
tíu prósent af markaðnum.“
Halla Signý segir frumvarpið
fyrst og fremst lagt fram sem við-
brögð við slæmri stöðu í sauðfjár-
rækt. Því sé ekki ætlað að leysa öll
vandamál greinarinnar en sé ein
leið til þess.
„Afkoman hefur verið slök og ein
af þeim leiðum sem nefndar hafa
verið til úrbóta er að skoða afurða-
geirann. Það var 30 prósenta niður-
skurður í afurðaverði til bænda
á síðasta ári og þetta er enn að
versna,“ segir Halla Signý.
Hún segir að óskir hafi komið frá
afurðastöðvunum um að geta unnið
saman á ýmsum sviðum til þess að
hagræða í rekstri.
„Þær gætu sameinast eða gert
samkomulag um verkaskiptingu
en þannig værum við með stærri og
hagkvæmari rekstrareiningar. Þetta
skiptir líka gríðarlegu máli til dæmis
þegar kemur að markaðssetningu
erlendis.“
Þá bendir Halla Signý á að þró-
unin undanfarin misseri hafi verið
sú að innflutningur hafi aukist
umtalsvert. „Ef við ætlum okkur að
ýta undir og halda utan um okkar
góðu framleiðslu þá er þetta ein
leiðin.“ sighvatur@frettabladid.is
Kjötframleiðslu engin
vorkunn að samkeppni
Framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda líst illa á frumvarp um að afurða-
stöðvar í kjötiðnaði verði undanskildar samkeppnislögum. Flutningsmaður
telur hins vegar nauðsynlegt að grípa til aðgerða til stuðnings sauðfjárrækt.
Ríkið viðurkenndi bótaskyldu vegna ferskra eggja
Í gær var lögð fram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur réttarsátt þar
sem ríkið viðurkenndi bóta-
skyldu í máli þar sem fersk egg
voru gerð upptæk af toll-
vörðum.
Ólafur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri Félags atvinnurek-
enda, segir það hafa legið fyrir
árum saman að íslensk löggjöf
sem banni innflutning á fersku
kjöti, eggjum og ógerilsneyddri
mjólk brjóti í bága við EES-samn-
inginn.
„Það er hins vegar ekki enn
búið að breyta löggjöfinni. Bæði
þetta mál og málið í síðustu viku
þar sem ferskt kjöt var aftur gert
upptækt sýna fram á nauðsyn
þess að lagabreytingum sé
hraðað. Bæði til að tryggja réttar-
öryggi innflytjenda og eins til að
forða íslenska ríkinu frá frekari
skaðabótamálum.“
Flutningsmaður segir frumvarpið lagt fram sem viðbragð við slæmri stöðu í sauðfjárrækt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
féLAGSmÁL „Krafan um fundinn
er byggð á lögum félagsins um að
hundrað félagsmenn geti beðið
um svona fund. Þegar þeir eru ekki
nema helmingurinn af því segir það
sig sjálft að við getum ekki orðið við
beiðninni,“ segir Jónas Garðarsson,
formaður Sjómannafélags Íslands.
Á föstudag var send krafa, studd
af 163 undirskriftum, um að félags-
fundur yrði haldinn til að ræða stöð-
una sem upp er komin í félaginu eftir
að Heiðveigu Maríu Einarsdóttur
var vikið úr félaginu. Í tilkynningu
frá stjórn félagsins kemur fram að
aðeins 52 af þeim sem skrifuðu undir
kröfuna séu félagsmenn.
Jónas gefur lítið fyrir gagnrýni
ýmissa verkalýðsforingja og ályktun
aðalfundar Sjómannafélagsins Jötuns
í Vestmannaeyjum um brottvikningu
Heiðveigar. Hann segir að þegar Jöt-
unn hafi slitið sig frá sameiningarvið-
ræðum hafi bara verið vitnað í það
sem Heiðveig hafi sagt um stjórnina.
„Þetta eru svona einhverjar eftir-
áskýringar sem segja ekki neitt. Þetta
er mjög sérkennilegt. Svo er þarna
nýja fólkið í Alþýðusambandinu. Það
blasti við að þegar stofnfundur hins
nýja félags yrði, væru öll hin félögin
búin að segja sig úr ASÍ. Þeirra upp-
legg er eitthvað tengt því að mínu
mati. Það er pólitík í þessu.“
Hann segist hafa verið minntur
á það af eldri félögum að þetta sé
í þriðja sinn svo vitað sé sem ein-
hverjum sé vikið úr félaginu. „Í hin
tvö skiptin hefðu nú þótt léttvægar
ástæður að baki miðað við nú.
Skemmdarverkið er þvílíkt að þetta
varð ekki umflúið,“ segir Jónas.
– sar
Jónas gefur lítið fyrir gagnrýni á stjórn
Formaður Sjómannafélagsins segir málið lykta af pólítík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
0
6
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
A
-5
0
2
4
2
1
4
A
-4
E
E
8
2
1
4
A
-4
D
A
C
2
1
4
A
-4
C
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K