Fréttablaðið - 06.11.2018, Side 8

Fréttablaðið - 06.11.2018, Side 8
Bandaríkin Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag. Fjölmargir kjósa til öldungadeildar þingsins, allir til fulltrúadeildar, einhverjir til ríkisstjóra. Að auki er kosið um stöður innan hvers ríkis, þing og embætti, og þá eru ýmis mál á kjör- seðlinum í hverju ríki fyrir sig. Mestur áhugi er á kosningum til beggja deilda bandaríska þingsins sem og á nokkrum ríkisstjórastólum. Staðan þar til næstu tveggja ára gæti haft mikil áhrif á þennan síðari hluta kjörtímabils Donalds Trump forseta og er afar mikið í húfi. Frambjóðend- ur beggja flokka hafa fullyrt að um sé að ræða „mikilvægustu miðkjör- tímabilskosningar í langan tíma“. Einblínt verður á þær kosningar á næturvakt á Frétta blaðið.is í nótt. Kjörstöðum verður lokað víða á mið- nætti og má vænta úrslita upp úr því. Kosningabaráttan hefur verið hörð og ekki er hægt að segja að hún hafi markast af einu ákveðnu máli. Á lokasprettinum nú hafa Repúbl- ikanar einna helst einbeitt sér að efnahagsmálum enda fer störfum fjölgandi og atvinnuleysi mælist undir fjórum prósentum. Langt er síðan staðan þar hefur verið betri. Þá hefur Trump flakkað um landið og farið mikinn í umræðu um flótta- mannalestina sem gengur nú yfir Mexíkó í átt að Bandaríkjunum. Demókratar hafa margir hverjir einblínt á heilbrigðismál og and- stöðu við hinn umdeilda forseta. Ýmsir skýrendur, til að mynda á fréttavefnum Politico, hafa haldið því fram að Demókratar nýti nú miðkjörtímabilskosningarnar til þess að finna bestu leiðina til þess að hafa Hvíta húsið af Trump árið 2020. Innan flokksins sé rætt um hvort betra sé að höfða til miðjunnar eða að fylgja þeirri þróun sem hefur orðið undanfarin ár að sækja lengra út á vænginn með því að stefna að aukinni ríkisvæðingu í heilbrigðis- málum og því að ákæra Trump til embættismissis. Ljóst er, sama hvor stefnan er valin, að Demókratar munu geta hindrað störf Trumps for- seta verulega, nái þeir meirihluta í að minnsta kosti annarri deild þingsins. Og útlit er fyrir það. Samkvæmt spálíkani tölfræðifréttavefsins Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu kosningar sem vert er að fylgjast með Fréttablaðið.is mun veita þessum kosningum sérstaka athygli í nótt. Texas Beto O’RourkeTed Cruz* +6,5% Mikið hefur verið rætt um sjarma O’Rourke, öfluga fjár- öflun og möguleika á því að snúa Texas. Hann þykir þó hafa spilað illa úr spilunum með því að tala ekki til kjósenda á miðjum ás stjórnmálanna. arizona Martha McSally Kyrsten Sinema +1,9% Tvær konur berjast um sæti í karllægri deild. Sinema yrði fyrsta manneskjan sem er opinberlega tvíkynhneigð til að taka sæti á meðan McSally var fyrsta banda- ríska konan sem varð orrustuflug- maður. Missouri hefur færst sífellt nær Repúblikönum á undanförnum árum og er 14. íhaldssamasta ríki Bandaríkjanna. McCaskill á því mögulega erfiða kosninganótt fram undan og gæti vel misst sæti sitt. Missouri Josh Hawley Claire McCaskill* +1,4% nevada Jacky RosenDean Heller* Nevada er eitt þeirra ríkja sem Hillary Clinton vann árið 2016 og hefur það reynst Dean Heller erfið áskorun að halda sætinu enda hefur ríkið færst nær Demó- krataflokknum á undanförnum árum. +1,4% Flórída Scott fer úr stóli ríkisstjóra og freistar þess að ná inn í öldunga- deildina og hefur varið milljónum úr eigin vasa í kosningabarátt- una. Áhrif fellibylsins Michael á kosningarnar eru óljós en vafa- laust einhver. Rick Scott Bill Nelson* +1,9% Indiana er íhaldssamt ríki og atkvæði Donnellys gegn því að staðfesta tilnefningu íhaldssama dómarans, og meinta kynferðis- brotamannsins Bretts Kavanaugh í hæstarétt hefur komið honum í klandur. indíana Mike Braun Joe Donnelly* +0,8% Öldungadeildin GeorGía Brian Kemp Stacey Abrams Abrams gæti orðið fyrsti svarti ríkisstjóri Georgíu. Kemp er gagn- rýndur fyrir að segja sig ekki úr embætti innanríkisráðherra sem hefur umsjón með kosningum og sakaður um að draga vísvitandi úr kjörsókn. +2,7% Flórída +2,1% Andrew GillumRon DeSantis Báðir frambjóðendur þykja vera yst á vængjum flokka sinna. Baráttan hefur verið hatrömm og hefur DeSantis ítrekað sakað Gillum um spillingu og Gillum hefur sakað DeSantis um kyn- þáttafordóma. ríkisstjórar Kosið er til þings, ríkis- stjóra og ýmislegs ann- ars í Bandaríkjunum í dag. Kosningarnar eru prófsteinn fyrir ríkis- stjórn Trumps forseta og munu hafa veruleg áhrif á seinni hluta kjörtíma- bilsins. Fréttablaðið.is verður á vaktinni í nótt og fylgist sérstaklega með nokkrum spenn- andi kosningum. FiveThirtyEight, sem tekur tillit til kannana, fjáröflunar, sögunnar og annarra þátta, eru 87,5 prósenta líkur á því að Demókratar taki full- trúadeildina. Ástæðuna má til að mynda rekja til þess að meirihluti Bandaríkjamanna er andvígur for- setanum og til þess að metfjöldi Repúblikana er nú að hætta á þingi og sæti þeirra því viðkvæmari. Sam- kvæmt FiveThirtyEight hallast rétt rúmur meirihluti þingsætanna 435 að Demókrötum og afar mjótt er á munum hvað snertir 18 í viðbót. Allt aðra sögu er að segja með öldungadeildina. Þar mælast, sam- kvæmt sömu stöðlum, 83,2 prósent líkur á að Repúblikanar haldi meiri- hluta og eru þeir líklegri til þess að bæta við sig ef eitthvað er. Til dæmis er nærri öruggt að Repúblikanar hirði Norður-Dakóta en þar mælist Repúblikaninn með tíu prósentu- stiga forskot. Kortið svokallaða er óhagstætt Demókrötum en kosið er um þriðjung þeirra hundrað sæta sem eru í öldungadeildinni. Þar af þurfa Demókratar, og óháðir á þeirra bandi, að verja sæti í tíu ríkjum sem Trump vann í forsetakosningunum. Afar mjótt telst á munum í tveimur ríkjum en þar mælast Repúblikanar þó með forskot í könnunum. thorgnyr@frettabladid.is 12 í kvöld byrja kjörstaðir að loka. Fréttablaðið.is verður á vaktinni í nótt og fjallar um kosningarnar. *sitjandi þingmaður www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is Þann 7. nóvember kl. 20:00 í safnaðarsal Laugarneskirkju fjalla Olga Snorradóttir og Hulda Guðmundsdóttir um makamissi. Samveran er ætluð þeim sem misst hafa maka og þurfa að horfa á lífið í því ljósi. Þá verður kynnt stuðningstarf vegna makamissis og hægt að skrá sig í stuðningshóp á staðnum. Kaffisopi og enginn aðgangseyrir. Að missa maka sinn Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er hörð. demókratar einblína á heilbrigðismál en repúblikanar á efnahagsmál. Myndir úr kosningabaráttunni í Bandaríkjunum undanfarna viku eru á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er eingöngu í Fréttablaðs-appinu eða í PdF-útgáfu blaðsins sem er aðgengileg á frettabladid.is. +Plús 6 . n ó v e m B e r 2 0 1 8 Þ r i Ð J U d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a Ð i Ð 0 6 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 4 A -4 B 3 4 2 1 4 A -4 9 F 8 2 1 4 A -4 8 B C 2 1 4 A -4 7 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.