Fréttablaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 14
Guðrún byrjaði að stunda jóga af alvöru fyrir fjórum árum en hafði fram að því
dundað sér við að gera æfingar
heima á jógadýnu sem amma
hennar heitin gaf henni. Amma
hennar, Erla Tryggvadóttir, kenndi
henni undirstöðurnar í jóga og
öndun þegar hún var barn og leyfði
henni að fylgja sér í jógatíma sem
hún kenndi. Líklega tendraði það
áhugann.
Jóga er lífið
Guðrún Erla ákvað árið 2014 að fara
í jógabúðir í Goa á Indlandi en eftir
það varð ekki aftur snúið. „Í mínum
huga er jóga lífið – og lífið jóga. Í
því tekst ég á við svo miklu meira
heldur en líkamlegar áskoranir
og er stöðugt að skora á hugann
og hjartað. Í sanskrít táknar orðið
„yoga“ tengingu eða sameiningu
huga, líkama og sálar. Kraftaverk
gerast þegar maður velur að ein
blína á kærleika og það jákvæða
í lífinu. Jóga tengir mig þessum
tilfinningum og hjálpar mér að vera
í núinu. Það hefur hreinlega opnað
fyrir mér nýja vídd.“
Guðrún Erla hefur gaman af því
að prófa ólíka tíma. „Ég er með
árskort í World Class og fer mikið
þangað. Nýverið var svo jógastú
díóið Iceland Power Yoga opnað í
nágrenni við mig, sem ég stefni á
að prófa. Að mínu mati gefur hver
kennari eitthvað nýtt. Hann kemur
með nýjar áskoranir og nærveru
sem er svo dásamlegt að vera hluti
af en þess utan hef ég sótt einka
kennslu til að reyna að dýpka
þekkingu mína og færni,“ upplýsir
Guðrún Erla.
Hún hefur sömuleiðis farið í
alls kyns jógaferðir út fyrir land
steinana. „Þar er ég í essinu mínu
og hef leitað uppi staði víðsvegar
um heiminn til að stunda jóga. Ég
fór í Ashyana Yoga Center í Goa
á Indlandi, Absolute Sanctuary á
Koh Samui á Taílandi og Samahita
Retreat á sömu eyju. Þá fór ég á
„detox retreat“, eða djúsföstu, á
Möltu, Amchara Retreat og í Long
evity í Portúgal en á báðum stöðum
var boðið upp á jóga samhliða
föstunni.
Guðrún Erla hefur mestmegnis
haldið í jógaferðirnar ein sem hún
segir krefjandi og þroskandi í senn.
„Það er ótrúlega hollt að læra að
vera einn með sjálfum sér. Ef maður
hefur ekki gaman af eigin félags
skap, hver hefur það þá?“ spyr hún
og hlær. Hún segist að auki hafa
kynnst fullt af fólki á ferðum sínum
og eignast yndislega vini. „Þá hef ég
farið í hópferð með jógastöðinni
Sólum til Koh Samui á Taílandi. Þó
ég hafi verið á eigin vegum kynntist
ég og tengdist dásamlegu fólki og
það er að mínu mati ómetanlegt að
vera með fólki sem er á sams konar
ferðalagi.“
Leggur rækt við heilsuna
Guðrún Erla tók ástfóstri við
líkams rækt um tvítugt og hefur
prófað alls kyns tíma í gegnum
tíðina. Fyrir utan jóga finnst henni
Hér má sjá Guðrúnu Erlu í einfættu hjóli á ströndum Koh Samui 2017.
Þetta var í fyrsta skipti sem Guðrún Erla komst óstudd í höfuðstöðu á strönd í
Essaouira í Marokkó 2015. „Höfuðstaða á dag kemur skapinu í lag.“
„Eftir að ég varð örugg í höfuðstöðunni er ég farin að leika mér í henni og prófa alls konar stellingar með fæturna,
enda eyði ég nokkrum mínútum í stöðunni. Þessi mynd er tekin á Samahita Retreat á Taílandi 2017.“
Guðrún Erla hefur ferðast víða í
tengslum við jógaiðkunina og er þá í
essinu sínu. Hún segir bæði krefjandi
og hollt að ferðast ein.
Vera
Einarsdóttir
vera@frettabladid.is
ómissandi að skokka og grípa í lóð
og finnst það fara mjög vel saman.
Aðspurð segist hún almennt hugsa
vel um heilsuna. „Ég er þó ekkert
heilög og dett stundum af heilsu
vagninum. Það er hins vegar ekkert
annað við því að gera en að skella
sér á hann aftur.“ Í huga Guðrúnar
Erlu er það að huga að heilsunni að
gera vel við sjálfa sig. Hún leggur
áherslu á að sofa vel og að leggja
rækt við bæði líkama og sál. Hún
segir fátt næra sig betur en samvera
með strákunum sínum tveimur,
fjölskyldu og vinum. „Það að hlæja
er í mínum huga eitt mikilvægasta
heilsuráðið og ekki að ástæðulausu
að hlátur sé sagður besta meðalið.
Svo finnst mér alveg lífsnauðsynlegt
að fara í sund og heita potta. Heitt
vatn er dýrmæt auðlind sem ég
kann svo sannarlega vel að meta.“
En spáir þú mikið í mataræði
samhliða hreyfingu?
„Ég reyni að borða lítið kjöt og
mikið grænt. Þó mér leiðist boð
og bönn þá hentar mér afar illa að
borða hveiti og sykur. Ég verð slöpp
og líður illa og reyni því að forðast
það eins og ég get. Pitsa er hins
vegar með því besta sem ég fæ en
það er hægt að velja hollari kostinn
í þeim efnum eins og flestu. Þá legg
ég mikið upp úr því að hreinsa
líkamann og tek djúsföstu einu
sinni til tvisvar á ári. Það eru skiptar
skoðanir um ágæti slíkrar föstu en
hún hentar mér vel. Ég verð orku
meiri og líður yndislega á eftir.
Þakklát
Guðrún Erla hefur í nægu að snúast
og leggur stund á doktorsnám sam
hliða starfi. „Rannsóknarefni mitt
tengist stjórnarháttum og stefnu
mótandi hlutverki stjórna, en ég er
að skoða eigendastefnu OR út frá
þessu sjónarhorni. Þar sem námið
mitt er innan atvinnugreinar þá
sameinast starf og nám og ég er svo
lánsöm að fá að bæði að rannsaka
og hrinda í framkvæmd og vakna
glöð í vinnuna og hlakka til að fara í
vinnuna á hverjum morgni.“
Þakklæti er Guðrúnu Erlu ofar
lega í huga og byrjar hún hvern dag
á því að hugsa um það sem hún
er þakklát fyrir, sem rímar vel við
jógafræðin. „Ég les líka mikið um
jóga og hnýt reglulega um tilvitn
anir sem tala til mín,“ segir hún og
nefnir eftirfarandi tilvitnun í B.K.S.
Iyengar sem dæmi: „The light that
Yoga sheds on life is something
special. It is transformative. It does
not just change the way we see
things; it transforms the person
who sees.“ eða „Jóga varpar ein
stöku ljósi á lífið. Það er breyt
ingarafl. Það breytir ekki aðeins
því hvernig við sjáum hlutina; það
breytir manneskjunni sem sér.“
Það er ótrúlega
hollt að læra að
vera einn með sjálfum
sér. Ef maður hefur ekki
gaman af eigin félags-
skap, hver hefur það þá?
15%
AFSLÁTTUR AF
BUXUM OG PEYSUM
BUXNA OG PEYSUDAGAR
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . N Óv E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
6
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
A
-4
6
4
4
2
1
4
A
-4
5
0
8
2
1
4
A
-4
3
C
C
2
1
4
A
-4
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K