Stjarnan - 01.03.1921, Page 3

Stjarnan - 01.03.1921, Page 3
STJARNAN 35 Draumur Mable Ashton’s. 'Þegar gestirnir voru saman komnir í hinum yfirgnæfanlega uppljómaöa sal í húsi Mable Ashtons, sáust engin vegs- ummerki þess, aS minna mundi veröa um dýrSir á kvöldskemtun þessari, en undanfariS hafSi átt sér staS á skemtun- um þeim, er fariS höfSu fram þaS sem liSiS var af vetrinum. Sumir gestirnir virtust þó veita eftir- tket ein'hverju sérstöku )tfirbragSi á Mable Ashtons fagra andliti. en hugðu þaS runniS vera frá áhuganum fyrir að undirbúa alt réttilega undir kvöldskemt- unina og hugsuSu því ekki frekar um þaS. Allir voru önnum kafnir við að útbúa dansseSla sína fyrir þá mismunandi dans- leiki. HljóðfæraliSiS var á sínum stað, og hinir ungu fóru aS verða hissa á hversvegna ekki væri gefin tiikynning um að byrja aS spila. I>á gekk Mable Ashton þangaS', sem hljóSfæraliSiS var. Hennar fallega litla andlit var ýmist bleikt eSa rautt, er hún svo hafði lokað augunum stundarkorn, þar til hljótt var var orSið í salnum. Byrjaði hún að tala. Rödd hennar var dálítið skjálfandi fyrst í staS, en varS brátt skýr og róleg. “Vinir mínir, ySur finst sjálfsagt eg dálítiS einkennileg, en áður en vér aS- höfumst nokkuS, vil eg segja ykkur frá því sem hefir hent mig. Mig dreymdi í nótt draurn, sem hefir haft svo mikil á- hrif á mig, aS eg verð aS segja vkkur hann. Mig dreyir.di að þetta kvöld væri upprunniS, og aS þér voruö hér öll sam- an komin í þessum sal, og þar fyrir utan gestur, sem virtist þekkja oss öll mæta vel, en eg gat ekki minst þess að hafa séð hann áður. Hann var göfvtgmannlegur, meS friSsamlegt yfirlit, en þó dálítiö mæSulegt. Og aldrei hefi eg séS jafn- rannsakandi augu. Hann var klæddur í látlausum, fátæklegum búningi, en þaS var eitthvað í látbragöi hans, er sýndi, að hann ekki var nein vanaleg persóna. Þar sem eg nú stóð undrandi yfir hver itann myndi vera, kom hann til mín, rétti tnér hendina og sagSi vingjarnlega: “Það virðist, sem þú ekki þekkir mig, Mable.” í hálfgerðu fáti svaraöi eg: “Mér finst eg þekkja andlit yðar, herra minn, en eg man ekki nafn ySar.” “Eg er þó sá, sem bæði þú og foreldr- ar þínir hafiS oft boðið til ykkar. Þú hefir boSið mér að vera á heimili þínu, og í kvöid er eg kominn til aS taka þátt í félagsskap ySar.” “Eg bið afsökunar, en það verður mér nú enn þá kærara, að fá aS vita hver það er, sem eg hefi þann heiSur að hafa á heimili mínu.”, Iiann sýndi ntér þá höndur sínar, er Itáru naglaför, og horfði' svo á mig meS rannsakandi en mildum augum. Og nú þurfti hann ekki að segja: "Eg er Jes- ús, Drottinn þinn.” Augnablik stóð eg sem þrumulostin, og vissi ekki hvaö eg átti að segja. Hvers vegna fleygði eg mér ekki niSur fyrir fætur honum og sagði af öllu hjarta: “Herra Jesús, það er mér ósegjanlegt gleðiefni að sjá þig.” En á meðan augu hans horfðu inn í mín, gat eg ekki sagt þetta, því þaS hefði ekki verið satt sagt.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.